Sköllóttir karlmenn sagðir í hættu staddir Galdralæknar sem ásælast höfuð sköllóttra manna eru taldir hafa hvatt til morða í Mósambík að undanförnu. Lögreglan varar við því að sköllóttir menn gætu verið í hættu. 7.6.2017 17:55
Norður-Kóreumenn gagnrýna Trump vegna Parísarsamkomulagsins "Þetta er hámark sjálfselskunnar og siðferðislegs tómarúms sem sækist aðeins eftir eigin velferð á kostnað allrar plánetunnar,“ segir utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu um að Donald Trump hafi ákveðið að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. 7.6.2017 17:27
Páfugl gekk berserksgang í vínbúð Dýraeftirlitsmenn máttu hafa sig alla við að ná páfugli sem vafraði inn í vínbúð í Kaliforníu og skemmdi flöskur fyrir hundruð dollara. 6.6.2017 23:42
Telja rússneska hakkara hafa stuðlað að aðgerðum gegn Katar Vísbendingar eru um að rússneskir hakkarar hafi plantað gervifrétt á vef ríkisfréttastofu Katar sem átti þátt í að önnur arabaríki einangruðu landið með viðskiptaþvingunum. Bandarísk yfirvöld hafa aðstoðað við rannsókn málsins. 6.6.2017 22:50
Bráðnun á Grænlandi gæti valdið þurrki í Afríku Ferskvatn úr bráðnandi Grænlandsjökli gæti raksað hafstraumum og breytt veðurfari á viðkvæmu svæði í Afríku. Þurrkur og uppskerubrestur gæti valdið hörmungum fyrir milljónir manna þar samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. 6.6.2017 22:02
May segir mannréttindi ekki munu stoppa baráttuna gegn hryðjuverkum Forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, boðar aukna hörku og mögulegt afnám mannréttinda í baráttunni gegn hryðjuverkum rétt fyrir þingkosniningar. Hún hefur legið undir gagnrýni fyrir að hafa veikt löggæslu í embættistíð sinni. 6.6.2017 19:49
Bandaríkjaher og Trump á öndverðum meiði um aðgerðir gegn Katar Donald Trump lofar aðgerðir Arabaríkja gegn Katar sem hefur engu að síður verið mikilvægt bandalagsríki Bandaríkjanna. Forsetinn segir aðgerðirnar afleiðingu heimsóknar sinnar til Sádí-Arabíu á dögunum. 6.6.2017 19:21
May segir Trump hafa gert rangt með að gagnrýna borgarstjóra London Opinber heimsókn Donalds Trump til Bretlands er enn á dagskrá þó að Theresa May forsætisráðherra telji að Bandaríkjaforseti hafi haft á röngu að standa þegar hann hellti sér yfir borgarstjóra London eftir hryðjuverkin á Londonbrúnni. 6.6.2017 18:05
Loka á tilkynningar í iPhone við akstur Apple býður brátt ökumönnum að loka á tilkynningar og læsa skjánum á iPhone á meðan þeir eru undir stýri. Markmiðið er að fækka slysum sem hljótast af snjallsímanotkun við akstur. 6.6.2017 17:31
Ríkjabandalag gegn loftslagsbreytingum eflist Þrettán bandarísk ríki hafa myndað bandalag um að vinna að markmiðum Parísarsamkomulagsins í loftslagsmálum þrátt fyrir að Donald Trump ætli að draga Bandaríkin út úr alþjóðasamvinnunni. Flest þeirra eru undir stjórn demókrata en tveir ríkisstjórar úr röðum repúblikana hafa gengið í bandalagið. 5.6.2017 23:00