

Olís-deild karla
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Fram 26-23 | Sanngjarn sigur heimamanna
Framarar töpuðu síðustu sex leikjum sínum fyrir jól og þeir halda áfram að tapa nú þegar Olís deild karla er farin í gang að nýju. Í þetta skiptið voru það Mosfellingar sem höfðu betur gegn Frömurum

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Víkingur 33-16 | Davíð mætti Golíat í Eyjum
ÍBV tók á móti Víkingi í fyrsta leik liðanna eftir EM frí. Gestirnir voru heldur betur ryðgaðir, en heimamenn fóru með mjög öruggan 17 marka sigur

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Selfoss 29-34 | Selfyssingar skelltu Val í endurkomu Snorra
Selfoss vann gífurlega sterkan útsigur á Val í fimmtándu umferð Olís-deildar karla í kvöld, 34-29, en liðin höfðu því sætaskipti í deildinni. Selfoss er í þriðja sætinu og Valur í því fjórða.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - ÍR 24-28 | Breiðhyltingar unnu botnliðið
Fjölnir gat komist úr botnsæti Olís deildar karla með sigri á heimavelli gegn ÍR í kvöld. Gestirnir voru hins vegar of stór biti og fóru með sanngjarnan sigur

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Stjarnan 32-26 | Haukar byrja af krafti eftir frí
Stjarnan tapaði sínum þriðja leik í röð í Olís deild karla í handbolta þegar liðið mætti á Ásvelli í kvöld.

Elvar Örn snýr aftur í Valshöllinni annað kvöld
Selfyssingar eru búnir að bíða lengi eftir að fá einn besta leikmann deildarinnar aftur.

Kristján sá hættulegasti í Olís-deildinni
Fjölnismaðurinn Kristján Örn Kristjánsson er sá leikmaður í Olís-deild karla sem kom að flestum mörkum áður en deildin fór í sex vikna frí.

Gott að vera örvhentur í Olís deild karla
Fimm af sjö markahæstu leikmönnum Olís deildar karla í handbolta nota vinstri höndina við að setja boltann í mark andstæðinganna. Deildin fer aftur af stað í kvöld eftir langt Jóla- og EM-frí.

Gísli Þorgeir þarf aðgerð á hné
Gísli Þorgeir Kristjánsson er á leið í aðgerð vegna meiðsla sem hann hlaut í leik afrekshóps HSÍ gegn Japan nú í byrjun janúar.

Árni Þór í Hauka úr Val
Árni Þór Sigtryggsson er genginn í raðir Hauka eftir hálft tímabil með Valsmönnum.

Meiðslavandræðin ætla engan endi að taka hjá Aftureldingu
Markahæsti leikmaður liðsins verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.

Lykilmenn ÍBV stunda sjómennsku í EM-fríinu
Olís deild karla í handbolta liggur í dvala þar til í febrúar vegna Evrópumótsins í Króatíu og íslensku liðin spila ekki leik í meira en 40 daga. Leikmenn ÍBV eru þó ekkert að slaka mikið á í frínu.

Fótbrotnaði illa við að safna jólatrjám fyrir bæjarfélagið sitt
Elvar Ásgeirsson, leikmaður Aftureldingar í handbolta, mun trúlega ekki spila meira í vetur en hann fótbrotnaði þegar hann rann í hálku við að safna jólatrjám fyrir Mosfellsbæ, sem er árleg fjáröflun handboltadeildarinnar. Hann heyrði löppina brotna þegar hann lenti. Fór í aðgerð á mánudag sem heppnaðist vel.

Teitur: Voru búnir að fylgjast með mér í einhvern tíma
Teitur Örn Einarsson er á leið í atvinnumennsku til sænska liðsins Kristianstad í sumar, en greint var frá því í dag.

Teitur Örn á leið til Kristianstad
Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson hefur gengið frá samningum við sænska liðið Kristianstad. Félagið greindi frá þessu í dag.

Tímabilinu lokið hjá Elvari: Rann í hálku í dag og fótbrotnaði
Elvar Ásgeirsson, leikmaður Aftureldingar í handbolta, rann í hálku í dag og fótbrotnaði um leið en hann verður ekki meira með liðinu það sem eftir lifir tímabils.

Maximillian farinn til Noregs
Sænska skyttan Maximillian Jonsson hefur yfirgefið herbúðir Gróttu á Seltjarnarnesi og er farinn til Noregs.

Logi til liðs við Fjölni
Botnliðið úr Grafarvogi fær vænan liðsstyrk fyrir átökin á botni Olís-deildar karla.

Styrkleikalisti HBStatz: Einar Rafn bestur
FH-ingurinn Einar Rafn Eiðsson er besti leikmaður Olís-deildar karla samkvæmt einkunnagjöf HBStatz.

Björgvin Páll: Skjern er félag sem ég hef horft til síðustu ár
Björgvin Páll Gústavsson skrifaði undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Skjern í vikunni.

Einar: Hef ekki tjáð mig um dómgæsluna í vetur en þetta var ekki boðlegt
Stjarnan tapaði fyrir ÍBV á heimavelli í síðasta leik ársins í Olís deild karla

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 26-29 | Laskaðir Eyjamenn unnu síðasta leik ársins
Síðasti handboltaleikur ársins á Íslandi fór fram í Mýrinni þar sem Stjörnumenn tóku á móti vængbrotnu liði Eyjamanna.

Hætt'essu: Erfitt að hitta í autt markið
Það er alltaf stutt í glensið hjá Tómasi Þór Þórðarsyni og félögum í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport. Þeir kvöddu fyrir jólafrí í gærkvöldi með vænum skammti af mistökum og hlægilegum atviknum í liðnum "Hætt'essu.“

Seinni bylgjan: Valskonur áberandi í úrvalsliðunum
Valskonur hafa farið á kostum í Olís deild kvenna í vetur og hefur það ekkert farið framhjá sérfræðingum Seinni bylgjunnar, en þeir gerðu upp tvær umferðir úr kvennadeildinni í gærkvöld.

Dagur: Úrslitakeppnin verður algjör negla
Dagur Sigurðsson hefur fylgst vel með gangi mála í Olís deildunum í vetur og er reglulegur gestur í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport. Dagur ræddi við Guðjón Guðmundsson í Sportpakkanum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Seinni bylgjan: Helgi útnefndi sjálfan sig Hörkutól umferðarinnar
Helgi Hlynsson, markvörður Selfoss, fór mikinn í sigri liðsins á Fram í 14. umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn. Helgi var líka í miklu stuði í viðtali eftir leik.

Jóhann Gunnar með sýnikennslu: „Það er ekki bara Dagur Sigurðsson sem má standa upp í þessum þætti“
Mikk Pinnonen átti mjög góðan leik þegar Afturelding bar sigurorð af Stjörnunni, 27-30, í 14. umferð Olís-deildar karla á sunnudaginn. Eistinn lét mikið að sér kveða í leiknum og skoraði sjö mörk.

Seinni bylgjan: Tveggja íþrótta undur á Selfossi
Selfoss fer inn í jólafríið í 4. sæti Olís-deildar karla. Selfyssingar unnu 36-29 sigur á Fram í síðasta leik sínum fyrir áramót.

Gunnar Berg ósáttur með Hákon Daða: Hann klúðraði þessu stigi fyrir Hauka
Óðinn Þór Ríkharðsson tryggði FH sigur á Haukum, 30-29, í Hafnarfjarðarslagnum í gær.

Halldór: Við erum með frábært lið
FH vann dramatískan sigur á nágrönnum sínum í Haukum í Kaplakrika í kvöld