
Óskar Bjarni: Þeir voru betri á öllum sviðum
„Þetta var átakanlegt á að horfa því fyrstu fimmtán mínúturnar voru góðar en svo misstum við þetta frá okkur og lentum bara í einhverjum eltingarleik.
„Þetta var átakanlegt á að horfa því fyrstu fimmtán mínúturnar voru góðar en svo misstum við þetta frá okkur og lentum bara í einhverjum eltingarleik.
„Ég er virkilega ánægður og þetta var frábær frammistaða og umgjörðin í kringum leikin var til fyrirmyndar og ekki hægt að bregðast nánast fullum Krikanum í tilefni dagsins.
FH vann 33-26 sigur gegn Val í bráðskemmtilegum leik í N1-deild karla í Kaplakrika í kvöld. FH-ingar léku á alls oddi innan vallar sem utan í tilefni af 80 ára afmæli Fimleikafélags Hafnarfjarðar.
„Það er bara ekki hægt að vinna leik þegar við klúðrum tíu dauðafærum og gerum enn fleiri tæknifeila. Þeir skora þarna einhver sex hraðaupphlaupsmörk á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik og það er algjörlega óásættanlegt. Við bara hættum að nenna þessu.
„Þetta small þarna hjá okkur í fyrri hálfleik þegar Roland byrjaði að verja og við fengum helling af ódýrum mörkum úr hraðaupphlaupum.
„Við lögðum grunninn að sigrinum með góðri vörn og markvörslu á leikkafla í fyrri hálfleik þar sem við fengum í kjölfarið auðveld mörk úr hraðaupphlaupum.
Stjörnumenn eru komnir á blað í N1-deild karla eftir 28-25 sigur gegn Frömurum í Mýrinni í kvöld. Framarar sitja eftir án stiga eftir tvo leiki.
Það er lítil reisn yfir byrjun Íslandsmeistara Hauka á tímabilinu í ár. Liðið marði Stjörnuna í fyrsta leik og skoraði þar aðeins 17 mörk. Í kvöld gerði liðið síðan jafntefli við Akureyri, 24-24.
Margir leikmenn handknattleiksliðs karla hjá HK eru ekki beint á hátindi líkamlegs atgervis síns eins og lesa mátti í umsögn ofanritaðs eftir leik liðsins gegn FH á dögunum.
„Það er lítið hægt að segja eftir svona leik. Þetta var bara virkilega dapur leikur af okkar hálfu. Varnarleikurinn var lengst af þokkalegur en við erum náttúrulega með einhverja 15-20 tapaða bolta í leiknum og það er náttúrulega skelfilega lélegt,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, fyrirliði Fram, í leikslok eftir 19-25 tap gegn nýliðum Gróttu í Framhúsinu í dag.
„Þetta var frábært að koma í Framhúsið og hirða tvö stig. Okkur var náttúrulega spáð falli en ég held að við höfum alveg sýnt það í þessum leik að við eigum fullt erindi í þessa deild.
Fyrsta umferð N1-deildar karla í handbolta kláraðist í Framhúsinu í dag þar sem nýliðar Gróttu unnu 19-25 sigur gegn Fram.
Tveir handboltaleikir fara fram í Framhúsinu í Safamýri í dag þar sem Fram mætir Stjörnunni í N1-deild kvenna og Fram tekur á móti Gróttu í N1-deild karla.
„Þetta var bara virkilega flottur leikur hjá okkur gegn gríðarlega sterku pólsku liði á erfiðum útivelli. Þetta voru gífurlega góð úrslit fyrir okkur byggir upp hörkuleik á Ásvöllum um næstu helgi,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir 30-28 tap gegn Wisla Plock í fyrri leik liðanna í 2. umferð EHF-keppninnar í handbolta.
„Ég er virkilega ánægður með að ná stigi hér í fyrstu umferð gegn mjög sterku liði FH. Ég er ánægður með strákana," sagði Gunnar Magnússon, þjálfari HK, eftir 28-28 jafntefli liðsins gegn FH í kvöld.
„Það var smá jákvætt í þessu en líka neikvæðir punktar. Við vorum ekki að spila eins vel og við getum og því fór sem fór," sagði niðurlút skytta FH-inga, Ólafur Guðmundsson, eftir jafnteflisleikinn gegn HK í Digranesi í kvöld.
Það voru ekki margir sem áttu von á miklu frá HK-liðinu í kvöld gegn FH. HK með mikið breytt lið en FH að tefla fram gríðarsterku liði sem er spáð góðu gengi í vetur.
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, segir að frammistaða Hlyns Morthens í marki Vals hafi skilið á milli liðanna í kvöld. Valur vann fjögurra marka sigur, 23-19.
Hlynur Morthens var án nokkurs vafa maður leiksins er Valur vann góðan sigur á Akureyri, 23-19, í N1-deild karla í kvöld.
Heimir Örn Árnason mætti í kvöld á sinn gamla heimavöll en þurfti að sætta sig við tap er Valur vann sigur á Akureyri, 23-19.
Valur vann í kvöld sigur á Akureyri, 23-19, í fyrstu umferð N1-deildar karla. Leikurinn fór fram í Vodafone-höllinni.
Handboltinn heldur áfram að rúlla í kvöld en þá fara fram tveir leikir í N1-deild karla.
Akureyringar verða án miðjumannsins knáa og hressa, Jónatans Magnússonar, í kvöld er þeir sækja Val heim í N1-deild karla.
„Það var svekkjandi að tapa þessu en við vorum að fá á okkur ódýrar tvær mínútur sem reyndust dýrar. Það var algjör óþarfi af okkar hálfu," sagði ósáttur Vilhjálmur Halldórsson Stjörnumaður en hann átti afar dapran leik eins og flestir leikmenn Hauka og Stjörnunnar í kvöld.
Markvörðurinn Birkir Ívar Guðmundsson átti hreint út sagt ótrúlegan leik í marki Hauka gegn Stjörnunni í kvöld. Hann varði 27 skot í leiknum en fékk aðeins á sig 16 mörk. Er óhætt að segja að frammistaða hans hafi gert gæfumuninn fyrir Hauka sem mörðu eins marks sigur.
„Varnarleikurinn var fínn og markvarslan í fínu lagi. Haukarnir refsuðu okkur oft grimmilega en mér fannst sóknarleikurinn ágætur. Við vorum að koma skotum á markið en Birkir varði allt," sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, eftir eins marks tap gegn Haukum, 16-17.
„Bæði sóknarleikurinn og hraðaupphlaupin hjá okkur voru hræðileg. Okkar reyndustu menn gerðu hvern feilinn á fætur öðrum bæði í skotum og sendingum. Þetta jaðraði við að vera pínlegt á köflum," sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir hinn ömurlega handboltaleik á milli Stjörnunnar og Hauka í kvöld.
Opnunarleikur N1-deildar karla í Mýrinni í kvöld var skelfileg auglýsing fyrir íslenskan handbolta. Boðið var upp á svo lélegan handbolta að það var átakanlegt að fylgjast með.
Nú í hádeginu var spá formanna, þjálfara og fyrirliða liða N1-deildar karla í handbotla fyrir komandi tímabil kunngjörð. Samkvæmt spánni munu Íslandsmeistarar Hauka verja titil sinn en grannar þeirra í FH eru í öðru sætinu í spánni.
„Við höfum verið í þessum leik síðustu þrjú ár. Við töpuðum fyrir Stjörnunni og svo fyrir Haukum í fyrra svo það er gaman að byrja tímabilið með því að vinna," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, eftir sigurinn á Haukum í meistarakeppni HSÍ í kvöld.