Phoenix 1 - Dallas 0 Átta daga hvíld eftir sigurinn á Memphis í fyrstu umferðinni, reyndist liði Phoenix Suns greinilega vel og ekki var að sjá ryð í leik þeirra þegar þeir völtuðu yfir Dallas Mavericks, 127-102 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum vesturdeildar í nótt. Sport 10. maí 2005 00:01
Detroit 1 - Indiana 0 Í fyrsta skiptið á þessu ári, gátu Detroit Pistons og Indiana Pacers einbeitt sér að því að leika körfuknattleik þegar þau mættust í The Palace í Detroit. Heimamenn lögðu grunninn að góðum 96-81 sigri með góðri rispu í öðrum leikhluta og hafa náð forystu í einvíginu. Sport 10. maí 2005 00:01
Miami 1 - Washington 0 Washington Wizards fengu í gær að vita hverju þeir eiga von á gegn Miami Heat í undanúrslitum austurdeildarinnar. Shaquille O´Neal var í villuvandræðum allan tímann og Dwayne Wade náði sér ekki á strik í leiknum, en Miami vann engu að síður auðveldan 105-86 sigur og hefur tekið forystu, 1-0. Sport 9. maí 2005 00:01
San Antonio 1 - Seattle 0 San Antonio var ekki á þeim buxunum að tapa opnunarleik í einvígi á heimavelli sínum aftur og þegar þeir ná sér á strik eins og gegn Seattle, sem missti tvo af aðalskorurum sínum í meiðsli snemma leiks, þarf ekki að spyrja að leikslokum eins og 103-81 sigur þeirra í nótt ber með sér. Sport 9. maí 2005 00:01
Boston 3 - Indiana 4 Félagar Reggie Miller voru ekki á því að láta gamla manninn spila sinn síðasta leik í gærkvöldi, þegar þeir mættu ákveðnir til leiks til Boston í leik 7 og höfðu stórsigur 97-70. Tapið fer í sögubækurnar sem eitt versta tap Boston á heimavelli í úrslitakeppni. Sport 8. maí 2005 00:01
Dallas 4 - Houston 3 Eftir að hafa lent undir 2-0 á heimavelli sínum í einvíginu við Houston Rockets, náðu liðsmenn Dallas Mavericks að snúa seríunni sér í hag. Markmið þeirra í sjöunda leiknum í nótt var að reyna að laga varnarleikinn og vona það besta. Niðurstaðan varð stærsti sigur í sjöunda leik í sögu úrslitakeppninnar, 116-76 og Dallas mætir því Phoenix í næstu umferð. Sport 8. maí 2005 00:01
Chicago 2 - Washington 4 Það var engu líkara en lið Washington hefði verið að vinna sjálfan meistaratitilinn í nótt, þegar liðið lagði Chicago Bulls 94-91 á heimavelli sínum, svo mikil voru fagnaðarlætin. Flestir hefðu líka fagnað því að komast í aðra umferð í úrslitakeppni í fyrsta sinn í meira en 20 ár. Sport 7. maí 2005 00:01
Boston 3 - Indiana 3 Einvígi Boston og Indiana hefur verið sannkölluð rússíbanareið og á því varð engin breyting í nótt, þegar Boston knúði fram oddaleik á heimavelli sínum, með 92-89 sigri í framlengingu í Indiana. Sport 6. maí 2005 00:01
NBA á Sýn um helgina Tveir leikir úr úrslitakeppni NBA verða í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina, þar sem allt verður í járnum í lokaleikjum fyrstu umferðarinnar og áhorfendur gætu orðið vitni að síðasta leik Reggie Miller hjá Indiana. Sport 6. maí 2005 00:01
Dallas 3 - Houston 3 Tracy McGrady fékk litla hjálp þegar hann lék með Orlando á sínum tíma, enda hefur hann aldrei komist í aðra umferð í úrslitakeppninni. Í Houston er hann með öllu betri leikmenn í kring um sig og þeir gerðu gæfumuninn í 101-83 sigri liðsins á Dallas í nótt. Sport 6. maí 2005 00:01
