

Neytendur
Neytendafréttir af íslenskum markaði.

62 prósent rekstraraðila í miðbænum enn ósáttur
Um helmingur borgarbúa er hlynntur göngugötum í miðborg Reykjavíkur. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem Zenter rannsóknir framkvæmdi fyrir Miðborgina okkar og Samtök verslunar og þjónustu.

Skerpa þurfi á fyrirbyggjandi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum
Formaður Bændasamtaka Íslands segir niðurstöður Matvælastofnunar um sjúkdómsvaldandi bakteríur í íslensku lamba- og nautakjöti koma á óvart. Rannsaka þurfi málin betur og skerpa á fyrirbyggjandi aðgerðum í sláturhúsum og kjötvinnslum. Skoðunin hafi hins vegar leitt í ljós sterka stöðu svína- og kjúklingakjöts.

Landinn er sólginn í ís í sól og veðurblíðunni
Íssalar merkja mikla söluaukningu á ís samanborið við sama tímabil í fyrra. Mannað er á vaktir í ísbúðum eftir veðurspánni og eru hlutastarfsmenn nánast í fullri vinnu. Eigandi ísbúðarinnar Valdísar segir ísinn hvetja til útivistar.

Ljóst að sjúkdómsvaldandi bakteríur finnist ekki bara í útlenda kjötinu
Eiturmyndandi E. Coli-baktería fannst í fjölmörgum sýnum af íslensku kjöti í fyrra. Sóttvarnalæknir segir nú ljóst að sjúkdómsmyndandi bakteríur finnist í íslenskri kjötframleiðslu líkt og þeirri erlendu.

Korthöfum í Costco fækkar
Stuðningsfólk Miðflokksins er líklegast til að eiga Costco-kort.

Steikin má vera rauð að innan
Gen af E.coli bakteríunni fannst í þriðjungi sýna sem tekin voru af íslensku lambakjöti í fyrra.

Kynntu nýtt þjónustukort fyrir landsmönnum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynntu nýtt gagnvirkt þjónustukort á blaðamannafundi í Þjóðminjasafninu í dag.

ASÍ áréttar að lægsta verðið sé oftast í Bónus
ASÍ hefur sent frá sér tilkynningu vegna fréttar Fréttablaðsins í dag, sem einnig birtist á Vísi, þar sem fjallað var um gagnrýni framkvæmdastjóra Bónuss á framkvæmd verðlagskönnunar verðlagseftirlits ASÍ.

Bónus telur vísvitandi klekkt á fyrirtækinu
Krónan er ódýrasta matvöruverslunin á Íslandi samkvæmt nýjustu matarkörfu verðlagseftirlits ASÍ. Bónus er þriðja ódýrasta verslunin og er Fjarðarkaup næstódýrust, en aðeins nokkrum krónum munar á þeim og Bónus.

Forseti borgarstjórnar vill bjórkæli í búðina
Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og forseti borgarstjórnar, skorar á Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins að setja aftur kæla í Vínbúðina í Austurstræti.

Samgöngustofa útskýrir hvers vegna Procar var ekki svipt leyfi
Stofnunin óskaði eftir upplýsingum og gögnum frá öllum ökutækjaleigum með starfsleyfi en þær eru alls 127 talsins.

Krónan ódýrari en Bónus þökk sé Cheerios
10-11 er dýrasta verslunin samkvæmt verðkönnun á matvöru sem verðlagseftirlit ASÍ gerði 3. júní sl. Samkaup strax og Krambúðin eru næst dýrastar af þeim ellefu verslunum sem verð var kannað hjá.

Mandi kemur í stað Hlölla í Skeifunni
Skyndibitastaðurinn Mandi opnar á næstunni útibú í Skeifunni.

Segir niðurstöðu í máli Procar sýna að í lagi sé að svindla á Íslandi
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að niðurstaða Samgöngustofu í máli bílaleigunnar Procar þess efnis að hún haldi starfsleyfi sínu feli í sér skýr skilaboð um að í lagi sé að svindla á Íslandi.

