Íslendingar „á leið út af sporinu“ segir Ragnar Freyr „Loksins sést til sólar,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson læknir á Facebook um stöðu Covid-19 faraldursins á hérlendis. Hann segir Íslendinga engu að síður „á leið út af sporinu“ og á þar við þær sóttvarnaaðgerðir sem voru boðaðar fyrir helgi. 16.1.2022 10:45
Jákvæð teikn á lofti í Lundúnum, New York og víðar Svo virðist sem að hægja sé á smitum sums staðar í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hin margumrædda kúrfa er að fletjast út í Lundúnum, suðaustur- og austurhluta Englands og hægt hefur á greiningum í norðurhluta landsins. 16.1.2022 09:46
Kona deyr eftir að hafa verið hrint fyrir lest í New York Fertug kona lést í New York í gær þegar maður gekk upp að henni þar sem hún beið á neðanjarðarlestarstöðinni í Times Square og hrinti henni í veg fyrir lest. 16.1.2022 09:05
Harry freistar þess að fá að greiða fyrir lögregluvernd í Bretlandi Harry Bretaprins hefur farið fram á að dómstólar taki fyrir ákvörðun breska innanríkisráðuneytisins um að neita honum um að greiða fyrir lögregluvernd þegar hann og fjölskylda hans heimsækja Bretland. 16.1.2022 08:35
Lögregla horfði á ökumann aka á ljósastaur Lögregla varð vitni að því í gær þegar ökumaður bifreiða ók beint á ljósastaur. Atvikið átti sér stað í Kópavogi en ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur. 16.1.2022 08:02
Gíslarnir lausir og byssumaðurinn látinn Bandaríska alríkislögreglan réðist inn í bænahús gyðinga Colleyville í nótt, tíu tímum eftir að maður tók fjóra einstaklinga þar í gíslingu. Byssumaðurinn er látinn en lögregla hefur ekki viljað gefa upp hvernig dauða hans bar að. 16.1.2022 07:47
Tvö ungmenni flutt á bráðadeild með áverka eftir flugeldaslys Tvö ungmenni voru flutt með sjúkrabifreið á Landspítala eftir flugeldaslys í gærkvöldi. Um var að ræða tvö aðskilin atvik. Þá voru afskipti höfð af tveimur öðrum ungmennum vegna vörslu fíkniefna, einnig í aðskildum atvikum. 16.1.2022 07:21
Ríkisstjórnarfundi lokið: Tilkynnt um hertar aðgerðir Ríkisstjórnarfundur hófst klukkan 9.30 en en á dagskrá fundarins er meðal annars nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Ráða má í yfirlýsingar Þórólfs í vikunni að hann leggi til hertar sóttvarnaaðgerðir. 14.1.2022 10:15
Flutningaskip Eimskips strandaði í Noregi í gærkvöldi Flutningskipið Polfoss, sem er í eigu Eimskips, strandaði í gærkvöldi við eyjuna Skorpa í Kristiansund í Noregi. Samkvæmt NRK varð skipið vélarvana. 14.1.2022 08:32
Ríkisstjórnin ræðir nýjar tillögur sóttvarnalæknis Ríkisstjórnin mun funda fyrir hádegi í dag og meðal annars ræða minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Þórólfur hefur skilað nýju minnisblaði til heilbrigðisráðherra en hefur ekki viljað gefa upp efni þess. 14.1.2022 06:45
Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Innlent