
Þjófar réðust á starfsmann verslunar
Lögreglunni barst í gærkvöldi tilkynning um fjóra aðila sem voru að stela í matvöruverslun í miðborg Reykjavíkur. Þegar starfsmaður reyndi að stöðva þá réðust þjófarnir á hann. Þegar lögregluþjóna bar að garði voru þjófarnir farnir og fundust þeir ekki, samkvæmt dagbók lögreglu.