

Olís-deild karla
Leikirnir

KA átti engin svör: „Allt í lagi, þá höldum við þessu áfram“
KA-menn virtust ekki eiga nein svör gegn Haukum á sunnudag þegar Haukar styrktu stöðu sína á toppi Olís-deildar karla í handbolta með 32-23 sigri. Einar Andri Einarsson rýndi í spilamennsku Hauka.

Býst við fleiri félagaskiptabombum úr Eyjum
Strákarnir í Seinni bylgjunni ræddu meðal annars um hræringar á félagaskiptamarkaðnum í Olís-deild karla í Lokaskotinu. Þeir eiga von á fleiri stóru félagaskiptum.

Lokakaflinn í leik Fram og ÍBV: „Hvað ertu að gera Toggi?“
Eyjamenn unnu dramatískan sigur á Fram í Safarmýrinni í Olís deild karla í handbolta um helgina og það var full ástæða fyrir Seinni bylgjuna að skoða betur síðustu sóknir þessa æsispennandi leiks.

„Viss um að Gróttustrákunum líður ekkert sérstaklega vel“
Þórsarar fengu mikið lof í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir sigurinn frækna gegn Val í Olís-deild karla í handbolta. Eftir sigurinn eygja Þórsarar svo sannarlega von um að halda sér í deildinni.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Ak. – Valur 25-22 | Heimamenn skelltu Val
Valsmenn töpuðu tveimur síðustu leikjum sínum fyrir mánaðalangt kórónuveirustopp og þeir byrjuðu ekki vel eftir stoppið er þeir töpuðu fyrir Þór Akureyri.

Umfjöllun og viðtöl: Fram – ÍBV 29-30 | Eyjamenn stálu sigrinum á lokasekúndunum
ÍBV vann gríðarlega sætan sigur á Fram í Olís deild karla í handknattleik í dag. Hákon Daði Styrmisson skoraði sigurmark Eyjamanna þegar örfáar sekúndur voru eftir en Framarar höfðu haft forystu lengst af í síðari hálfleik.

Halldór Jóhann: Þetta covid tímabil er orðið ansi þreytt
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, var ánægður að landa tveim stigum með 28-23 sigri gegn ÍR í Hleðsluhöllinni í dag. Hann segir þó að hann og leikmenn hans séu orðnir ansi þreyttir á síendurteknum stoppum á deildinni.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss – ÍR 28-23 | Ryðgaðir Selfyssingar kláruðu stigalausa ÍR-inga
Selfyssingum urðu engin mistök á þegar þeir fengu botnlið ÍR í heimsókn í dag. Atli Ævar Ingólfsson var markahæstur í liði heimamanna sem unnu fimm marka sigur í Hleðsluhöllinni, 28-23.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar – KA 32-23 | Sigurganga Hauka heldur áfram
Haukar héldu sigurgöngu sinni áfram með góðum sigri á KA. Haukarnir byrjuðu leikinn af krafti og bjuggu sér snemma til gott forskot sem þeir slepptu aldrei takinu á. Niðurstaðan níu marka sigur Hauka 32 - 23.

Jónatan: Það var enginn leikmaður KA á deginum sínum í dag
Haukar afgreiddu KA með níu marka mun 32 - 23. KA byrjaði leikinn afar illa og gengu Haukarnir á lagið strax í upphafi leiks og litu aldrei um öxl eftir það og lönduðu sannfærandi sigri.

Kiddi Björgúlfs: Við klikkum alltaf á dauðafærunum
Kristinn Björgúlfsson var stoltur af sínu liði þrátt fyrir 28-23 tap gegn Selfoss í Hleðsluhöllinni í dag. ÍR er enn í leit að sínum fyrstu stigum.

Tandri Már tekinn inn í landsliðshópinn - Stjörnumenn án hans í tveimur leikjum
Tandri Már Konráðsson, leikmaður Stjörnunnar í Olís-deild karla, var í dag kallaður upp í A-landsliðshóp karla í handbolta. Tveir leikmenn eru í sóttkví og þurftu að segja sig úr hópnum.

Patrekur: Bjöggi átti stórkostlegan leik
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var kátur eftir sigurinn góða á Aftureldingu í kvöld. Lokatölur 35-33 í miklum markaleik.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan – Afturelding 35-33 | Stjörnusókn þegar Garðbæingar hoppuðu upp um fimm sæti
Sóknarleikurinn var í fyrirrúmi þegar Stjarnan sigraði Aftureldingu, 35-33, í Olís-deild karla í kvöld. Með sigrinum hoppuðu Stjörnumenn upp um fimm sæti og í 4. sæti deildarinnar. Mosfellingar eru áfram í því þriðja.

