Nýjar kirkjutröppur á Akureyri tilbúnar í október Vinsælustu kirkjutröppum landsins hefur verið lokað en það eru tröppurnar við Akureyrarkirkju. Ástæðan er sú að það á að útbúa nýjar tröppur með snjóbræðslu í öllum þrepum og pöllum. Kostnaður við verkið er um tvö hundruð milljónir króna. 2.7.2023 20:30
Allir bestu hestar og knapar landsins eru nú á Selfossi Fyrstu Íslandsmeistararnir í skeiði fyrir árið 2023 voru krýndir í dag á Íslandsmótinu í hestaíþróttum, sem fer nú fram á Selfossi en þar eru nú allir bestu hestar og knapar landsins staddir. 1.7.2023 20:31
Sérstakt Eric Clapton herbergi á Hótel Blönduósi Heilmikið líf er að kvikna í gamla bænum á Blönduósi því þar er búið að vera að gera upp gömul hús og koma þeim í rekstur, meðal annars Hótel Blönduósi þar sem Eric Clapton á sitt eigið herbergi. 26.6.2023 20:49
Laxveiði hafin í Ölfusá Fjölmenni mætti snemma í morgun við veiðisvæði Stangaveiðifélags Selfoss til að fagna því að laxveiði sumarið 2023 er formlega hafið í Ölfusá. Bragi Bjarnason, formaður bæjarráðs Árborgar tók fyrstu köstin. 21.6.2023 07:46
107 kýr í nýju og glæsilegu fjósi í Þrándarholti Nýtt og glæsilegt fjós hefur verið tekið í notkun á bænum Þrándarholti í Skeiða og Gnúpverjahreppi fyrir 107 kýr. Tveir mjólkurróbótar eru í fjósinu. 18.6.2023 21:06
33 milljónir flaskna af íslensku vatni til Bandaríkjanna Sala á íslensku vatni úr landi hefur sjaldan eða aldrei gengið eins vel og um þessar mundir enda hafa vélarnar hjá Ölgerðinni ekki undan að tappa vatninu í flöskur þrátt fyrir að vera að störfum allan sólarhringinn. Á síðasta ári seldi fyrirtækið 33 milljónir flaskna í tvö þúsund og fimm hundruð gámum, sem fóru aðallega til Bandaríkjanna. 18.6.2023 13:30
Sveitarstjórinn kom færandi hendi með morgunverðarkörfu Eldri borgar í Flóahreppi vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið í morgun þegar sveitarstjórinn kom færandi hendi með morgunarverðarkörfu að gjöf til íbúa níutíu ára og eldri í tilefni dagsins. Um var að ræða sjö heimili í sveitinni. 17.6.2023 20:04
Helmingur kúabúa landsins eru með róbót Mjólkurróbótar njóta sífellt meiri vinsælda í fjósum landsins en af þeim 480 kúabúum, sem eru í landinu er helmingur þeirra með róbót. Nýr róbót kostar um tuttugu og fimm milljónir króna. 17.6.2023 13:31
Níu milljónir ferna drukknar af Kókómjólk árlega Því er núna fagnað að Kókómjólkin á fimmtíu ára afmæli en hún hefur alltaf verið framleidd í mjólkurbúinu á Selfossi. Í dag eru um níu milljónir ferna drukknar af Kókómjólk á ári en Kókómjólkin er eitt dýrmætasta vörumerki Mjólkursamsölunnar í dag. 14.6.2023 20:31
Dimma gæðir sér á pönnuköku úr munni eiganda síns Pönnukökur eru í mestu uppáhaldi hjá Dimmu, sem er taminn hrafn, sem býr í Heiðmörk í Reykjavík. Dimma er ánægðust þegar eigandinn heldur á henni og biður hana að gera ýmsar æfingar. Á heimilinu er líka risa hundur, sem heitir Rjúpa. 11.6.2023 20:31