
Veðrið með rólegra móti miðað við árstíma
Í dag er útlit fyrir suðaustan golu eða kalda sunnan heiða með dálítilli rigningu eða slyddu. Þá bætir í úrkomu eftir hádegi og er spáð eitt til sex stiga hita.
Í dag er útlit fyrir suðaustan golu eða kalda sunnan heiða með dálítilli rigningu eða slyddu. Þá bætir í úrkomu eftir hádegi og er spáð eitt til sex stiga hita.
Búist er við hvössum éljahryðjum um landið vestanvert í dag sem gætu gert ferðalöngum óleik. Veðrið verður hvað verst eftir hádegi og fram á kvöld. Veðurfræðingur segir von á hálku í vikunni.
Í dag fer lægð í norðaustur fyrir vestan land. Henni mun fylgja suðvestanátt með hvössum og dimmum éljum, en þurru og björtu veðri austanlands. Búast má við að það taki að lægja í kvöld.
Búast má við sunnan- og suðvestanátt, um tíu til átján metrum á sekúndu í dag. Vætusamt verður og fremur hlýtt, en úrkomulítið norðaustantil á landinu.
Landsmenn mega eiga von á suðlægri átt í dag, víða átta og þrettán metrum á sekúndu, og rigningu eða skúrum, og talsverðri rigningu á Suðausturlandi. Úrkomulítið verður um landið norðaustanvert.
Veðurstofan spáir fremur hægum vindi í dag og á sunnanverðu landinu þykknar upp með smáskúrum. Fyrir norðan rofar smám saman til eftir þungbúið veður í gær og það hlýnar í veðri; hiti verður eitt til fimm stig seinnipartinn en víða vægt frost á Norður- og Austurlandi.
Árni Snorrason forstjóri Veðurstofunnar segir að þegar hafi farið fram gagngerar endurbætur á vefnum vedur.is, sem lagðist niður í morgun, og þeim sé ekki lokið.
Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðisins í Bláfjöllum var súr með að þurfa að loka skíðasvæðinu eftir hádegið í dag að kröfu almannavarna. Hann segir veðrið ekki hafa verið jafngott í ár og færið frábært. Vegna jarðskjálftanna á Reykjanesi í dag hafa almannavarnir lýst yfir hættustigi og gert þá kröfu að skíðasvæðinu verði lokað.
Veðurstofan spáir norðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu í dag og víða dálítil rigning eða snjókoma. Þó má reikna með bjartviðri suðvestanlands. Hiti verður víðast á bilinu eitt til sex stig, en nálægt frostmarki á Norður- og Austurlandi.
Búast má við austan- og norðaustanátt í dag, víða strekkingi eða allhvössum vindi, átta til fimmtán metrar á sekúndu, en heldur hægari á Norðaustur- og Austurlandi. Talsverð rigning suðaustantil á landinu og rigning eða slydda með köflum í öðrum landshlutum eftir hádegi, en snjókoma norðaustanlands.
Landsmenn mega búast við fremur hægum vestanvindum í dag og þar sem mun snjóa sums staðar norðvestan til. Annars staðar verður lítilsháttar slydda eða rigning og mun létta smám saman til á Suðausturlandi.
Minnst 56 Bandaríkjamenn hafa dáið í vikunni vegna kuldakastsins sem gengið hefur yfir mið- og suðurríki Bandaríkjanna. Þar af bjuggu minnst þrjátíu í Texas, þar sem rafmagnsleysi hefur leikið íbúa grátt.
Lægð nálgast nú landið úr suðri og fylgir henni vaxandi norðaustanátt, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu eftir hádegi. Skýjað með köflum en þurrt að kalla að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Veðurstofan spáir hægri breytilegri átt á landinu í dag þar sem reikna má með lítilsháttar rigningu eða slyddu með köflum framan af deginum, einkum um vestanvert landið.
Tugir milljóna Bandaríkjamanna undirbúa sig nú fyrir áframhaldandi kuldakast með tilheyrandi vetrarveðri. Fordæmalaust veður hefur gengið yfir suður- og miðhluta Bandaríkjanna á undanförnum dögum og hafa íhaldsmenn ranglega beint spjótum sínum að umhverfisvænum orkugjöfum.
Hættustigi hefur verið aflýst á Seyðisfirði og einnig óvissustigi vegna ofanflóða á Austfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóran um á Austurlandi.
Yfirlögregluþjónn á Austurlandi á frekar von á því að rýming um fimmtíu húsa á Seyðisfirði muni standa eitthvað áfram en Veðurstofan mun nýta gluggann nú í hádeginu þegar styttir upp til að meta stöðugleika hlíðarinnar.
Fordæmalaust vetrarveður gengur nú yfir suður- og miðhluta Bandaríkjanna. Kuldamet hafa verið slegin, milljónir fólks eru án rafmagns og að minnsta kosti 21 hefur látist vegna veðursins.
Spáð er breytilegri átt á landinu í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu, og rigningu, slyddu eða snjókomu. Hiti verður um eða yfir frostmarki.
Minnst ellefu hafa látist í suðurríkjum Bandaríkjanna vegna kulda og snjókomu. Þrír létust og tíu slösuðust eftir að hvirfilbylur reið yfir í Norður-Karólínu í morgun. Björgunaraðgerðir eru enn í gangi.
Mikill viðbúnaður er nú í flestum ríkjum Bandaríkjanna vegna kulda og snjókomu sem gengið hefur yfir stóran hluta landsins og ekki síst í ríkjum sem alla jafna sjá ekki mikinn snjó.
Það verður fremur hæg suðaustlæg átt í dag og dálitlar skúrir fyrri part dags en þurrt og bjart veður á Norðurlandi. Hiti verður eitt til sex stig.
Íbúar Seyðisfjarðar eru margir hverjir orðnir langþreyttir á að búa við ógn og rýmingu en þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið takast þeir á við ástandið af fádæma æðruleysi. Þetta segir forseti sveitarstjórnar Múlaþings.
Veðurstofa Íslands hefur aflýst hættustigi á Seyðisfirði vegna hættu á snjóflóðum og þar með rýmingu aflétt á reitum 4 og 6 samkvæmt rýmingarkorti vegna snjóflóðahættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Ekkert hefur frést af því að snjóflóð hafi fallið á Seyðisfirði í nótt að sögn ofanflóðafræðings hjá Veðurstofu Íslands.
Sérfræðingar á ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands funduðu um miðjan dag í dag um óvissustig vegna ofanflóðahættu á Austurlandi. Miklar rigningar hafa verið á svæðinu frá því í gær og er gert ráð fyrir áframhaldandi úrkomu fram á nótt með rigningu í byggð sem nær líklega upp á fjallatoppa.
Það er suðaustan- og austanátt á landinu, víða allhvass eða hvass vindur, en sums staðar stormur til fjalla. Búast má við að dragi úr vindi og vætu seinnipartinn í dag, þó áfram rigni talsvert á Austurlandi fram á nótt.
Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna ofanflóðahættu á Austurlandi. Það tekur gildi klukkan átta í kvöld vegna mikillar rigningaspár næsta einn og hálfa sólarhringinn.
Það slær í storm á stöku stað á landinu yfir helgina. Ekkert ferðaveður er á miðhálendinu og felldi Herjólfur niður fyrstu ferð í Þorlákshöfn í morgun vegna veðurs.
Veðurstofa Íslands spáir allhvassri eða hvassri suðaustanátt um helgina með talsverðri rigningu sunnan- og austanlands, einkum á Suðausturlandi og sunnanverðum Austfjörðum.