KA óskar eftir að tveimur leikjum liðsins verði frestað
KA hefur óskað eftir því að tveimur leikjum liðsins verða frestað vegna þátttöku tveggja leikmanna liðsins í leikjum með færeyska landsliðinu.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-FH 30-34 | Gestirnir lönduðu sigri í krefjandi leik
Olís-deild karla fór af stað eftir mánaða pásu í dag með tveimur leikjum. Leikurinn í Safamýrinni var jafn og spennandi gegnum gangandi allt þar til FH sýndu klærnar síðustu 5. mínútur leiksins og lönduðu sigri 30-34.

Sebastian: Svekkjandi að tapa fyrsta leiknum á heimavelli
Fram tapaði sínum fyrsta leik á heimavelli á þessu tímabili þegar FH mætti í heimsókn. Leikurinn endaði 30-34 og voru það loka mínútur leiksins þar sem FH ingarnir sýndu klærnar.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta-KA 33-37 | KA sigraði í markaveislu í Hertz-höllinni
KA sigruðu Gróttu í 70 marka, frestuðum leik frá 14. umferð í Olís-deild karla í dag. Lokatölur 33-37.

Gunnar Steinn semur við Stjörnuna
Handknattleiksdeild Stjörnunnar tilkynnti í dag að Gunnar Steinn Jónsson muni ganga til liðs við félagið í sumar eftir 12 ár í atvinnumennsku. Ásamt því að leika með liðinu mun hann sinna hlutverki aðstoðarþjálfara.

FH getur ógnað Haukum þegar handboltinn skoppar af stað í dag
FH getur strax hleypt mikilli spennu í titilbaráttuna í Olís-deild karla í handbolta þegar keppni í deildinni hefst að nýju í kvöld.

Keppt í íþróttum að nýju í kvöld – Svona hefur síðasta ár verið
Fjórða keppnisbanninu í íþróttum á Íslandi, sem sett hefur verið á vegna kórónuveirufaraldursins, lauk síðastliðinn fimmtudag. Keppni er nú að hefjast í íþróttahúsum landsins.

Guðmundur valdi engan úr íslensku liði
Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson hefur valið átján leikmenn til að spila síðustu þrjá leikina í undankeppni EM karla í handbolta.

Tekur tíma að búa til góð lið en segir Stjörnuna vinna markvisst að því
Rætt var við Patrek Jóhannesson, þjálfara Stjörnunnar, í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld en hann er með metnaðarfullt verkefni í gangi í Garðabænum. Markmiðið er að koma Stjörnunni í hóp þeirra bestu á Íslandi.

Olís deildin hefst 22. apríl
Að beiðni formannafundar HSÍ hefur verið tekin ákvörðun um það að breyta leikjafyrirkomulagi Íslandsmótsins í Olís deild karla. Mótið mun hefjast að nýju þann 22. apríl næstkomandi.

Einar Baldvin í Gróttu
Markvörðurinn Einar Baldvin Baldvinsson er genginn í raðir Gróttu í Olís-deild karla en hann kemur frá Val.

HSÍ vill byrja sem fyrst og furðar sig á gagnrýninni
„Við viljum byrja. Við viljum fá handboltann í gang sem fyrst. Það eru okkar hagsmunir. En við viljum líka fara að vilja félaganna,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ.

Milljónir í sektir vegna dómaraskorts
Handknattleiksfélög landsins hafa ekki staðið sig sem skyldi í að ala upp dómara í sínum röðum og uppfylla aðeins fjögur félög kröfur dómaranefndar HSÍ í þessum efnum.

Árni Bragi snýr aftur í Mosfellsbæinn
Árni Bragi Eyjólfsson hefur samið við sitt gamla félag, Aftureldingu, en þetta er staðfest á Facebook síðu Handknattleiksdeildar Aftureldingar. Árni Bragi steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Aftureldingu og var markahæsti maður liðsins þrjú ár í röð.

Snorri Steinn ósáttur: „Einhver undarlegasta ákvörðun sem ég hef séð HSÍ taka“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, er mjög ósáttur og skilur hvorki upp né niður í leikjaáætlun Olís-deildar karla sem var gefin út í dag.

Íslandsmótið í handbolta fer aftur af stað 25. apríl
Handknattleikssamband Íslands hefur staðfest að Íslandsmótið í handbolta fari af stað á nýjan leik þann 25. apríl.