
Komst í 17.500 feta hæð á svifflugvél í sérstökum skilyrðum
Á þriðjudag mynduðust sérstök veðurskilyrði á Sandskeiði þannig að svifflugmenn drifu sig af stað. Ásgeir Bjarnason læknir komst í 17.500 feta hæð.
Fréttamaður
Á þriðjudag mynduðust sérstök veðurskilyrði á Sandskeiði þannig að svifflugmenn drifu sig af stað. Ásgeir Bjarnason læknir komst í 17.500 feta hæð.
Dómari í Kaliforníufylki hefur úrskurðað að ákvæði í kaupmála leikarans Kevin Costner og fyrrverandi eiginkonu hans hönnuðarins Christine Baumgartner sé í fullu gildi. Þarf hún að yfirgefa heimili þeirra í síðasta lagi 31. júlí.
Hreindýraveiðitímabilið verður óbreytt í ár að sögn Bjarna Jónassonar teymisstjóra hjá Umhverfisstofnun. Fagráð um velferð dýra vill seinka tímabilinu vegna velferðar hreindýrskálfa.
Háskólabíó verður aðalbíóhús kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem fram fer í haust. Bíóhúsið verður skreytt að innan í samstarfi við Góða Hirðirinn.
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir menn nú frekar gera ráð fyrir að gos hefjist en ekki. Fundað var um stöðuna í morgun og óvissustigi hefur verið lýst yfir.
Skjálfti mældist 3,6 að stærð með upptök við Fagradalsfjall klukkan 22:45 í kvöld. Skjálftinn kemur í kjölfarið af jarðskjálftahrinu sem hófst síðdegis í dag í norðaustanverðu Fagradalsfjalli, um klukkan 16:00. Um er að ræða stærsta skjálftann sem mælst hefur á Reykjanesskaganum það sem af er ári og fannst hann bæði þar og á höfuðborgarsvæðinu. Enginn órói mælist á svæðinu.
Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð út í Reykjanesbæ í kvöld þegar grunur lék á því að vopnaður maður væri á ferð í bænum.
Þegar leikstjórinn Eilífur Örn Þrastarson lenti í því að Ray Ban sólgleraugunum hans var stolið tók hann málin í sínar hendur. Hann fann gleraugun á ólíklegum stað og segist heppinn að sleppa með þau lifandi úr bæli þjófsins.
Pennasölumenn á Selfossi eru heyrnarlausir Úkraínumenn sem höfðu fengið heimild til að selja í nafni Félags heyrnarlausra. Lögreglunni bárust margar tilkynningar frá borgurum.
Árni Björn Björnsson, veitingamaður á Sauðárkróki, kærði í dag mann sem hann segir að hafi svikið sig um 16 milljónir. Fleiri hafa lagt fram kæru en Árni býst við að svikin nemi hátt í 200 milljónum króna.