Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn. Innlent 18.2.2026 13:30
Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Meirihluti kjörinna fulltrúa telur að bætt götuhreinsun muni stemma stigu við mikilli svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu, miðað við svör til fréttastofu um málið. Fulltrúarnir skiptast í tvo hópa, þá sem telja að þrifin skipti máli og svo þá sem benda á að nagladekk og samgöngur séu helsta vandamálið. Sumir kenna meirihlutanum í borgarstjórn um vandann en aðrir íhaldsmönnum sem dragi lappirnar að taka á nagladekkjavanda. Öll líta málið alvarlegum augum. Innlent 17.2.2026 15:40
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16.2.2026 13:10
Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Fasteignasalinn Páll Heiðar Pálsson tók saman sjö af dýrustu eignunum sem seldust á Íslandi árið 2025. Ódýrasta eignin af þeim seldist á 365 milljónir á meðan sú dýrasta seldist á 550 milljónir. Lífið 6. febrúar 2026 14:09
Frá Sjálfstæðisflokki til Samfylkingar og óháðra – af hverju? Allt hefur sinn tíma og nú er senn á enda seta mín í bæjarstjórn Seltjarnarness. Ég hlaut fyrst kosningu til þeirra setu fyrir tímabilið 2002–2006 á lista Sjálfstæðisflokksins og svo aftur fyrir öll kjörtímabilin frá 2010. Það hefur svo sannarlega margt breyst á þessum tíma en það er líka margt sem enn er á dagskrá. Skoðun 6. febrúar 2026 07:00
Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Árleg vetrarhátíð hefst í kvöld á höfuðborgarsvæðinu þegar kveikt verður á ljóslistaverkum í miðborg Reykjavíkur. Viðburðarstjóri segir hátíðina aldrei hafa verið stærri, 150 viðburðir fara fram þar til á sunnudag en hátíðin samanstendur meðal annars af Safnanótt og Sundlauganótt. Menning 5. febrúar 2026 12:03
Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Áætlað er að það myndi kosta sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu aukalega um 300 milljónir króna á ári að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir grunnskólabörn, þar af 167 milljónir fyrir borgina. Borgarstjóri segir að boðaðar breytingarnar séu til þess fallnar að auka frelsi reykvískra barna. Innlent 3. febrúar 2026 21:10
Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Rúmur helmingur allra íbúða á höfuðborgarsvæðinu á sölu eru í nýbyggingu og hefur hlutur nýrra íbúða í framboði ekki mælst meiri á höfuðborgarsvæðinu í átta ár. Viðskipti innlent 23. janúar 2026 14:53
Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. úr hópi 23 umsækjenda. Hann mun hefja störf á næstu dögum. Um er að ræða nýtt félag sem tekur yfir rekstur leiðakerfis Strætó. Viðskipti innlent 23. janúar 2026 10:00
Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Á fjölmennum fundi í vallarhúsi Gróttu á Seltjarnarnesi var tekin ákvörðun um að Samfylkingin bjóði fram í samstarfi við Viðreisn og óflokksbundna Seltirninga undir merkjum Samfylkingar og óháðra í sveitarstjórnarkosningum í vor. Innlent 22. janúar 2026 14:44
Vilja stækka friðlýst svæði á Gróttu og Seltjörn Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar greiðir í næstu viku atkvæði um nýja skilmála friðlýsingarsvæðisins á Gróttu og Seltjörn. Verði skilmálarnir samþykktir stækkar friðlýst svæði verulega og mun ná yfir strandlengjuna líka. Grótta var fyrst friðlýst árið 1974. Innlent 15. janúar 2026 11:23
Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Heildarkostnaður Reykjavíkurborgar og Landspítala vegna veikinda starfsmanna síðustu þrjú ár nemur um átján milljörðum króna hjá hvorri stofnun. Veikindi í opinberum stofnunum eru algengari nú en fyrir nokkrum árum. Veikindahlutfall hjá Seltjarnarnesi lækkaði um fjórðung milli ára eftir að sveitarfélagið réðst í aðgerðir að sögn bæjarstjóra. Innlent 2. janúar 2026 19:00
Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Verð á strætómiða fyrir fullorðna hækkar um tuttugu krónur eftir áramót, eða um þrjú prósent. Byggðasamlagið hækkar að jafnaði gjaldskrá sína tvisvar á ári. Gjaldskrárbreytingar taka gildi 6. janúar 2026. Neytendur 30. desember 2025 14:00
Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Áramótin nálgast óðfluga og halda mörg sveitarfélög í þá hefð að hlaða í áramótabrennur. Vísir tók saman lista með helstu áramótabrennum landsins, listinn er ekki tæmandi og tekur fréttastofa fagnandi ábendingum um brennur sem ekki eru á lista. Innlent 29. desember 2025 11:22
Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Bæjarskrifstofur Seltjarnarnesbæjar hafa verið fluttar um set í húsnæði Fangelsismálastofnunar eftir að mygla fannst í húsnæðinu í sumar. Bæjarstjóri er ánægður með nýtt húsnæði og sér ný tækifæri í því gamla. Innlent 13. desember 2025 15:11
Styggur svanur í sundi handsamaður og skilað í næstu tjörn Gestir í Sundlaug Seltjarnarness ráku upp stór augu fyrir hádegi í dag þegar álft lenti í lauginni. Gesturinn hvíti virkaði særður og ekkert fararsnið á honum. Innlent 12. desember 2025 13:24
Þótti grunsamlegur og reyndist vera með mikið þýfi á sér Lögreglu barst tilkynning um yfirstaðið innbrot á höfuðborgarsvæðinu þar sem miklum verðmætum var stolið. Stuttu síðar var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir en sá reyndist vera með þýfið úr innbrotinu. Innlent 22. nóvember 2025 19:31
Ísbúð Huppu flytur af Nesinu á Ægissíðuna Ísbúð Huppu flytur af Seltjarnarnesi og í Vesturbæ Reykjavíkur í húsnæði við Ægissíðu þar sem veitingastaðurinn 2Guys var áður rekinn. Greint er frá flutningunum í Morgunblaðinu. Viðskipti innlent 19. nóvember 2025 23:30
Ölvun og hávaði í heimahúsi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti að vanda fjölbreyttum verkefnum í gær og í nótt. Í dagbók kemur fram að lögregla hafi haft afskipti af nokkrum fjölda vegna ölvunar og gruns um akstur undir áhrifum. Þá var í þó nokkrum tilfellum tilkynnt um hávaða í heimahúsi sem lögregla hafði einnig afskipti af með því að biðja húsráðanda að hætta. Innlent 15. nóvember 2025 07:07
Keyptu 230 fermetra einbýlishús á Seltjarnarnesi Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, og eiginkona hans, kennarinn Jovana Schally, hafa fest kaup á 230 fermetra einbýlishúsi við Tjarnarstíg á Seltjarnarnesi. Kaupverðið nam 176 milljónum króna. Lífið 5. nóvember 2025 10:56
Taldi sig sjá bát hvolfa og þyrla og björgunarsveit kölluð út Landhelgisgæslunni og björgunarsveitum barst á fimmta tímanum ábendingar um bát í vandræðum út af Gróttu sem ekki reyndust á rökum reistar. Þyrla var kölluð út og þrír bátar frá björgunarsveitum í Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík. Innlent 4. nóvember 2025 18:04
Eldur í bíl á Seltjarnarnesi Eldur kviknaði í rafhlöðu í tengiltvinnbíl á Seltjarnarnesi. Slökkviliðið er á vettvangi. Innlent 25. október 2025 21:38
Átján ára veitti manni „langan og djúpan gapandi skurð“ Ungur karlmaður hefur verið dæmdur til fimmtán mánaða skilorðsbundins fangelsi fyrir líkamsárás og sérlega hættulega líkamsárás. Í þeirri seinni stakk hann mann í síðuna með þeim afleiðingum að hann hlaut „langan og djúpan gapandi skurð á bakvegg brjóstkassa.“ Innlent 14. október 2025 11:00
Ákærður fyrir stunguárás á Seltjarnarnesi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að stinga mann við íþróttahús á Seltjarnarnesi og fyrir að ráðast á annan mann á sama stað skömmu áður. Atvikin sem málið varðar munu hafa átt sér stað aðfaranótt sunnudagsins 29. ágúst 2021. Innlent 8. október 2025 08:01