Veitingastaðir

Veitingastaðir

Fréttir af starfsemi veitingastaða á Íslandi.

Fréttamynd

Loka Duck & Rose á sunnu­daginn

Veitingastaðurinn Duck & Rose mun ljúka starfsemi næsta sunnudag. Í stað hans verður opnaður staðurinn Gamla Reykjavík. Sömu rekstraraðilar standa að breytingunni. Í tilkynningu segir að um sé að ræða stefnubreytingu.

Viðskipti innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Maður eigin­lega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“

Helgi Guðnason, forstöðumaður í Fíladelfíu í Reykjavík, segir samstarfið við Samhjálp hafa gengið vonum framar eftir að kaffistofan fékk tímabundið skjól í húsnæði kirkjunnar. Hann viðurkennir að það hafi verið töluverð óvissa en hafi alltaf verið sannfærður um að það rétta í stöðunni væri að hjálpa.

Innlent
Fréttamynd

Mánu­dags­morgunn í Kaffi­stofu Sam­hjálpar

Það er mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar, klukkan er tíu og það er nýbúið að opna. Það er matarlykt og kliður í loftinu. Það er verið að bera fram morgunmat og setið við flest borð. Kaffistofan er tímabundið staðsett í sal Fíladelfíusöfnuðarins, á neðri hæð í Hátúni. Það er bjart inni og líklega um 40 til 50 manns í salnum.

Innlent
Fréttamynd

Stig­mögnun í nágranna­erjum: „Hann vildi keyra á mig“

Eigendur veitingastaðarins BK Kjúklings og verslunarinnar Istanbul Market hafa átt í harðvítugum deilum um bílastæði en fyrirtækin eru staðsett sitt hvorum megin við Grensásveg í Reykjavík. Leitað hefur verið til lögfræðinga og saka eigendurnir hvorn annan ýmist um að reyna að keyra á sig eða fara ófögrum orðum um fjölskyldumeðlimi. Einnig greinir þá á um hvernig deilurnar hófust.

Innlent
Fréttamynd

Grillhúsinu á Sprengi­sandi lokað

Veitingastaðnum Grillhúsinu á Sprengisandi í Reykjavík hefur verið lokað. Einungis eitt Grillhús er eftir á höfuðborgarsvæðinu og er það rekið á bensínstöð að Hagasmára við verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfs­kröftum

Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal og konan hans Rakel Þormarsdóttir hafa valið nafn fyrir veitingastaðinn sem þau opna á næstunni á neðri hæð verslunarkjarnans Grímsbæjar í Reykjavík. Staðurinn heitir Fossinn, væntanlega með vísan í Fossvoginn, og þau eru nú í leit að starfsfólki til að taka á móti gestum og til starfa í eldhúsi staðarins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“

Árleg Þorláksmessuveisla fór fram á Ölver í Laugardal í dag þar sem gestir streymdu að til þess að gæða sér á kæstri skötu, þó álitamál væri hve kæst hún ætti að vera. Fréttamaður fetaði í fótspor annarra fréttamanna fréttastofunnar í gegnum árin og gæddi sér á þeirri kæstu í fyrsta sinn.

Lífið
Fréttamynd

Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar

Áhugakona um smurbrauð og tölfræði rýndi í opna reikninga ríkisins til að sjá hve mikið ríkisstofnanir hafa eytt á Jómfrúnni síðastliðin tvö ár. Háskóli Íslands er smurbrauðsóðasta stofnunin bæði árin en svo voru nokkur ráðuneyti ansi öflug í fyrra.

Lífið
Fréttamynd

Hyggst kæra dyra­verði Auto til lög­reglu

Karlmaður á þrítugsaldri sem sótti skemmtistaðinn Auto í miðborg Reykjavíkur var fluttur á sjúkrahús á laugardagsnótt. Hann sakar hóp dyravarða sem störfuðu á næturklúbbunum um líkamsárás.

Innlent
Fréttamynd

Halda starfs­leyfinu þrátt fyrir kröfur í­búa

Úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði kröfu íbúa í grennd við bakaríið og kaffihúsið Hygge á Barónsstíg. Íbúarnir lögðu fram stjórnvaldskæru og kölluðu eftir því að starfsleyfi staðarins yrði afturkallað, meðal annars vegna sorphirðumála og mengunar.

Innlent
Fréttamynd

Al­vöru ítalskur veitinga­staður í hjarta borgarinnar

Veitingastaðurinn Grazie Trattoria opnaði í apríl 2022 í glæsilegu nýju húsnæði við Hverfisgötu í Reykjavík. Þar er boðið upp á fjölbreytt úrval ítalskra rétta og ekta ítalska og heimilislega stemningu enda er margt starfsfólk frá Ítalíu auk þess sem meðalaldur starfsfólk er hærri en gengur og gerist í veitingageiranum. Grazie Trattoria er veitingastaður vikunnar á Vísi.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Kaffi Ó-le opið á ný

Kaffihúsið vinsæla Kaffi Ó-le hefur verið opnað á ný eftir nokkurra mánaða lokun. Það er enn sem áður í sama húsnæði í Hafnarstræti og bruggar enn sama gamla kaffið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Opnar úti­bú Forréttabarsins á kunnug­legum stað

Róbert Ólafsson, eigandi hins sívinsæla Forréttabars á Nýlendugötu í Reykjavík, stefnir á að opna nýtt útibú staðarins á horni Hverfisgötu og Frakkastígs. Þar þekkir hann ágætlega til, þar sem hann rak þar barinn og veitingastaðinn Brewdog um árabil. Hann segir að staðurinn á Nýlendugötu verði áfram „móðurskipið“.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Í­búar grátandi og í miklu upp­námi yfir flutningi Kaffi­stofunnar

Geir Rúnar Birgisson, formaður húsfélags Grensásvegar 44 til 50, segir íbúa hafa miklar áhyggjur af flutningi Kaffistofunnar í húsnæði við Grensásveg 46. Hann segir íbúa ósátta við það að framkvæmdir hafi hafist áður en flutningurinn fór í grenndarkynningu. Íbúar óttist aukið ónæði og fjölgun innbrota verði Kaffistofan opnuð á þessari staðsetningu. 

Innlent