Nash valinn MVP Samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá ESPN í Bandaríkjunum, verður Steve Nash kosinn verðmætasti leikmaður ársins 2005 í NBA deildinni, eða Most Valuable Player, nú á sunnudaginn. Sport 6. maí 2005 00:01
San Antonio 4 - Denver 1 San Antonio Spurs virkuðu dálítið þreyttir, en þeir kláruðu engu að síður verkefnið og hafa slegið lið Denver Nuggets út úr keppni 4-1. eftir 99-89 sigur á heimavelli sínum í nótt. Sport 5. maí 2005 00:01
Chicago 2 - Washington 3 Eftir dramatískar lokamínútur og rosalegan endasprett, þurftu heimamenn í Chicago Bulls að sætta sig við 112-110 tap fyrir Washington Wizards, þar sem Gilbert Arenas skoraði sigurkörfuna þegar leiktíminn rann út og nú getur Washington liðið klárað dæmið á heimavelli í næsta leik. Sport 5. maí 2005 00:01
Detroit 4 - Philadelphia 1 Þegar mest liggur við, eru NBA meistararnir bestir. Sú varð að minnsta kosti raunin í nótt, þegar Detroit sló Philadelphia út úr úrslitakeppninni. Eftir að hafa leikið illa í þriðja leikfjórðungi í gær, stigu þeir á bensínið í lokaleikhlutanum og kláruðu dæmið. Pistons mæta annað hvort Indiana eða Boston í næstu umferð. Sport 4. maí 2005 00:01
Okafor nýliði ársins Samkvæmt áreiðanlegum heimildum úr NBA deildinni, hefur framherjinn Emeka Okafor verið valinn nýliði ársins í deildinni, eftir harða keppni við besta vin sinn Ben Gordon hjá Chicago Bulls. Sport 4. maí 2005 00:01
Seattle 4 - Sacramento 1 Ray Allen hjá Seattle vildi ekki þurfa að fara aftur til Sacramento og leika fyrir framan óða áhorfendur þeirra. Það sást á leik hans og félaga hans í gær, þegar þeir slógu Sacramento úr keppni með 122-118 sigri, þrátt fyrir hetjulega baráttu gestanna frá Kaliforníu. Sport 4. maí 2005 00:01
Boston 2 - Indiana 3 Indiana Pacers fengu óvænta hjálp í nótt þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Boston Celtics á þeirra heimavelli, 90-85 og geta nú komist áfram í átta liða úrslitin með sigri í Indiana í næsta leik. Sport 4. maí 2005 00:01
Kwame Brown settur í bann Framherjinn Kwame Brown hjá Washington Wizards, hefur verið settur í bann út úrslitakeppnina af forráðamönnum liðsins, eftir að sló í brýnu milli hans og þjálfara liðsins. Sport 4. maí 2005 00:01
Molar dagsins í NBA Heimildir herma að nýliði Chicago Bulls, Ben Gordon, verði valinn besti varamaður deildarinnar á næstu dögum. Gordon hefur verið frábær með liði Chicago í vetur og reyndist liði sínu mikilvægur undir lokin í fjölmörgum leikjum. Sport 3. maí 2005 00:01
Dallas 3 - Houston 2 Heilladísirnar virðast vera að snúast á band Dallas Mavericks, en liðið lagði Houston Rockets í fyrsta skipti á heimavelli í nótt 103-100 og hefur nú náð forystu í einvígi liðanna. Sport 3. maí 2005 00:01
Chicago 2 - Washington 2 Lið Washington Wizards er þekkt fyrir flest annað en öflugan varnarleik, en í nótt sýndu þeir hvers þeir eru megnugir þeim megin vallarins og Juan Dixon í banastuði, jöfnuðu þeir metin í seríunni við Chicago með 117-99 sigri í nótt. Sport 3. maí 2005 00:01
