Ólympíuleikar

Ólympíuleikar

Fréttir af Ólympíuleikum, bæði sumar- og vetrarleikum.

Fréttamynd

Rann á blásara utan­gátta starfs­manns

Mildi þótti að ekki færi verr þegar hinn bandaríski Ben Loomis renndi sér af stað í skíðastökki, á Vetrarólympíuleikunum, og á snjóblásara starfsmanns sem ekki fylgdist nægilega vel með.

Sport

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Drukkin í út­sendingu og baðst af­sökunar

Ein þekktasta íþróttafréttakona Ástralíu hefur beðist afsökunar á því að hafa verið drukkin í beinni útsendingu frá Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Forsætisráðherra Ástralíu sýndi henni fullan skilning.

Sport
Fréttamynd

Löng bið Shiffrin á enda

Hin bandaríska Mikaela Shiffrin hlaut Ólympíugull í svigi eftir öruggan sigur í greininni. Um er að ræða hennar fyrsta gull í átta ár.

Sport
Fréttamynd

Stækkaði typpi skíðastökkvara

Sterkur orðrómur hefur verið uppi um að keppendur í skíðastökki karla á Vetrarólympíuleikunum hafi látið stækka getnaðarlim sinn, í von um meiri árangur á leikunum. Nú hefur lýtalæknir svo gott sem staðfest orðróminn.

Sport
Fréttamynd

Stutt gaman hjá stelpunum okkar í brekkunni

Skíðakonurnar Elín Elmarsdóttir van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir hafa lokið keppni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Báðar féllu úr keppni í fyrri ferð dagsins í svigi.

Sport
Fréttamynd

„Þessi medalía er fyrir allar mömmurnar“

Elana Meyers Taylor hafði unnið allt sem hægt er að vinna á sínum ferli í bobbsleðanum, nema gullverðlaun á Ólympíuleikunum. Gullverðlaunin skiluðu sér svo loksins í ár, þegar Elana er orðin rúmlega fertug og tveggja barna móðir.

Sport
Fréttamynd

Selja Ólympíusmokkana á netinu

Eftirspurnin eftir Ólympíusmokkunum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina hefur búið til kapphlaup á netinu þar sem fólk er tilbúið að borga vel til að komast yfir smokkana.

Sport
Fréttamynd

„Ég skammast mín“

Bandaríska skautakonan Corinne Stoddard skrifaði hjartnæma færslu á samfélagsmiðla eftir vonbrigðaúrslit á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Hún biður vini sína og fjölskyldu afsökunar á frammistöðu sinni á Ólympíuleikunum í ár.

Sport
Fréttamynd

Vonn hefur ekki staðið upp í meira en viku

Lindsey Vonn er loksins komin heim til Bandaríkjanna aftur. Þessi 41 árs gamla skíðakona segir að hún hafi ekki staðið í fæturna síðan hún datt illa á Ólympíuleikunum fyrir rúmri viku síðan.

Sport
Fréttamynd

Sagði sína hlið á skógarferðinni sem hann fór í fyrir framan allan heiminn

Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath var með forystu í svigkeppni Ólympíuleikanna en keyrði út úr brautinni og klúðraði gullinu. Það voru þó ekki mistökin heldur viðbrögðin við þeim sem vöktu heimsathygli. McGrath fór algjörlega yfir um, henti skíðastöfunum og öllu lauslegu af sér og strunsaði út í skóg.

Sport
Fréttamynd

Notuðu Sturlu í leyfis­leysi til að aug­lýsa pararáðgjöf

Norsku íþróttamennirnir Sturla Holm Lægreid og Johannes Hösflot Klæbo eru tveir af þekktustu íþróttamönnum Vetrarólympíuleikanna í Mílano og Cortina, Klæbo fyrir fern gullverðlaun sín og Sturla fyrir ótrúlegt sjónvarpsviðtal sitt þar sem hann viðurkenndi framhjáhald í beinni sjónvarpsútsendingu.

Sport