
Sjáðu þegar Ísak áttaði sig á því hverjum hann myndi mæta í Meistaradeildinni
Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður danska liðsins FCK, fylgdist að sjálfsögðu vel með þegar dregið var í riðla í Meistaradeild Evrópu í dag. Dönsku meistararnir voru í pottinum í fyrsta skipti í sex ár og mæta meðal annars Englandsmeisturum Manchester City.