

Meistaradeildin
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Leikirnir

Hauge dómara hótað
Forráðamenn Chelsea hafa lofað að hrinda af stað rannsókn vegna morðhótana á hendur norska dómarans Terje Hauge á spjallborðum á heimasíðu félagins, en dómarinn á fáa vini þar eftir að hann vísaði Asier del Horno af velli í leiknum gegn Barcelona í vikunni.

Sissoko spilar ekki meira á leiktíðinni
Rafa Benitez segist óttast að Mohamed Sissoko spili ekki meira með liðinu á þessari leiktíð vegna augnmeiðslanna sem hann hlaut í Meistaradeildinni á dögunum, en segir að mestu máli skipti að leikmaðurinn nái sér að fullu. "Ég er viss um að hann nær sér og muni geta spilað aftur," sagði Benitez, en Sissoko mun hitta sérfræðinga eftir viku þar sem ástand hans verður metið á ný.

Messi tekur við af mér
Knattspyrnugoðið Diego Maradona er ekki í vafa um að eftirmaður sinn í argentínska landsliðinu sé fundinn eftir að hann sá Lionel Messi fara á kostum með liði Barcelona gegn Chelsea í Meistaradeildinni.

Útlitið dökkt hjá Sissoko
Mohamed Sissoko, leikmaður Liverpool sem fékk spark í augað í leiknum gegn Benfica í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið, gæti þurft að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla sinna. Læknar sem hafa hann til meðhöndlunar segja að öruggt sé að sjón hans á hægra auga sé sködduð, en geta ekki metið skaðann fyrr en eftir 2-3 daga.

Við erum langt í frá hættir
Alex McLeish segir að sínir menn séu langt frá því að hafa sagt sitt síðasta orð í Meistaradeildinni eftir að hafa tvisvar komið til baka eftir að hafa lent undir í viðureign sinni gegn Villareal í gær og náð jafntefli 2-2 á heimavelli sínum.

Við getum komist áfram
Thomas Schaaf, þjálfari Werder Bremen hefur fulla trú á að hans menn geti slegið sterkt lið Juventus út úr 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar er þeir sýna sömu baráttugleði og þeir gerðu á heimavelli sínum í gær, þegar þeir skoruðu 2 mörk á lokamínútum leiksins og sneru vonlausri stöðu sér í hag.

Mark Chelsea hjálpaði okkur
Frank Rijkaard var skiljanlega ánægður með sína menn eftir sigurinn á Chelsea á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í gær og sagði að markið sem Chelsea skoraði hefði hjálpað liði sínu á undarlegan hátt.

Óhress með Messi
Jose Mourinho var ekki par hrifinn af rauða spjaldinu sem leikmaður hans Asier del Horno fékk að líta í leiknum við Barcelona í Meistaradeildinni í gær og þótti Lionel Messi sýna full leikræna tilburði þegar atvikið átti sér stað.

Barcelona í vænlegri stöðu
Spænsku meistararnir í Barcelona eru komnir í draumastöðu í einvígi sínu við Chelsea eftir 2-1 sigur í fyrri leik liðanna á Stamford Bridge í kvöld. Það var Samuel Eto´o sem tryggði spænska liðinu sigurinn með marki á 80. mínútu, eftir að Thiago Motta og John Terry höfðu báðir skorað sjálfsmörk.

Jafnt hjá Chelsea og Barcelona í hálfleik
Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum í Meistaradeild Evrópu. Staðan er 0-0 í leik Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge, en leikurinn hefur verið mjög fjörugur. Leikmenn Chelsea eru þó orðnir manni færri, því Asier del Horno var vikið af leikvelli á 37. mínútu eftir ljótt brot á Lionel Messi.

Eiður Smári í byrjunarliði Chelsea
Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Barcelona í Meistaradeild Evrópu í kvöld og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 19:30.

Barcelona hefur enn áhuga á Henry
Forráðamenn Barcelona neita því ekki að ef framherjinn Thierry Henry skrifar ekki undir samning við Arsenal fljótlega, muni félagið reyna að klófesta hann enda sé hann alltaf ofarlega á óskalistanum.

Fínt að vera vanmetinn
Alex McLeish, stjóri Glasgow Rangers, segist fagna því að mótherjar liðsins í Meistaradeildinni skuli vera sigurvissir fyrir leikinn í kvöld, en liðsmenn spænska liðsins Villareal fögnuðu ákaft þegar ljóst varð að þeir fengju skosku meistarana sem mótherja í 16-liða úrslitunum.

Sissoko alvarlega meiddur
Meiðsli Mohamed Sissoko hjá Liverpool, sem fékk spark í andlitið í leiknum gegn Benfica í gær eru nokkuð alvarleg eins og óttast var, en eftir læknisskoðun í dag kom í ljós að hann er með skaddaða augnhimnu. Ekki er enn vitað hvort hann nær sér að fullu, eða hvenær hann getur þá snúið aftur á knattspyrnuvöllinn.

Mourinho yrði sáttur við markalaust jafntefli
Jose Mourinho segir að hann yrði sáttur ef lið hans Chelsea gerði markalaust jafntefli við Barcelona á Stamford Bridge í kvöld, en bætir við að hann sjái ekki að Barcelona standi betur að vígi þó liðið spili seinni leikinn á heimavelli sínum.

