
Sigfús: Gamli maðurinn hefur engu gleymt
Valsmenn brostu í kvöld þegar silfurdrengurinn Sigfús Sigurðsson snéri aftur á handboltavöllinn eftir langa fjarveru.
Valsmenn brostu í kvöld þegar silfurdrengurinn Sigfús Sigurðsson snéri aftur á handboltavöllinn eftir langa fjarveru.
Gunnari Magnússyni, þjálfara HK, var létt eftir leikinn gegn Val í kvöld enda voru strákarnir hans næstum búnir að kasta frá sér öruggum sigri á ævintýralegan hátt.
„Við gefum eftir í lokin. Það vantaði kraft til þess að klára leikinn. Elvar, Ólafur og Arnór voru búnir að ná þessu upp en svo vantaði bara kraftinn í að fara alla leið," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir tapið gegn HK í kvöld.
FH skaust upp í annað sætið í N1-deild karla á nýjan leik í kvöld þegar liðið vann þriggja marka sigur á Stjörnunni, 25-22.
„Síðasta heimaleik unnum við með þrettán mörkum og við heyrðum það á fólki að þetta hefði ekki verið nógu gaman. Við ákváðum því að hugsa um skemmtanagildið fyrir áhorfendur í kvöld,“ gantaðist Jónatan Magnússon, fyrirliði Akureyrar eftir sigurinn á Fram í kvöld.
Halldór Jóhann Sigfússon, Akureyringur og leikmaður Fram, var ekki sáttur í leikslok með tap sinna manna í kvöld. Akureyri hafði 28-25 sigur á gestunum sem áttu ágætis kafla, en of fáa slíka.
Akureyri vann þriggja marka sigur á Fram í N-1 deild karla í handbolta í kvöld, 28-25. Heimamenn þurftu að hafa mikið fyrir sigrinum gegn botnliðinu en liðið hefði getað klárað leikinn löngu fyrr en það gerði.
HK slapp heldur betur með skrekkinn í Vodafonehöllinni í kvöld þegar liðið var svo gott sem búið að kasta frá sér unnum leik. Lukkan var í liði með HK undir lokin og stigin tvö eru þeirra.
Baráttan í N1-deild karla í handbolta heldur áfram í kvöld þegar þrír leikir fram. Toppbaráttulið Vals og HK mætast í Vodafonehöllinni en Valsmenn höfðu betur þegar liðin áttust við í Digranesi fyrr í vetur.
Guðjón Drengsson, leikmaður Fram, segir að liðið muni ekkert gefa eftir í baráttunni fyrir lífi sínu í deildinni. Framarar sem sitja á botni deildarinnar gerðu jafntefli við Valsmenn á heimavelli sínum 26-26.
FH vann 27-30 sigur gegn Gróttu í N1-deild karla í handbolta á Seltjarnarnesinu í kvöld en staðan var 14-15 gestunum í vil í hálfleik.
Reykjavíkurliðin Fram og Valur mættust í miklum spennuleik í N1-deildinni í kvöld. Leiknum lauk með jafntefli 26-26 þar sem Framarar voru í lykilstöðu þegar lítið var eftir af leiknum.
Einum af þremur leikjum kvöldsins í N1-deild karla í handbolta er lokið þar sem Stjarnan gerði 28-28 jafntefli gegn Akureyri í Mýrinni en staðan var 16-15 Stjörnunni í vil í hálfleik.
„Framarar voru bara betri, þeir stjórnuðu leiknum," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir að liðið gerði 26-26 jafntefli við botnlið Fram í Safamýri.
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var afar sáttur við sigur sinna manna á HK í kvöld enda halda Haukar í kjölfarið kátir til Spánar í fyrramálið þar sem þeir eiga fyrir höndum leik í Evrópukeppninni.
