Neytendur

Neytendur

Neytendafréttir af íslenskum markaði.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatna­skil

Fjölmiðlanefnd hefur lagt 500 þúsund króna stjórnvaldssekt á Sýn hf. fyrir að hafa brotið gegn grein fjölmiðlalaga um vernd barna gegn skaðlegu efni með sýningu úr þremur þáttaröðum fyrir klukkan 21 og 22 sem þykja ekki við hæfi barna undir tólf ára. Fjölmiðlanefnd kannaði málið eftir að þeim barst kvörtun um sýningu sjónvarpsefnisins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Heims­markaðs­verð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð”

Helgi Vilhjálmsson, forstjóri Góu, segir að þegar horft sé til verðs í verslunum megi sjá að fleiri þættir ráði verðlagningu en aðeins heimsmarkaðsverð á kakói verði á súkkulaði. Heimsmarkaðsverð á kakói hrundi í síðasta mánuði og Helgi segir fyrirtækið tilbúið að taka hluta af sveiflum á sig.

Neytendur
Fréttamynd

Skipti ekki máli hvaðan olían er

Framkvæmdastjóri N1 segir mikilvægt að umræða um verðlag á eldsneyti og áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu hér á landi byggi á staðreyndum. Olíufélögin hafa verið nokkuð gagnrýnd vegna verðhækkana í kjölfar árása á Íran, meðal annars af þingmanni og FÍB.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði

Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki.

Neytendur
Fréttamynd

Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó

Neytendastofa hefur nú til skoðunar tíu ábendingar vegna ofrukkunar fargjalda hjá Strætó. Notendur Android-síma hafa lent í því að vera rukkaðir um fargjald þó svo að þeir séu með áskriftarkort í símanum. Jóhannes Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Strætó segir einhverja tugi hafa tilkynnt slíka rukkun til Strætó og þær hafi allar verið endurgreiddar.

Neytendur
Fréttamynd

Sönnuðu ekki full­yrðingar um lækninga­mátt og fá háa sekt

ST. Import ehf., sem rekur vefverslunina Snjalltæki.store, hefur verið sektað um tvær milljónir króna fyrir fjölda brota á ýmsum lögum um neytendavernd, meðal annars vegna fullyrðinga um meintan lækningamátt ýmissa vara. Vörurnar voru meðal annars sagðar geta komið í veg fyrir hárlos, losað fólk við appelsínuhúð og linað verki.

Neytendur
Fréttamynd

Boðar ó­dýrara súkku­laði í sumar vegna hruns á kakóverði

Framkvæmdastjórar Nóa Síríus og Freyju eiga ekki von á því að verð á súkkulaði lækki mikið núna um páska þó svo að heimsmarkaðsverð á kakói hafi ekki verið lægra í þrjú ár. Stjórnvöld í Gana og á Fílabeinsströndinni lækkuðu verðið vegna lítillar eftirspurnar. 

Neytendur
Fréttamynd

Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur

Einn þekktasti sykraði gosdrykkur í heimi er kominn aftur í búðir í upprunalegri mynd. Einn mesti aðdáandi drykkjarins sem ekki hefur verslað við Ölgerðina í tæp tvö ár vegna málsins hefur tekið gleði sína á ný.

Neytendur
Fréttamynd

Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi aug­lýsinga

Neytendastofa hefur sektað Norðursiglingu ehf. um eina og hálfa milljón króna fyrir að auglýsa umhverfisvænar hvalaskoðanir með óskýrum hætti. Fullyrðingar um umhverfisáhrif fyrirtækisins þyrftu að vera sannreynanlegar. Norðursiglingum hefur verið bannað að nota fullyrðingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir.

Neytendur
Fréttamynd

Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vit­laust festir

Samgöngustofa minnir á mikilvægi þess að huga vel að börnum í bíl og að þau séu í stól við hæfi miðað við aldur. Ökumenn geta fengið allt að 30 þúsund króna sekt fyrir að nota ekki réttan öryggisbúnað fyrir barn í bíl. 

Neytendur
Fréttamynd

Ís­lenskir barir skoða næturopnun á stórleikjum HM

Bareigendur eru farnir að velta fyrir sér næturopnun á meðan heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu stendur næsta sumar. Sparkspekingar hér á landi þurfa að setja sig í stellingar vegna tímamismunar en mótið fer fram í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Fyrir vikið hefjast sumir leikir þegar flestir eru farnir að sofa.

Fótbolti
Fréttamynd

Tryggingar lækki veru­lega verði ráðist í nauð­syn­legar úr­bætur

Neytendur gætu sparað sér háar fjárhæðir ef farið yrði í úrbætur á íslenskum tryggingamarkaði að mati Neytendasamtakanna. Bótakerfi tryggingafélaganna sé óþarflega flókið og fáir hafi yfirsýn yfir alla anga þess. Formaður Neytendasamtakanna segir umtalsvert svigrúm til hagræðingar, einföldunar og aukins gagnsæis.

Innlent
Fréttamynd

Á leið á flug­völlinn þegar fluginu var flýtt

Aldísi Leoní Rebora brá heldur betur í brún í lok janúar þegar hún fékk tölvupóst um að hún hefði einungis fimmtíu mínútur til að ná flugi til London. Flugið var það fyrsta á löngu ferðalagi frá Íslandi til Ástralíu þar sem hún stundar nám. Sannarlega engin óskabyrjun.

Lífið
Fréttamynd

Á að fá endur­greidd gler eftir gallaða sjónmælingu

Fyrirtæki sem seldi konu gleraugu með glerjum sem hentuðu henni ekki þarf að endurgreiða henni glerin eftir að kærunefnd vöru- og þjónustukaupa kvað upp úrskurð um kvörtun konunnar. Deilt var um hvort að sjónmæling sem gerð var á konunni hafi verið nákvæm.

Neytendur