NBA: New Orlenas vann San Antonio Fyrstu leikirnir í annarri umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni fóru fram í gær. New Orleans vann San Antonio og Detroit vann Orlando. Körfubolti 4. maí 2008 11:35
Kobe er bestur Samkvæmt frétt Los Angeles Times hefur Kobe Bryant verið valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar þetta tímabilið en þetta er í fyrsta sinn sem hann hlýtur útnefninguna. Körfubolti 3. maí 2008 12:22
NBA: Ótrúlegur sigur Atlanta Það var nóg um að vera í NBA-deildinni í nótt. Atlanta vann Boston og jafnaði rimmunna í 3-3 en Utah og Cleveland komust áfram í aðra umferð. Körfubolti 3. maí 2008 11:41
Tvíhöfði í beinni í NBA í nótt Körfuboltaáhugamenn fá nóg fyrir sinn snúð í kvöld þegar hægt verður að sjá tvo leiki í úrslitakeppninni í beinni útsendingu í sjónvarpi. Sjötta viðureign Atlanta og Boston verður sýnd beint á miðnætti á Stöð 2 Sport og strax þar á eftir verður bein útsending frá sjötta leik Utah og Houston á NBA TV. Leikurinn hefst um kl. 02:30. Körfubolti 2. maí 2008 17:15
Durant nýliði ársins Kevin Durant, leikmaður Seattle, var kjörinn nýliði ársins í NBA-deildinni í körfubolta. Al Horford hjá Atlanta varð í öðru sæti. Körfubolti 2. maí 2008 09:48
NBA: Detroit kláraði Philadelphia Aðeins einn leikur fór fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt en Detroit vann öruggan sigur á Philadelphia og tryggði sér þar með sæti í annarri umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 2. maí 2008 09:00
Cleveland 3-2 yfir gegn Washington Tveir leikir voru í úrslitakeppni NBA í nótt. Boston vann Atlanta á heimavelli sínum og komst í 3-2 í rimmunni. Boston þarf nú einn sigur í viðbót til að komast áfram. Washington vann Cleveland naumlega á útivelli og minnkaði muninn en Cleveland leiðir einvígið 3-2. Körfubolti 1. maí 2008 11:15
Avery Johnson rekinn frá Dallas Avery Johnson var í kvöld rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Dallas Mavericks í NBA deildinni, strax daginn eftir að liðið féll úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar - annað árið í röð. Körfubolti 30. apríl 2008 18:44
Atlanta-Boston beint á Sport á föstudagskvöldið Sjötti leikur Atlanta Hawks og Boston Celtics í úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport á miðnætti á föstudagskvöldið. Fimmti leikur liðanna er á dagskrá í kvöld klukkan 0:30 og er sýndur beint á NBA TV rásinni. Körfubolti 30. apríl 2008 17:18
Pétur tekur við Grindavík Pétur Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Grindavíkur í körfubolta og tekur hann við starfinu af Igor Beljanski. Körfubolti 30. apríl 2008 10:15
NBA í nótt: Phoenix og Dallas úr leik Tímabilið er búið hjá þeim Shaquille O'Neal og Jason Kidd þar sem lið þeirra, Phoenix og Dallas, duttu úr leik í úrslitakeppninni í NBA-deildinni í nótt. Körfubolti 30. apríl 2008 09:42
Byron Scott kjörinn þjálfari ársins í NBA Byron Scott hjá New Orleans Hornets hefur verið kjörinn þjálfari ársins í NBA deildinni. Undir stjórn Scott náði Hornets besta árangri í sögu félagsins í vetur og vann einnig riðil sinn í fyrsta skipti í sögunni. Körfubolti 29. apríl 2008 17:09
Riley hættur og Brown til Charlotte Það er mikið að gerast í þjálfaramálunum NBA-deildarinnar þessa dagana. Pat Riley er hættur hjá Miami og Larry Brown hefur tekið við Charlotte. Körfubolti 29. apríl 2008 12:55
NBA: Lakers og Orlando áfram - Boston í vanda LA Lakers og Orlando Magic kláruðu sínar rimmur í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt en Boston tapaði óvænt öðrum leiknum í röð fyrir Atlanta. Körfubolti 29. apríl 2008 09:07
NBA: Enn líf í Phoenix New Orleans og Cleveland eru á góðri leið með að komast í undanúrslit sinna deilda en Detroit og Phoenix héldu lífi í sínum rimmum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í gær og nótt. Körfubolti 28. apríl 2008 09:30
Fer Phoenix í sumarfrí í kvöld? Fjórir leikir eru á dagskrá í kvöld og í nótt í úrslitakeppni NBA deildarinnar og verður stórleikur Phoenix og San Antonio sýndur beint á NBA TV sjónvarpsrásinni klukkan 19:30. Körfubolti 27. apríl 2008 15:30
