„Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Aðgerðir stjórnvalda á húsnæðismarkaði hafa verið of kostnaðarsamar og hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Þetta segir hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands sem telur íhlutun hins opinbera fela í sér ríkisvæðingu á húsnæðismarkaði. 16.7.2024 21:31
Grátlegt að veiðarnar séu kallaðar af meðan sjórinn er fullur af fiski Síðasti dagur strandveiða er í dag og öll strandveiðileyfi falla niður frá og með morgundeginum. Formaður Landssambands smábátaeigenda segir sjóinn fullan af fiski og grátlegt sé að tímabilinu sé lokið. 16.7.2024 20:00
Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Fjölgun íbúða í eigu stórtækra íbúðaeigenda hefur aukist á undanförnum árum á meðan hlutfall þeirra sem eiga aðeins eina íbúð til eigin nota hefur dregist saman. Hagfræðingur segir þetta vísbendingu um að fjárfestar telji að fasteignaverð muni halda áfram að hækka. Aftur á móti tengist þróunin að miklu leyti einnig aukinni uppbyggingu félagslegra íbúða sem og uppkaupum Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík. 16.7.2024 13:16
Utanríkisráðherra segir árásina hörmulega Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur bæst í hóp þeirra stjórnmálamanna sem fordæmt hafa árásina á Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í gær. 14.7.2024 15:18
Árásin komi til með að auka stuðning við Trump Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum, telur líklegt að morðtilræðið gegn Donald Trump í gærkvöldi komi til með að styrkja kosningabaráttu hans, að minnsta kosti til skemmri tíma. 14.7.2024 14:00
Segir „óeðlilegan hagsmunaárekstur“ við mat á sakhæfi áhyggjuefni Það tíðkast að sömu geðlæknar leggi mat á sakhæfi einstaklinga fyrir dómstólum og sem sinna myndu þeim á réttargeðdeild. Þetta skapar óeðlilegan hagsmunaárekstur að mati formanns Afstöðu. Alvarlegt ástand ríki í geðheilbrigðismálum fanga. 13.7.2024 20:00
„Verður alls ekki keyrt í gegn í mikilli andstöðu“ Ekki kemur til greina að keyra í gegn verkefni sem tengist áformum Carbfix í Hafnarfirði í mikilli andstöðu við íbúa að sögn Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra. Hún kveðst skilja áhyggjur íbúa og tekur undir að hluti borhola kæmu til með að liggja full nálægt byggð. Hún ítrekar einnig að engar skuldbindandi ákvarðanir hafi verið teknar um verkefnið. 13.7.2024 12:31
Einn handtekinn í aðgerðum sérsveitar í Hrísey Einn var handtekinn í Hrísey í aðgerðum lögreglunnar á Norðurlandi-Eystra síðdegis á fimmtudaginn. Lögregla naut aðstoðar sérsveitarmanna ríkislögreglustjóra sem hafa aðsetur á Akureyri í verkefninu. Þetta staðfestir Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi-Eystra í samtali við fréttastofu. 13.7.2024 10:30
Vona að gervigreindin komi að gagni við að finna mögulega lækningu Barátta Íslendinga fyrir fólk með mænuskaða hefur skilað árangri á alþjóðavettvangi. En betur má ef duga skal að sögn formanns Mænuskaðastofnunar Íslands, sem vonast til þess að gervigreind nýtist í leit að lækningu við mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir, sem er bæði stofnandi og stjórnarformaður stofnunarinnar, hefur verið iðin við að senda bréf víða um heim, og hefur meðal annars fengið svar frá varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sem hvatti hana til dáða. 12.7.2024 19:37
Biden lýsti aðdáun á Íslandi og hrósar framlagi til NATO Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Síðasti dagur 75 ára afmælis- og leiðtogafundar NATO er í dag en eftirvænting ríkir fyrir blaðamannafundi sem Biden hefur boðað síðar í kvöld. 11.7.2024 20:02