Mikið sálfræðistríð á Stamford Bridge
Leikmenn Barcelona voru í dag reknir af æfingu sinni í Stamford Bridge, þar sem þeir mæta Chelsea í Meistaradeildinni í kvöld, en leikmennirnir höfðu farið fram á að æfa lengur en þann klukkutíma sem þeim var fenginn til að æfa við þau lélegu vallarskilyrði sem þar eru nú eftir miklar rigningar í London.

Vissi að við mundum tapa
David Beckham var alls ekki sáttur við leik sinna manna í Real Madrid á heimavelli gegn Arsenal í Meistaradeildinni í gær, en Real tapaði leiknum 1-0 og á erfitt verkefni fyrir höndum á Englandi. "Þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum, vissi ég að við mundum tapa," sagði Beckham. "Við börðumst ekki nógu vel og hefðum getað tapað stærra."

Miður sín vegna augnameiðsla Sissoko
Mohamed Sissoko er ennþá á spítala í Lisbon eftir að hafa fengið spark í augað í leik Liverpool og Benfica í Meistaradeildinni í gær. Beto, leikmaðurinn sem sparkaði í Sissoko, er miður sín vegna atvikisins.

Arsenal lagði Real Madrid
Leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið. Arsenal gerði sér lítið fyrir og skellti Real Madrid á útivelli 1-0. Það var Thierry Henry sem skoraði sigurmark enska liðsins með glæsilegu einstaklingsframtaki í upphafi síðari hálfleiks. Liverpool tapaði 1-0 fyrir Benfica.

Ballack með eina mark kvöldsins
Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu og það er miðjumaðurinn sterki Michael Ballack hjá Bayern Munchen sem á þann vafasama heiður að vera eini leikmaðurinn sem er búinn að skora mark það sem af er. Ballack kom sínum mönnum í Bayern yfir gegn AC Milan á 23. mínútu með stórglæsilegu skoti.

Gerrard á varamannabekk Liverpool
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool er á varamannabekk liðsins í kvöld þegar það sækir Benfica heim í Meistaradeildinni, en hann á við smávægileg meiðsli að stríða. Þeir Alexander Hleb og Jose Antonio Reyes koma hinsvegar inn í lið Arsenal sem sækir Real Madrid heim í sjónvarpsleiknum á Sýn sem hefst nú innan tíðar.

Benitez varar við bjartsýni
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur varað stuðningsmenn félagsins við of mikilli bjartsýni fyrir leikina gegn portúgalska liðinu Benfica í Meistaradeildinni, en liðin mætast í Portúgal í kvöld og verður leikurinn í beinni útsendingu á Sýn Extra klukkan 19:35.

Real er betra nú en áður
Thomas Gravesen, leikmaður Real Madrid, líkar lífið mun betur á Bernabeu eftir að Wanderlei Luxemburgo hætti sem þjálfari liðsins og segir lið Arsenal ekki eiga von á góðu í viðureign liðanna í kvöld.

Við erum fullir sjálfstrausts
Felix Magath, stjóri Bayern Munchen, segir sína menn fulla sjálfstrausts fyrir leikinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni annað kvöld, en Bayern hefur unnið alla 15 leiki sína á nýja heimavellinum sem tekinn var í notkun í sumar.

Mourinho er besti leikmaður Chelsea
Portúgalski miðjumaðurinn Deco, sem áður lék undir stjórn Mourinho hjá Porto þegar liðið vann Meistaradeildina á sínum tíma, segir að Mourinho sé besti leikmaður Chelsea.

Villareal hefur ekki áhyggjur af Rangers
Leikmenn Villareal hafa ekki miklar áhyggjur af andstæðingum sínum Glasgow Rangers í Meistaradeildinni og segja varnarmenn liðsins seina og luralega. Leikstjórnandinn knái Juan Roman Riquelme verður til í slaginn eftir rúmlega tveggja vikna fjarveru vegna meiðsla.

Bayern Munchen er sigurstranglegast
Fabio Capello, stjóri ítölsku meistaranna í Juventus, segir að Bayern Munchen sé sigurstranglegasta liðið í Meistaradeildinni af þeirri einföldu ástæðu að liðið hafi notið þess að fá langt vetrarfrí öfugt við liðin á Ítalíu, Spáni og Englandi.

Völlurinn er ekki svo slæmur
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur boðið liði Barcelona að æfa á æfingasvæði Chelsea fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni í stað þess að æfa á Stamford Bridge, því eins og áhorfendur Sýnar sáu um helgina, er völlurinn eitt moldarflag eftir miklar rigningar.

Beckham hlakkar til að mæta Arsenal
David Beckham, leikmaður Real Madrid, segist hlakka mikið til að mæta loks ensku liði í Meistaradeildinni, en lið hans leikur við Arsenal annað kvöld. Hann segist þó heldur hafa viljað mæta sínum gömlu félögum í Manchester United í keppninni.

Bergkamp gefur kost á sér í leikinn á Spáni
Hinn flughræddi framherji Arsenal, Dennis Bergkamp, segist ætla að gefa kost á sér í fyrri leik Arsenal gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í næstu viku, en hann fer sjaldan í keppnisferðalög með liðinu í Meistaradeildinni því hann neitar að fljúga.