Leita manns sem talinn er hafa fallið í sprungu í Grindavík Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum leita nú manns sem talinn er að hafi fallið ofan í sprungu í Grindavík. Lögreglustjóri segir manninn hafa verið að störfum við að fylla í sprunguna. Enginn sjónarvottur hafi verið að atvikinu en grunur þó vaknað um slysið. 10.1.2024 11:32
Ráðinn framkvæmdarstjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi Gestur Steinþórsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri markaðssviðs hjá Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi). 10.1.2024 11:21
Innkalla ÅSKSTORM-hleðslutæki vegna hættu á rafstuði og bruna IKEA hefur innkallað ÅSKSTORM 40 W USB-hleðslutæki vegna hættu á rafstuði og bruna. 10.1.2024 10:25
Bein útsending: Þátttaka Íslands í InvestEU-áætluninni Kynningarfundur um þátttöku Íslands í InvestEU-áætluninni og framkvæmd hennar fer fram klukkan 9:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. 10.1.2024 09:00
Leikarinn Adan Canto er látinn Bandaríski leikarinn Adan Canto, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í þáttunum The Cleaning Lady og Designated Survivor, er látinn. Hann varð 42 ára. 10.1.2024 07:44
Gengur á með strekkingi eða allhvössum vindum og smá vætu Víðáttumikil hæð skammt norður af Skotlandi beinir nú alldjúpum lægðum og lægðadrögum norður Grænlandshaf, en saman færa þessi veðrakerfi okkar hlýtt og rakt loft að sunnan. 10.1.2024 07:15
Ráðin samskiptastjóri Hafró Dóra Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna. 9.1.2024 12:51
Verður yngsti forsætisráðherrann í sögu Frakklands Gabriel Attal hefur verið skipaður nýr forsætisráðherra Frakklands og verður hann jafnframt sá yngsti til að gegna embættinu í sögunni. Hann hefur síðustu mánuði gegnt embætti menntamálaráðherra í ríkisstjórn Macrons forseta. 9.1.2024 11:45
Binda enda á 27 ára samstarf sitt Bandaríski íþróttavörurisinn Nike og bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafa bundið enda á samstarf sitt sem staðið hefur síðastliðinn 27 ár. 9.1.2024 07:45
Beina til landsins hlýju og röku lofti að sunnan Víðáttumikil hæð yfir Norðursjó beinir nú alldjúpum lægðum og lægðadrögum norður yfir Grænlandshaf og saman færa veðrakerfin hlýju og röku lofti til landsins að sunnan. 9.1.2024 07:16