
Finnur að hann er innilega velkominn
Kanadíski tónlistarmaðurinn Denique mun á morgun senda frá sér hljómplötu. Hann vildi vera hér á landi þegar platan kemur út því Ísland á sérstakan stað í hjarta hans og hann dreymir um að búa hér.
Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.
Kanadíski tónlistarmaðurinn Denique mun á morgun senda frá sér hljómplötu. Hann vildi vera hér á landi þegar platan kemur út því Ísland á sérstakan stað í hjarta hans og hann dreymir um að búa hér.
Lífið heyrði í þremur söfnurum vínylplatna en sala á þeim hefur risið síðustu ár. Sum safnanna byrjuðu bara sem eðlileg plötukaup á þeim tíma sem ekkert annað var í boði, sum vegna atvinnu en öll eru þau ákveðið form áráttu.
Hildur Vala söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar fyrir 12 árum í sjónvarpsþættinum Idol stjörnuleit. Hún hvarf úr sviðsljósinu í nokkur ár og tónlistin hennar endaði ofan í skúffu. Nú er komið út nýtt lag og plata á leiðinni. Hún segist gera hlutina á eigin forsendum.
Hljómsveitin Mammút frumsýndi í dag glænýtt myndband í dag og er um að ræða ábreiðu af laginu Believe með Cher.
Lagið B.O.B.A með JóaPé og Króla er eitt vinsælasta lag Íslands um þessar mundir en það byggir á fleygum orðum sem tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens lét flakka í beinni útsendingu á sínum tíma, árið 2002 nánar tiltekið. Þá ætlaði Bubbi að stafa orðið "bomba“ en í miklum ákafa gleymdist einn bókstafur.
Hljómsveitin Cyber gefur út plötuna Horror föstudaginn 13. október. Platan fjallar um hryllinginn sem við þekkjum öll úr hversdagsleikanum. Í kvöld verður svo frumsýnt nýtt myndband við lagið Psycho.
Rapparinn Cardi B skráði nafn sitt í sögubækur bandarískrar tónlistarsögu í vikunni þegar hún varð fyrsti kvenkyns rapparinn til að toppa Billboard-vinsældalistann síðan Lauryn Hill var á toppnum árið 1998.
Tónlistarhátíðin hefur verið haldin árlega, aðra helgina í júlí, í Neskaupstað síðan sumarið 2005.
Sólon Örn fylgist með uppáhaldstónlistarmönnunum sínum á Instagram og fær mikinn innblástur frá rappsenunni. Hann semur tónlist undir listamannsnafninu Shiny Papa.
Tveir af þekktustu plötusnúðum landsins koma fram á Paloma á morgun. Biggi veira úr Gus Gus er aðalnúmerið en honum til halds og trausts verður Thor úr Thule Records.
JóiPé og Króli eru líklega skærustu stjörnur dagsins í dag eftir að hafa gert allt gjörsamlega vitstola með laginu B.O.B.A. og svo plötunni GerviGlingur sem fylgdi fast á eftir því. Þá lá beinast við að fá þá til að koma lesendum Fréttablaðsins í föstudagsgírinn.
I Want to Know What Love Is mun hljóma á Íslandi þann 18. maí þegar hin goðsagnakennda hljómsveit Foreigner stígur hér á svið. Sveitin er á ferðalagi um þessar mundir og fær góða dóma.
Moses Hightower ætla að halda upp á útgáfu plötunnar Fjallaloft í kvöld á glæsilegum tónleikum í Háskólabíói. Með þeim verður blásarasveit og fleiri hjálparkokkar.
Jóhann Kristófer, Jóhanna Rakel og Birnir hafa hoppað á remix af sænska rapphittaranum Gucci Song sem er upphaflega með rapparanum Michel Dida. Stór nöfn í sænsku senunni hafa horft til Íslands og því lá beint við að gera eitt remix.
Atwood Magazine og GoldFlakePaint frumsýna í dag nýtt myndband Ásgeirs við lagið I Know you Know af annarri breiðskífu tónlistarmannsins, Afterglow.
Hógvær nefnist nýtt lag frá Emmsjé Gauta sem er jafnframt fyrsta lag af komandi plötu. Laginu fylgir myndband og er því leikstýrt af Magnúsi Leifssyni. Myndbandið byggir á Dressmann auglýsingum.
Þríeykið Sigga Beinteins, Guðrún Gunnarsdóttir og Jógvan Hansen hafa undanfarið sungið gamlar dægurlagaperlur saman á tónleikunum Við eigum samleið. Tónleikarnir hafa hitt beint í mark hjá tónlistarunnendum en þeir hafa verið haldnir hátt í 30 sinnum.
Útgáfufyrirtækið Alda Music skrifaði undir samstarfssamning við bandarísku hipphoppútgáfuna 300 Entertainment. Sölvi Blöndal, annar stofnenda Öldu, segir þetta vera lykil að framtíð útgáfunnar.
Eflaust margir sem myndu vilja vera í sporum Eðvarðs Egilssonar.
Rappsveitin Úlfur Úlfur kom fram í morgunþættinum Dzien Dobry á pólsku sjónvarpsstöðinni TVN. Strákarnir tóku lagið Bróðir til að kynna tónleika sína í Varsjá.
Ný Dönsk kom fram á sjónarsviðið fyrir 30 árum þegar hljómsveitin vann hljómsveitarkeppni Stuðmanna í Húsafelli árið 1987. Síðan hefur sigurgangan verið nánast samfelld. Hljómsveitin fagnar 30 árunum með nýrri plötu,
Bandaríska Hip Hop útgáfan 300 Entertainment og Alda Music hafa gert með sér samkomulag um samstarf.
Thom Yorke, söngvari Radiohead, er fastur í lyftu í glænýju myndbandi hljómsveitarinnar við lagið Lift sem kom út í dag. Lagið var gefið út fyrr á árinu eftir margra ára veru í skúffunni.
Lagið Ég vil það með Jóa Pé og Chase er sumarsmellur ársins í ár. Lagið hefur notið vinsælda síðustu mánuði og þekkja Íslendingar lagið vel.
Eðvarð Egilsson, fyrirsæta, tónlistarmaður og leikari, er í stóru hlutverki í nýjasta myndbandi Lönu Del Ray við lagið White Mustang. Hann fékk hlutverkið í gegnum Facebook og kíkti svo í heimsókn til Lönu í smá spjall.
Tónlistarmaðurinn Friðrik Dór heldur tvenna tónleika í Eldborg í Hörpu á morgun þar sem hann kemur fram með hljómsveit og bakröddum.
Tónlistarmaðurinn Sam Smith gaf út lagið Too good at goodbyes í morgun.
JóiPé og KRÓLI gáfu út lagið B.O.B.A. á mánudaginn og síðan þá hefur íslenska internetið vera í ljósum logum. Þeir ætla að gefa út plötu á morgun þannig að það má eiga von á fleiri sprengjum á næstunni frá þessum kornungu félögum sem eru bara rétt að byrja.
"Kaldar nætur fjallar um þann blákalda raunveruleika sem við búum við hér á landi. Yfir vetrarmánuðina er kuldi og myrkur alltumlykjandi.“