Forstjóri Eskju segir útgerðina geta stundum borgað hærri kvótaskatt Forstjóri og aðaleigandi Eskju á Eskifirði er opinn fyrir hærri kvótaskatti og segir að vel megi vera að gjaldtaka fyrir fiskveiðiheimildir sé of lág. Sonur Alla ríka, sem seldi hlut sinn í fyrirtækinu, hafnar því að hann hafi verið að taka út kvótagróða. 22.11.2021 23:50
Handprjónarar bæta hag íslenskra sauðfjárbænda Sauðfjárbændur gleðjast núna yfir hærra ullarverði en íslenskt handprjónaband hefur slegið í gegn meðal prjónafólks, bæði hérlendis og erlendis. Ullarvinnslufyrirtækið Ístex hefur ekki undan við framleiðsluna. 18.11.2021 22:44
Heilaskurðlæknir á Eskifirði hyggst mergsjúga Austfirði „Ég kynntist hérna manni og kom hérna og hugsaði: Váá! Þetta er geggjaður staður,“ svarar Borgnesingurinn Kristín Lilja Eyglóardóttir, þegar hún er spurð hvað heilaskurðlæknir sé að gera á Eskifirði. 18.11.2021 21:01
Nýr vegarkafli að opnast á leiðinni ofan Flókalundar Stefnt er að því að nýr kafli Vestfjarðavegar á leiðinni upp á Dynjandisheiði ofan Flókalundar verði opnaður umferð í næstu viku. Þar með leggst af einn varasamasti hluti vesturleiðarinnar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur; einbreiða brúin yfir Þverdalsá og beygjurnar við brúna. 16.11.2021 22:22
Loðnutorfur fundnar á Hala en bræla hamlar veiðum Áhöfnin á Berki NK, skipi Síldarvinnslunar í Neskaupstað, er búin að sjá loðnutorfur á Halamiðum út af Vestfjörðum. Bræla hamlar hins vegar veiðum sem stendur en búist við að lægi í kvöld. 16.11.2021 13:26
Þegar pilturinn Eiríkur var hálshöggvinn á Eskifirði Ferðamenn sem áhuga hafa á myrkum atburðum Íslandssögunnar gætu bætt Mjóeyri við Eskifjörð á listann. Þar má sjá leiði liðlega tvítugs pilts sem leiddur var á höggstokkinn árið 1786 í hroðalegri aftöku, þeirri síðustu á Austurlandi. 15.11.2021 21:41
Landabruggið á Ísólfsskála breytti örlögum Guðbergs Uppræting bruggverksmiðju í helli við Ísólfsskála á fjórða áratugnum varð til þess að foreldrar Guðbergs Bergssonar rithöfundar ákváðu að flytja þaðan þegar Guðbergur var þriggja ára. Hann ólst því upp í Grindavík en ekki sem bóndasonur á Ísólfsskála, þar sem hann er fæddur. 13.11.2021 15:30
Fyrsta sem Drífa gerði var að horfa til Heklu „Ég náttúrlega stökk út í glugga til að kíkja á Heklu, vinkonu mína. Ég hef hana fyrir augunum og beint úr eldhúsglugganum,“ sagði Drífa Hjartardóttir, fyrrverandi alþingismaður og bóndi á Keldum á Rangárvöllum. 11.11.2021 22:00
Fyrsta veiðiskipið ræst af stað á næstu loðnuvertíð Loðnuveiðar, sem gætu orðið þær mestu í tuttugu ár, eru að hefjast, þremur mánuðum fyrr en síðastliðinn vetur, og var fyrsta veiðiskipið að búa sig brottfarar í Sundahöfn í Reykjavík í dag. 8.11.2021 22:21
Freyja komin til Reykjavíkur Varðskipið Freyja, nýjasta fley Landhelgisgæslunar, kom til Reykjavíkur í fyrsta sinn síðdegis eftir siglingu frá heimahöfn sinni á Siglufirði. Þar hafði komu hennar til landsins verið fagnað með viðhöfn á laugardag. 8.11.2021 21:10