„Við erum ekki alveg nógu gamlir til að hætta“
Jakob Jakobsson, betur þekktur sem Jakob í Jómfrúnni, hefur ásamt eiginmanni sínum opnað nýjan veitingastað í Hveragerði. Þeir hafa ekki setið auðum höndum frá því að þeir seldu Jómfrúnna árið 2015.

Fáir vilja sterk vín í verslanir
Milli 67 prósent og 68 prósent Íslendingar eru andvígir sölu á sterku víni í matvöruverslunum en á tæplega 17 prósent segjast því hlynntir í nýrri skoðanakönnun fyrirtækisins Maskínu.

Verðið komið niður í 211 krónur hjá Dælunni líka
Þeir sem keyptu sér bensín fyrir um 240 krónur á lítrann um helgina sjá líklega aðeins eftir því.

Orkan svarar 30 krónu lækkun Atlantsolíu
Stjórnendur Skeljungs hafa ákveðið að lækka eldsneytisverð á Dalvegi í Kópavogi og Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði um 30 krónur.

Lækka verð á bensínlítranum um 30 krónur
Atlantsolía lækkaði í dag verð á eldsneyti í rúmlega 211 krónur á lítrann á stöð sinn á Sprengisandi í Reykjavík. Er verðið nú á pari við það sem er á stöðinni í Kaplakrika.

Krónan tekur upp sykurreyrpoka og hættir með smápoka úr plasti
Frá og með 1. júní munu allar verslanir Krónunnar hætta að selja hefðbundna plastburðarpoka í verslunum sínum.

Værum ekki að endurvekja Laundromat nema dæmið gengi upp
Laundromat, taka tvö.

Landsbankinn og Arion innkalla endurskinsmerki vegna hættulegra efna
Í tilkynningu sem Arion banki og Landsbankinn sendu frá sér eru viðskiptavinir beðnir afsökunar.

Átta af tíu hækkuðu verðið og 10-11 mest
Vörukarfa ASÍ hækkaði í átta verslunum af tíu frá fyrstu vikunni í nóvember 2018 þangað til aðra vikuna í maí 2019. Mest hækkaði vörukarfan í 10-11 um 5,5% en minnst í Bónus og Kjörbúðinni um 0,3%.

Telur einsýnt að dýrtíðin sé að drepa ferðaþjónustuna
Sigurjón M. Egilsson ritstjóri segir þetta ekki flókið.

Ferðalagið með Flugrútunni komið í 6500 krónur
Nýundirritaðir kjarasamningar, bensínhækkun síðustu vikna og fækkun ferðamanna eftir fall WOW air eru helstu ástæður þess að Kynnisferðir hafa hækkað miðaverð í Flugrútuna.

Ilvu bannað að hafa vörur á útsölu lengur en í sex vikur
Neytendastofa hefur bannað húsgagnaversluninni Ilvu að hafa vörur á útsölu lengur en í sex vikur.

Íslendingar beðnir um að sýna erlendu starfsfólki velvild og þolinmæði
Bæði olíufélögin N1 og Olís hafa gripið til þess ráðs að setja upp skilti á íslensku á bensín- og þjónustustöðvum sínum þar sem viðskiptavinir eru beðnir um að sýna erlendu starfsfólki þolinmæði og velvild.

Ríkið viðurkennir fyrir ESA að Fríhöfnin sé einokunarverslun
Stjórnvöld hafa viðurkennt gagnvart ESA að Fríhöfnin sé ríkiseinkasala. Höfðu áður andmælt rökum ESA. Gert að setja reglur um vöruúrval og innkaup til að tryggja jafnræði á meðal birgja.

Arion banki lækkar óverðtryggða íbúðalánavexti
Arion banki hefur lækkað vexti óverðtryggðra íbúðalána og er þar m.a. horft til nýlegrar lækkunar stýravaxta Seðlabanka Íslands.

Kringlan plastpokalaus innan árs
Verslunarmiðstöðin Kringlan ætlar að vera plastpokalaus árið 2020 og verslunum Kringlunnar verður þá eingöngu heimilt að bjóða viðskiptavinum sínum upp á umhverfisvæna poka.