Ný lágvöruverðsverslun áskorun og tónlistarframleiðsla Magga Mix Fjöldi fólks lagði leið sína í nýja lágvöruverðsverslun sem var opnuð í Kópavogi í dag. ASÍ bindur vonir við að verslunin veiti aðhald og aðrir líti á verð hennar sem áskorun. 17.8.2024 18:01
Fylgjast náið með barnafjölskyldum í Grindavík Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þá sem dvelja næturlangt í Grindavík mjög meðvitaða um þá hættu sem steðjar að. Barnaverndaryfirvöld fylgist með þeim fjölskyldum sem dvelji með börn í bænum. Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi en engin skjálftavirkni mælist enn. 17.8.2024 13:09
Óvissa um formennsku VG og óþefur í kirkjugörðum Formaður Vinstri grænna hefur ekki ákveðið hvort hann gefi kost á sér til áframhaldandi formennsku á landsfundi flokksins í október, en það hefur innviðaráðherra ekki heldur gert. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. 17.8.2024 11:49
Láglaunakonur neiti sér um mat svo að börn þeirra fái að borða Rúm fjörutíu prósent kvenna í láglaunastörfum hafa minna en 150 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði. Margar geta ekki keypt nauðsynjavörur, eins og kuldaskó og úlpur fyrir börn sín, og hafa neitað sér um mat svo börn þeirra fái að borða. 16.8.2024 19:30
Láglaunakonur heilsuveilli en konur með hærri laun Líkamleg heilsa kvenna, sem hafa eingöngu lokið grunnskólaprófi, er verri en kvenna með meiri menntun. Þá eru konur með háskólamenntun í öllum tilfellum ólíklegri til að vera með klínísk einkenni þunglyndis, kvíða og streitu en konur með lægra menntunarstig. 16.8.2024 12:00
Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Umverfis-, orku- og loftslagsráðherra segist ekki átta sig á ákalli formanns VG um að gengið verði lengra í stefnumörkun í vindorkumálum. Stefnumörkun í málaflokknum hafi verið í undirbúningi mjög lengi og nú sé kominn tími til að framkvæma. 15.8.2024 19:00
Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry Fimm hafa verið handteknir og ákærðir í tengslum við andlát leikarans Matthew Perry. Meðal þeirra eru þrír læknar en allir ákærðu eru sagðir hafa selt Perry ketamín og lagt sig fram um að leyna því hvað dró hann til dauða. 15.8.2024 18:07
Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Formaður Vinstri grænna kallar eftir því að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggi fram stefnumörkun um vindorkumál á haustþingi. Hann telur að gera þurfi breytingar á tillögum sem lagðar voru fram á síðasta þingi. Tryggja þurfi að auðlindin haldist í höndum þjóðarinnar. 14.8.2024 19:00
Enginn vindmyllugarður án bættra vega Mikil innviðauppbygging þarf að fara fram ef áætlanir um uppbyggingu vindorkuvers í Dalabyggð eiga að ganga eftir. Verkið mun kosta minnst 40 milljarða og talið er að það muni taka minnst fimmtán ár fyrir verkið til að borga sig. 14.8.2024 13:01
Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum Við ræðum við forstjóra Landhelgisgæslunnar og framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar um útkall í Kerlingarfjöllum í gær. Leitað var í nærri tuttugu tíma að tveimur ferðamönnum sem taldir voru fastir í helli en nú talið að tilkynningin hafi verið gabb. 7.8.2024 18:02