Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Freyja Þórisdóttir skrifar 23. ágúst 2026 20:20 Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, til vinstri, og Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, heimsækja minningarreit fyrir utan skóla í Fagersta í Svíþjóð, ap Hinn átján ára gamli Liam Nebel hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en hann er grunaður um morð og tilraun til manndráps eftir að 17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust í skólaárás í Fagersta í Svíþjóð. Hann var sjálfur nemandi við skólann þar sem hann gekk berserksgang vopnaður sverði föstudaginn 22. ágúst.
Rétt eftir klukkan 14:00 á föstudaginn síðasta barst lögreglu í nágrenni Brinnel-skóla í Fagersta í Vestmannalandi í Svíþjóð tilkynning um að maður vopnaður sverði hefði ráðist á nemendur, er fram kemur í umfjöllun Aftonbladet um málið. Tíu mínútum síðar hafi lögreglan verið komin á vettvang árásarinnar og skotið í átt að árásarmanninum en ekki hæft hann. Mótmælti ekki Þá er einnig greint frá því í umfjölluninni að árásarmaðurinn, Liam Nebel, hafi verið klæddur á sama hátt og Anton Lundin Pettersson, sem myrti þrjá í skólaárásinni í Trollhättan í Svíþjóð árið 2015. 17 ára stúlka lést og þrír drengir særðust í skólaárásinni en Nebel hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og á hann ekki að hafa mótmælt handtökunni. Rannsóknin sé á frumstigi. Meðal þess sem er vitað um Nebel er að uppeldi hans einkenndist af ofbeldi og hótunum en hann hafi verið vistaður á fósturheimili um tíma. Hann hafi á tímabili verið neyddur til að æfa bardagaíþróttir gegn vilja sínum og neitað um að nota gleraugu þegar hann þurfti á þeim að halda. Minni óneitanlega á árásina 2015 Karl Gústaf Svíakonungur hefur tjáð sig um árásina á vefsíðu sænsku konungsfjölskyldunnar og segir: „Það er með harmi og sorg sem við höfum fengið þær fréttir að Svíþjóð hafi enn og aftur orðið fyrir skólaárás. Hugur minn er hjá þeim sem urðu fyrir árásinni, fjölskyldum þeirra og aðstandendum.“ Þá hefur forsætisráðherra Svíþjóðar, Ulf Kristersson, heimsótt bæinn um helgina en haft er eftir honum í umfjöllun Aftonbladet að „það sem ekki átti að gerast hefur gerst aftur. Hugur okkar er fyrst og fremst hjá fjölskyldunum sem hafa orðið fyrir ótrúlega miklu áfalli.“ Auðvitað leiti hugurinn aftur til þess sem gerðist í Trollhättan árið 2015, í Risbergska fyrir rúmu ári síðan. Þess vegna segi hann að „það sem ekki átti að gerast hafi gerst aftur“. Þá lést kennari og ellefu ára drengur en líkt og fyrr segir var Nebel klæddur svipuðum fötum og Anton Lundin Pettersson sem var einnig vopnaður sverði. Sveitarfélagið Fagersta hefur opnað áfallamiðstöð til stuðnings samfélaginu sem er harmi slegið vegna árásarinnar. Í bænum búa um tólf þúsund manns.
Svíþjóð Erlend sakamál Lögreglumál Tengdar fréttir Réðst á grunnskólanemendur með sverði Maður gekk berserksgang í sænskum grunnskóla með sverði og særði marga. 21. ágúst 2026 13:11 Morðinginn í Trollhättan var kynþáttahatari Hann myrti tvo og særði tvo aðra sem nú berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi. 23. október 2015 07:20 Hundruð þúsunda taka þátt í minningarathöfn um fórnarlömbin í Tröllhattan Alls hafa 200.00 manns boðað þáttöku sína í einnar mínutu þögn sem fram á að fara um alla Svíþjóð. 23. október 2015 13:32 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Fleiri fréttir „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Sjá meira
Réðst á grunnskólanemendur með sverði Maður gekk berserksgang í sænskum grunnskóla með sverði og særði marga. 21. ágúst 2026 13:11
Morðinginn í Trollhättan var kynþáttahatari Hann myrti tvo og særði tvo aðra sem nú berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi. 23. október 2015 07:20
Hundruð þúsunda taka þátt í minningarathöfn um fórnarlömbin í Tröllhattan Alls hafa 200.00 manns boðað þáttöku sína í einnar mínutu þögn sem fram á að fara um alla Svíþjóð. 23. október 2015 13:32