Enn tekur sonur við af föður sínum Í september í fyrra lýsti Kim Jong-il því yfir að sonur hans, Kim Jong-un, yrði eftirmaður hans sem leiðtogi Norður-Kóreu. Jong-un er á þrítugsaldri og tók þegar við valdamiklum embættum í Norður-Kóreu. Erlent 20. desember 2011 11:00
Kim Jong-il leiðtogi Norður-Kóreu látinn Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, er látinn 69 ára að aldri. Tilkynnt var um lát hans í ríkissjónvarpi landsins í morgun og gat þulurinn ekki haldið aftur af tárum sínum þegar hann las tilkynninguna. Erlent 19. desember 2011 06:00
Vill að sonur sinn taki við Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur ákveðið að yngsti sonur sinn taki við af sér, að því er fréttastofa í Suður-Kóreu heldur fram. Hins vegar bárust einnig fréttir af því að elsti sonur hans sé tilbúinn að taka við af föður sínum. Erlent 17. janúar 2009 06:45
El Baradei farinn frá Pyongyang Mohammed El Baradei yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofunarinnar er farinn frá Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu eftir tveggja daga viðræður við stjórnvöld þar um kjarnorkumál og áætlanir um að slökkva á eina kjarnaofni landsins. El Baradei gat ekki hitt aðal kjarnorkusamningamann landsins, sem sagðist of önnum kafinn til að hitta hann. Erlent 14. mars 2007 10:57
Flugskeyti með kjarnavopnum Í nýlegri skýrslu frá Bandaríkjunum er sagt líklegt að Norður-Kóreumenn hafi komist yfir flugskeytabúnað sem getur sent flugskeyti með kjarnavopnum alla leið til Bandaríkjanna. Tæknin virðist vera sambærileg þeirri sem finnst á rússneskum kafbátum sem bendir til þess að norðurkóresk stjórnvöld hafi fengið utanaðkomandi hjálp við þróun búnaðarins. Erlent 4. ágúst 2004 00:01