

NBA
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

NBA í nótt: Kærkominn sigur hjá New Jersey
New Jersey Nets vann í nótt sinn fyrsta sigur í fjórum leikjum er liðið lagði Atlanta Hawks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 107-101.

Leikmenn í NBA mögulega í verkfall á næsta ári
Svo gæti farið að næsta tímabil í NBA-deildinni í körfubolta fari seinna af stað en vanalega vegna verkfalls leikmanna.

Artest langar að spila í NFL-deildinni
Ólíkindatólið Ron Artest hjá LA Lakers íhugar nú alvarlega þann möguleika að reyna að komast að hjá liði í NFL-deildinni þegar körfuboltaferill hans er á enda.

NBA í nótt: Stórstjörnurnar í Miami steinlágu fyrir Indiana
Stjörnum prýtt lið Miami heldur áfram að hiksta í NBA-deildinni í körfubolta en Dwyane Wade hefur aldrei skotið verr á ferlinum en þegar að Miami tapaði fyrir Indiana í nótt, 93-77.

NBA í nótt: Toronto vann Boston
Toronto vann í nótt góðan sigur á Boston í nótt er fjórir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta.

Þjálfari Phoenix Suns bannar Steve Nash að spila
Alvin Gentry, þjálfari Phoenix Suns, veit vel að Steve Nash vill spila með liðinu þrátt fyrir að vera glíma við meiðsli í nára. Gentry hefur samt látið stjörnuleikmann sinn hvíla í síðustu tveimur leikjum sem hafa báðir tapast.

NBA: Memphis vann Miami og San Antonio búið að vinna tíu í röð
Miami Heat tapaði fimmta leiknum sínum á tímbilinu í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið heimsótti Memphis Grizzlies. Oklahoma City Thunder vann hinsvegar aftur án Kevin Durant, San Antonio Spurs vann sinn tíunda leik í röð og Utah Jazz kom í sjötta sinn til baka í fjórða leikhluta á tímabilinu.

NBA: Oklahoma vann í Boston án Kevin Durant
Oklahoma City Thunder liðið er allt að koma til eftir erfiða byrjun og í nótt vann liðið 89-84 sigur á Boston í Boston í NBA-deildinni í körfubolta. San Antonio Spurs vann sinn níunda leik í röð og er með besta sigurhlutfallið í deildinni ásamt New Orleans Hornets sem hefur líka unnið 10 af fyrstu 11 leikjum sínum. Miami og Lakers unnu líka sína leiki í nótt.

NBA: Phoenix átti aldrei möguleika gegn Orlando án Nash
Orlando Magic vann öruggan 105-89 sigur á Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en Phoenix-liðið var ekki mikil mótspyrna fyrir Dwight Howard og félaga enda án leikstjórnanda síns Steve Nash sem er meiddur á nára.

Parker sagður hafa haldið við eiginkonu Brent Barry
Eins og flestum ætti að vera kunnugt hefur leikkonan Eva Longoria sótt um skilnað frá Tony Parker, leikmanni San Antonio Spurs. Ástæðan er framhjáhald leikmannsins.

Oden meiddur á ný - sorgarsagan endurtekur sig í Portland
Meiðslasaga miðherjans Greg Oden hjá NBA liðinu Portland TrailBlazers ætlar engan endi að taka. Í gær greindu forráðamenn liðsins frá því að Oden yrði ekki meira með á tímabilinu vegna hnémeiðsla en Oden hefur aðeins leikið 82 leiki af 328 mögulegum frá því hann var valinn fyrstur í háskólavalinu sumarið 2007.

NBA: Miami, Lakers og Boston unnu öll örugga sigra í nótt
Miami Heat, Los Angeles Lakers og Boston Celtics unnu öll leiki sína örugglega í NBA-deildinni í nótt, New Orleans vann Dallas, San Antonio Spurs vann sinn áttunda leik í röð og New York Knicks endaði sex leikja taphrinu.

NBA: Lakers aftur á sigurbraut en New York tapar og tapar
Los Angeles Lakers endaði tveggja leikja taphrinu sína með því að vinna útisigur á Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. New York Knicks tapaði sínum sjötta leik í röð en Chicago Bulls er að sama skapi búið að vinna fjóra síðustu leiki sína.

Flottustu tilþrif NBA-deildarinnar í nótt - myndband
Það fóru fram sjö leikir í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og á heimasíðu NBA-deildarinnar má að venju finna skemmtileg myndbönd frá leikjunum næturinnar.