„Ég var ánægður með sóknarleikinn hjá okkur í dag því við erum að skapa okkur fín færi allan leikinn. Aron tók okkur aftur á móti af lífi í markinu með ótrúlegri markvörslu," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari HK, við Vísi í kvöld.
Einn leikur fór fram í N1-deild karla í handbolta í kvöld þar sem Íslandsmeistarar Hauka unnu góðan 31-24 sigur gegn HK að Ásvöllum.
„Þetta er mjög svekkjandi enda þriðji leikurinn gegn Val sem við töpum með einu marki," sagði Halldór Ingólfsson, spilandi þjálfari Gróttu. Liðið tapaði fyrir Val í undanúrslitum bikarsins í kvöld 20-19.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði fimm mörk í kvöld þegar Valur vann Gróttu 20-19 í undanúrslitum bikarsins. Hann var í besta skapi þegar blaðamaður ræddi við hann eftir leik.
Það verða Valur og Haukar sem leika til úrslita í Eimskipsbikar karla í ár. Valur vann sér þáttökurétt í úrslitunum áðan er liðið vann nauman sigur á Gróttu, 20-19.
Valsmenn munu vonandi fjölmenna í Vodafonehöllina í dag enda er sannkölluð bikarveisla í boði.
„Ég var búinn að undirbúa mig mjög vel og náði afar góðri byrjun sem var frábært," sagði Haukamaðurinn Sigurbergur Sveinsson en hann spilaði líkt og hann væri andsetinn á fyrstu mínútum leiks Hauka og HK í Eimskipsbikarnum.
Sverrir Hermannsson og félagar í HK áttu aldrei möguleika gegn Haukum er liðin mættust í undanúrslitum Eimskipsbikarsins í dag.
Haukamaðurinn Björgvin Hólmgeirsson var kampakátur er blaðamaður Vísis hitti á hann eftir að Haukar tryggðu sig inn í úrslit Eimskipsbikarsins.
Það tók Hauka ekki nema um 15 mínútur að tryggja sér sæti í úrslitum Eimskipsbikars karla. Haukar tóku á móti HK að Ásvöllum í dag og unnu afar öruggan og sannfærandi sigur, 26-20.
„Þetta var skemmtilegur leikur og gaman að spila en því miður vorum við einu marki slakari að þessu sinni", sagði FH-ingurinn, Bjarni Fritzson eftir sárt tap gegn Haukum í Hafnarfjarðaslagnum sem fram fór í kvöld. Leiknum lauk 24-25, Haukum í vil.
Haukar sigruðu Hafnarfjarðaslaginn, 24-25 í dramatískum leik í kvöld. Þetta var toppslagurinn í N1-deild karla í handbolta og var stemningin stórkostleg í Kaplakrika í kvöld.
Í kvöld fór fram Hafnarfjarðaslagur í N1-deild karla í handbolta er FH tók á móti Haukum í Kaplakrika. FH-ingar byrjuðu veisluna snemma og gæddu sér á grilluðum hamborgurum á meðan þeir bræður Friðrik Dór og Jón Ragnar spiluðu og sungu til að koma áhorfendum í rétta skapið. Það reyndist þó ekki nóg því Björgvin Þór Hólmgeirsson stal sigrunum fyrir Hauka á loka sekúndu leiksins og allt varð brjálað í Hafnarfirði.
Rúnar Sigtryggsson þjálfari Akureyrar var brosmildur eftir burstið gegn Gróttu. Eftir slæmt tap gegn FH í síðustu umferð sneri Akureyri taflinu við og hleypti Gróttu aldrei inn í leikinn. Lokatölur 33-19.
Guðlaugur Arnarsson batt saman vörn Akureyrar í kvöld af mikilli festu. Vörn liðsins lagði grunninn að fjórtán marka sigri á Gróttu, 33-19. Leikurinn var aldrei spennandi eins og tölurnar gefa augljóslega til kynna. Guðlaugur segir þó að sigurinn hafi ekki verið alveg jafn auðveldur og hann leit út fyrir að vera.