Vaktin: Aðgerðasinnar hlekkja sig við Hval 8 og Hval 9 Aðgerðarsinnar eru enn í fullu fjöri, hlekkjaðir við möstur hvalveiðibátana Hval 8 og Hval 9. Þar hafa þau verið frá því snemma í morgun til að mótmæla hvalveiðum Íslendinga. 4.9.2023 09:09
Mótmælin síðasta úrræði til að koma í veg fyrir veiðar Kvikmyndagerðarmaðurinn og hvalveiði-mótmælandinn Micah Garen segir það síðasta úrræði Anahitu Babaei að fara um borð í hvalveiðiskipið til að koma í veg fyrir að Kristján Loftsson haldi til hvalveiða í dag. 4.9.2023 09:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ung kona með hreyfihömlun sem beðið hefur í tæp fimm ár eftir notendastýrðri persónulegri aðstoð hjá Reykjavíkurborg segir biðina óbærilega. Hún hefur höfðað mál gegn borginni og íslenska ríkinu. 13.8.2023 18:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Þingmaður Samfylkingarinnar segir þjónustusvipta hælisleitendur strandaglópa hér á landi þar sem þeir komist ekkert án ferðaskilríkja. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fólk fá aðstoð sé það samstarfsfúst. 13.8.2023 11:43
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ný skýrsla sem Heilbrigðisráðuneytið gaf út í gær varpar ljósi á þá hópa sem eiga engan stað í geðheilbrigðisþjónustunni. Heilbrigðisráðherra segir áríðandi að öllum sé fundinn viðeigandi staður í kerfinu. 12.8.2023 18:01
Flæðir yfir klóakið og ráðstafanir gerðar til að bjarga skautahöllinni Íslendingur í Brumunddal í Noregi segir vandræðin halda áfram að hrannast upp á flóðasvæði þrátt fyrir að rigningunni hafi lokið. Í bænum Hamar flæðir nú yfir klóakið og hafa ráðstafanir verið gerðar til að bjarga skautahöllinni. 12.8.2023 14:58
Hádegisfréttir Bylgjunnar Búið að er að tilkynna öllum þeim sem hafa fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd um yfirvofandi þjónustusviptingu í bili að sögn sérfræðings hjá ríkislögreglustjóra. Nýtt ákvæði í útlendingalögum sé krefjandi verkefni sem ekki hafi enn reynt á. 12.8.2023 11:47
Atriðin sjaldan eða aldrei verið fleiri Búast má við götulokunum í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar Gleðiganga Hinsegin daga fer fram en gangan er hápunktur hátíðarinnar sem fram hefur farið alla vikuna. 12.8.2023 11:19
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Gríðarleg geðshræring greip um sig þegar fimm flóttakonum var vísað úr úrræði ríkislögreglustjóra í Bæjarhrauni í dag, og á götuna. Lovísa Arnardóttir, fréttamaður ræddi við þær og dómsmálaráðherra sem segir lítið hægt að gera ef fólk sýni ekki samstarfsvilja. 11.8.2023 18:00
Ákvörðun Svandísar ekki haft jákvæð áhrif á samstarfið Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun matvælaráðherra um að stöðva tímabundið hvalveiðar ekki hafa haft jákvæð áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Matvælaráðherra segir ekki tímabært að segja hvort hún banni hvalveiðar eftir fyrsta september þrátt fyrir að einungis þrjár vikur séu í að veiðarnar eigi að hefjast. 11.8.2023 12:10