Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Kolbeinn Tumi Daðason og Árni Sæberg skrifa 25. ágúst 2026 07:47 Atvikið átti sér stað í Salahverfi í Kópavogi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Karlmaður sem lést í heimahúsi í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn var eiginmaður Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins. Eldri sonur þeirra sem er á fimmtugsaldri er grunaður um að hafa ráðið föður sínum bana.
Lilja Rafney, sem er sjöundi þingmaður Norðvesturkjördæmis og formaður atvinnuveganefndar, greindi frá því á Facebook sama dag og andlátið bar að að eiginmaður hennar, Hilmar Oddur Gunnarsson, vörubifreiðastjóri og sjómaður frá Suðureyri, hefði látist 72 ára að aldri. Hann hefði glímt við veikindi síðustu árin eftir hjartaáfall og heilablóðfall. Lögreglan er nú með til rannsóknar hvort sonur þeirra hafi orðið honum að bana, á heimili fjölskyldunnar í Salahverfi í Kópavogi. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur umræddur sonur, sem er á fimmtugsaldri, átt við andleg veikindi að stríða, til lengri tíma. Greint frá málinu rúmri viku seinna Fyrst var greint frá málinu þann 5. ágúst síðastliðinn og kom þá fram að umrætt andlát hefði borið að um helgina 25. og 26. júlí en Hilmar Oddur lést sunnudaginn 26. júlí. Hinn grunaði var handtekinn þriðjudaginn 28. júlí og úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald degi seinna á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þegar það varðhald rann út var hann á úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna,grunaður um að hafa orðið föður sínum að bana. Ekki tímabært að greina frá notkun vopns Samkvæmt heimildum fréttastofu fannst ekkert vopn á vettvangi. Að sögn E. Agnesar Eide Kristjánsdóttur, yfirlögregluþjóns miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er ekki tímabært að svo stöddu að greina frá því hvort til rannsóknar sé hvort vopni hafi verið beitt. Þá segir hún að hinn grunaði sé yfirheyrður reglulega en lögregla telji sig vera komna með skýra mynd á atvik málsins.
Lögreglumál Kópavogur Grunaður um að bana föður sínum í Kópavogi Flokkur fólksins Tengdar fréttir Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins. 5. ágúst 2026 18:44 Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á andláti annars karlmanns í Kópavogi. 5. ágúst 2026 15:16 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins. 5. ágúst 2026 18:44
Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á andláti annars karlmanns í Kópavogi. 5. ágúst 2026 15:16