San Antonio 3 - Denver 1 Liði Denver hefur ekki tekist að færa sér í nyt meiðslum hrjáða og slaka frammistöðu lykilmanna San Antonio í einvígi liðanna. Það var kom því ekki á óvart að Spurs færu með sigur af hólmi, 126-115 í framlengingu í nótt, því þeir fengu góða hjálp frá Tim Duncan og Tony Parker, sem hafa látið afar lítið fyrir sér fara fram að þessu. Sport 3. maí 2005 00:01
Seattle 3 - Sacramento 1 Ray Allen skaut lið Seattle Supersonics í vænlega stöðu í einvíginu við Sacramento Kings í nótt. Eftir að Sacramento hafði leitt frá upphafsmínútum leiksins, sigu Sonics framúr á lokakaflanum með Allen sjóðandi heitan og unnu sigur 115-102. Sport 2. maí 2005 00:01
Detroit 3 - Philadelphia 1 Þegar í harðbakkann slær hjá meisturum Detroit Pistons, geta þeir reitt sig á besta mann úrslitanna í fyrra, Chauncey Billups. Þegar Pistons stóðu frammi fyrir því að Philadelphia væri í þann mund að jafna metin í einvígi liðanna, kom Billups til skjalanna og var maðurinn á bak við 97-92 sigur í fjórða leiknum. Sport 2. maí 2005 00:01
Miami 4 - New Jersey 0 Dwayne Wade sá til þess að Miami Heat sópaði liði New Jersey Nets úr keppni 4-0 í gær, þrátt fyrir að Shaquille O´Neal væri á annari löppinni. Wade skoraði 34 stig í 110-97 sigri Miami í gær og nú fær stóri maðurinn að minnsta kosti viku til að jafna sig af meiðslum sínum. Sport 2. maí 2005 00:01
Phoenix 4 - Memphis 0 Memphis Grizzlies fundu engin svör við stormsveit Phoenix Suns í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og eru komnir í sumarfrí, eftir að Suns unnu fjórða leik liðanna í nótt 123-115. Memphis börðust hetjulega í síðasta leiknum, en voru skotnir í kaf. Sport 2. maí 2005 00:01
Chicago 2 - Washington 1 Washington Wizards þurftu á vítamínssprautu að halda fyrir þriðja leikinn við Chicago Bulls í nótt og fengu hana frá stóru strákunum sínum sem fram að þessu höfðu haft hægt um sig í einvíginu. Washington sigraði 117-99, ekki síst fyrir óvænt framlag Etan Thomas í sóknarleiknum, og hefur nú minnkað muninn í 2-1 í seríunni. Sport 1. maí 2005 00:01
San Antonio 2 - Denver 1 Það var ekki spilaður sérstaklega fallegur körfuknattleikur í Denver í gærkvöldi, þegar San Antonio Spurs náðu aftur heimavallarréttinum í einvígi liðanna með 86-78 sigri. Liði San Antonio er þó alveg sama og þeir eru nú komnir í ökumannssætið í seríunni. Sport 1. maí 2005 00:01
Dallas 2 - Houston 2 Í furðulegasta einvígi fyrstu umferðar úrslitakeppninnar, eru Dallas Mavericks búnir að jafna metin í 2-2 gegn Houston Rockets, þar sem allir leikirnir hafa unnist á útivelli. Jason Terry var hetja Dallas í nótt, þegar hann bætti upp fyrir enn einn slakan leikinn frá Dirk Nowitzki, skoraði 32 stig og tryggði Dallas sigur, 97-93. Sport 1. maí 2005 00:01
New Jersey-Miami á Sýn í kvöld Fjórði leikur New Jersey Nets og Miami Heat verður í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld, klukkan 19:30. Miami getur með sigri orðið fyrsta liðið til að tryggja sig í aðra umferð úrslitakeppninnar, en staðan í einvíginu er 3-0 fyrir Heat. Sport 1. maí 2005 00:01