NBA: Dallas fyrsta liðið til að vinna New Orleans
Sigurganga New Orleans Hornets í NBA-deildinni í körfubolta endaði í nótt þegar liðið tapaði 98-95 í Dallas en Chris Paul og félagar höfðu unnið átta fyrstu leiki sína á tímabilinu.

Steve Nash eignaðist barn og tilkynnti um skilnað á sama deginum
Steve Nash og kona hans Alejandra Nash eignuðust sitt annað barn um helgina en það kom flatt upp á marga að um leið tilkynnti þessi snjalli leikstjórnandi Phoenix Suns að hjónin væru að skilja eftir fimm ára hjónbarn.

NBA: Lakers tapaði fyrsta heimaleiknum - sjö í röð hjá Spurs
Phoenix Suns skoraði 22 þriggja stiga körfur og varð fyrsta liðið til þess að vinna NBA-meistara Los Angeles Lakers á heimavelli þeirra í Staples Center í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio Spurs vann jafnframt sinn sjöunda leik í röð með útisigri í Oklahoma City.

Nelson tryggði Orlando sigur
Jameer Nelson tryggði Orlando Magic sigur gegn New Jersey Nets í NBA deildinni í körfuknattleik. Leikstjórnandinn skoraði 4 sekúndum fyrir leikslok og kom í veg fyrir að Orlando tapaði sínum þriðja leik í röð. Lokatölur 91-90.

Enn og aftur kom Utah til baka og vann
Gott gengi Utah Jazz í NBA-deildinni hélt áfram í nótt er liðið vann sinn fjórða leik í röð. Að þessu sinni lagði liðið Atlanta Hawks.

Boston með gott tak á Miami
Stjörnulið Miami Heat mátti sætta sig við tap á heimavelli gegn Boston Celtics í nótt. Þetta var annað tap Miami í vetur fyrir Celtics en liðin mættust einnig í fyrstu umferð.

NBA: Utah skellti Orlando
Fjöldi leikja fór fram í NBA-deildinni í nótt og þar bar helst til tíðindi að Utah Jazz skellti Orlando og er þar með búið að leggja bæði Flórídaliðin á tveimur dögum.

NBA: Sigur hjá Lakers en tap hjá Miami
LA Lakers er enn með fullt hús stiga í NBA-deildinni eftir sigur á Minnesota Timberwolves í nótt. Úlfarnir eru þar með búnir að tapa öllum átta leikjum sínum í vetur en það gerðist síðast leiktíðina 1997-98.

NBA í nótt: Dallas stöðvaði Boston
Dallas Mavericks stöðvaði sigurgöngu Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta í nótt með tveggja stiga sigri í leik liðanna, 89-87.

NBA í nótt: Lakers enn ósigrað
LA LAkers er enn ósigrað í NBA-deildinni í körfubolta eftir sigur á Portland í nótt, 121-96.

NBA í nótt: Ofurþríeykið með 73 stig
Miami Heat komst aftur á beinu brautina í nótt með sigri á New Jersey Nets í NBA-deildinni í nótt, 101-89.

Stuðningsmenn Cleveland svara Nike-auglýsingu LeBron
Stuðningsmenn Cleveland eru enn hundfúlir út í LeBron James fyrir að fara frá liðinu og ganga til liðs við Miami Heat.

NBA í nótt: New Orleans vann stjörnulið Miami
New Orleans hefur byrjað frábærlega á tímabilinu í NBA-deildinni í haust og gerði sér lítið fyrir og vann stjörnum prýtt lið Miami í nótt, 96-93.

LeBron vill spila á ÓL í London eins og Kobe
Kobe Bryant braut ísinn fyrir NBA-stjörnurnar í vikunni þegar hann sagðist vera tilbúinn að gefa kost á sér í bandaríska körfuboltalandsliðið fyrir Ólympíuleikana í London árið 2012.

NBA í nótt: Durant og Oklahoma aftur á beinu brautina
Eftir tvo tapleiki í röð tókst Kevin Durant og félögum í Oklahoma City Thunder aftur að komast á beinu brautina með naumum sigri á Portland í framlengdum leik í NBA-deildinni í nótt, 107-106.

NBA í nótt: Pierce fór á kostum
Paul Pierce fór á kostum þegar að Boston vann sigur á Milwaukee í framlengdum leik í nótt, 105-102.