Atlanta lagði Boston Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta í gærkvöldi og í nótt. Boston Celtics tapaði óvænt fyrir Atlanta, en LA Lakers, Orlando og Utah eru komin í sterka stöðu gegn mótherjum sínum. Körfubolti 27. apríl 2008 13:33
Denver - LA Lakers beint á Stöð 2 Sport í kvöld Þriðji leikur Denver Nuggets og LA Lakers í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 21:25 í kvöld. Lakers vann fyrstu tvær viðureignir liðanna á heimavelli sínum en í kvöld eigast liðin við í Colorado. Körfubolti 26. apríl 2008 16:45
Vincent rekinn frá Bobcats Þjálfarinn Sam Vincent hefur verið látinn taka pokann sinn hjá Charlotte Bobcats í NBA deildinni eftir aðeins eitt ár í starfi. Gamla brýnið Lary Brown hefur þegar verið orðaður við starfið hjá Michael Jordan og félögum, en hann hætti forsetastöðu sinni hjá Philadelphia fyrir nokkru. Körfubolti 26. apríl 2008 15:00
Philadelphia burstaði Detroit - Phoenix í vondum málum Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt og þar mátti heldur betur sjá óvænt tíðindi. Philadelphia burstaði Detroit á heimavelli sínum, Dallas lagaði stöðu sína gegn New Orleans og Phoenix er komið í mjög vond mál gegn meisturum San Antonio. Körfubolti 26. apríl 2008 08:30
Mikið fjör í körfunni í nótt Það verður nóg um að vera í NBA deildinni í körfubolta í kvöld og þar af geta sjónvarpsáhorfendur fengið tvo leiki beint í æð í kvöld. Leikur Toronto og Orlando frá því í gærkvöld verður sýndur á Stöð 2 Sport skömmu fyrir miðnætti og þá verður bein útsending á NBA TV rásinni frá leik Philadelphia og Detroit klukkan 23:00. Körfubolti 25. apríl 2008 21:57
Pierce klár í slaginn með Boston Framherjinn Paul Pierce hjá Boston verður klár í slaginn annað kvöld þegar Boston sækir Atlanta heim í þriðja leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA. Körfubolti 25. apríl 2008 18:27
Houston, Orlando og Washington tóku við sér Þrír leikir voru í úrslitakeppni NBA í nótt. Í öllum þeim leikjum tókst liðinu sem var undir 2-0 í rimmunum að vinna og minnka því muninn í 2-1. Körfubolti 25. apríl 2008 09:18
Kobe Bryant fór á kostum í sigri Lakers Kobe Bryant átti sannkallaðan stjörnuleik fyrir Los Angeles Lakers sem vann Denver 122-107 í úrslitakeppni NBA í nótt. Hann skoraði 49 stig og átti 10 stoðsendingar. Körfubolti 24. apríl 2008 10:22
Þrjú lið komust í 2-0 í nótt New Orleans, San Antonio og Orlando unnu leiki sína í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og hafa öll komist í 2-0 í sínum einvígjum. Allir þrír leikirnir í nótt unnustu á heimavöllum. Körfubolti 23. apríl 2008 09:06
Kevin Garnett er varnarmaður ársins í NBA Framherjinn Kevin Garnett hjá Boston Celtics var í dag kjörinn varnarmaður ársins í NBA deildinni. Varnarmaður ársins í fyrra, Marcus Camby hjá Denver, varð annar í kjörfinu og Shane Battier frá Houston þriðji. Körfubolti 22. apríl 2008 19:22
Skiles tekur við Bucks Scott Skiles, fyrrum þjálfari Chicago Bulls, hefur gert fjögurra ára samning við Milwaukee Bucks í NBA deildinni. Mikil uppstokkun hefur verið í herbúðum liðsins undanfarið og nýr framkvæmdastjóri lét það vera sitt fyrsta verk að reka þjálfarann og ráða nýjan í staðinn. Körfubolti 22. apríl 2008 17:38
Utah og Cleveland leiða 2-0 Tveir leikir voru í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir þá leiki eru það Cleveland Cavaliers og Utah Jazz sem eru komin í 2-0 í sínum einvígjum. Körfubolti 22. apríl 2008 09:00
NBA: Philadelphia skellti Detroit Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA deildinni í nótt. Óvæntustu úrslitin urðu í Detroit þar sem Philadelphia skellti heimamönnum 90-86 í fyrsta leik liðanna. Körfubolti 21. apríl 2008 09:42
NBA í nótt: San Antonio vann Phoenix í tvíframlengdum leik Úrslitakeppnin í NBA-deildinni fór af stað í gær og óhætt að segja að hún hafi byrjað með miklum stæl. Körfubolti 20. apríl 2008 12:29