Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ný göngu­brú vígð

Ný göngu- og hjólabrú var formlega opnuð í Elliðaárdal í morgun. Brúin kemur í stað veitustokks sem var nýttur sem göngubrú. Krakkar úr Árbæjarskóla tóku þátt í athöfninni. 

Innlent
Fréttamynd

Grateful Dead á Sæ­brautinni

Það var heiðskírt í Reykjavík á föstudagskvöldið, sem telst orðið nægilegt tilefni til að menn taki eftir veðrinu, og um tíuleytið hafði Sæbrautin breyst í útileikhús. Ferðamenn stóðu þar með þrífætur og síma á lofti, sumir í nýjum dúnúlpum sem líklega höfðu verið keyptar fyrr um daginn með þeirri hugarró sem fylgir því að sjá ekki kortareikninginn fyrr en heim er komið.

Skoðun
Fréttamynd

Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða

Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna.

Innlent
Fréttamynd

Barnið ekki í við­eig­andi öryggis­búnaði

Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. 

Innlent
Fréttamynd

Quang Lé frjáls sinna ferða

Quang Lé er í fyrsta sinn í tvö og hálft ár frjáls sinna ferða eftir að lögregla ákvað að fara ekki fram á framlengt farbann yfir honum. Hann er grunaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi.

Innlent
Fréttamynd

Líkams­á­rás í Breið­holti

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um líkamsárás í Efra-Breiðholti. Brotaþoli er sagður hafa hlotið minniháttar áverka og var einn handtekinn. Sá var í annarlegu ástandi og vistaður í fangageymslu.

Innlent
Fréttamynd

Barn stakk sig á sprautunál á skóla­lóðinni

Barn í Laugarnesskóla stakk sig á sprautunál sem það fann á skólalóð skólans í gær. Skólameistari biðlar til foreldra um að ræða við börn sín vegna málsins en brugðist var við málinu í samræmi við öryggisferla skólans.

Innlent
Fréttamynd

Hefja at­hugun á fjár­hags­að­stoð Reykja­víkur­borgar

Mikilvægt er að vinnufært fólk festist ekki á fjárhagsaðstoð og komist aftur út á vinnumarkað, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún styður athugun endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar á aðstoðinni, þar sem meðal annars er óskað eftir upplýsingum um þjóðerni þeirra sem þiggja hana.

Innlent
Fréttamynd

Boða stórsókn í skóla- og mennta­málum í Reykja­vík

Unnið er að nýrri aðgerðaáætlun í skóla- og menntamálum í leik- og grunnskólum í Reykjavík. Nýr meirihluti hefur boðað til samráðsfundar með fjölbreyttum fulltrúum heimilis og skóla. Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, segir ekki hafa verið nógu skýran fókus á skóla- og menntamálum í Reykjavík og að nýr meirihluti ætli að breyta því. Það sé stórsókn og hún viti að það sé stórt orð en þau ætli að reyna að standa undir því.

Innlent
Fréttamynd

Bíla­stæði við Stúdenta­garða verða einkastæði

Þann 1. október verður tekin upp gjaldskylda á bílastæðum við Stúdentagarða vð Háskóla Íslands og mega einungis þeir sem eru með íbúakort leggja í stæðunum. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir íbúa á görðunum hafa verið orðna langþreytta á að geta ekki nálgast stæði við eigin heimili, mikil ásókn hafi verið í stæðin undanfarin ár. Íbúi lýsir yfir miklum áhyggjum vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Nauða­samningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna

Rammagerðin ehf., sem rekur samnefndar gjafavöruverslanir, hefur gert nauðasamning við kröfuhafa, sem á nú aðeins eftir að staðfesta fyrir dómi. Samkvæmt samningnum fá þeir sem eiga kröfur allt að hundrað þúsund krónum kröfur sínar greiddar að fullu en aðrir fá aðeins fjórðung krafna greiddan. Greiðslu fjórðungs kröfuupphæðar verður dreift yfir sjö ár, án vaxta og tryggingar.

Viðskipti innlent