Sekta ekki strax fyrir notkun nagladekkja Í dag er síðasti dagurinn sem aka má um á nagladekkjum samkvæmt reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Lögreglan mun þó ekki byrja að sekta þau sem aka um á nagladekkjum á morgun, það verður ekki gert fyrr en í næsta mánuði. 15.4.2023 14:26
Lést í bílslysi skömmu eftir jarðarför eiginmannsins Sara Nowak, 42 ára gömul kona frá Wisconsin, lést í bílslysi einungis fimm klukkustundum eftir jarðarför eiginimannsins, Louis Nowak. Patricia Cartwright, móðir konunnar, segir þetta erfitt en það sé huggun harmi gegn að þau séu nú saman í eftirlífinu. 15.4.2023 13:27
Harma viðhorf í grein grunnskólakennara Kennarasamband Íslands (KÍ) hefur birt yfirlýsingu vegna viðhorfa sem koma fram í skoðanagrein grunnskólakennara. Í greininni var því velt upp hvort Samtökin '78 gerist brotleg við barnaverndarlög. Formaður KÍ segir sambandið fullvisst um að íslenskir kennarar fari eftir jafnréttisáætlun sambandsins. 15.4.2023 11:37
„Þetta er bara vitleysa finnst mér“ Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, auglýsti starf í gær þar sem óskað var eftir því að fá karlkyns manneskju í starfið. Auglýsingin uppskar töluverða gagnrýni sem Kristján furðar sig á en hann útskýrir hvers vegna hann auglýsti starfið með þessum hætti. 15.4.2023 10:47
Þrautin þyngri að verða sér úti um grautinn Grjónagrautur frá Mjólkursamsölunni (MS) hefur verið illfáanlegur á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Rekja má þetta til þess að MS fékk ranga tegund af grjónum í síðustu sendingu frá birgjanum. Verið er að vinna í að fá réttu grjónin aftur. 14.4.2023 14:54
Selur allt sitt í Nova Stærsti einstaki hluthafi fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur selt öll hlutabréf sín í fyrirtækinu. Félagið, Nova Acquisition Holding ehf., átti 11,1 prósent hlut í Nova eða 424.495.186. Hlutabréfin voru seld á genginu 4,8 krónur fyrir rúmlega tvo milljarða króna. 14.4.2023 10:28
Samskip fá vetnisknúin flutningaskip Samskip hafa samið um smíði á tveimur vetnisknúnum flutningaskipum. Um er að ræða skip sem ætluð eru til notkunar á skemmri siglingaleiðum í Evrópu. Félagið segir að samningurinn sé skref í átt að útblásturlausum skipaflutningum. 14.4.2023 10:11
Landsliðskona ráðin fræðslu- og þróunarstjóri Elísa Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur verið ráðin sem fræðslu- og þróunarstjóri hjá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Feel Iceland. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun á fæðubótaefnum sem innihalda kollagen prótein úr íslensku fiskroði. 14.4.2023 09:54
Egill tekur við Gauta sem framkvæmdastjóri Heimstaden Egill Lúðvíksson er nýr framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi. Hann tekur við stöðunni af Gauta Reynissyni í sumar. Síðustu fjögur ár hefur Egill starfað hjá móðurfélagi Heimstaden í Kaupmannahöfn við fjárfestingar, stefnumótun og fjármögnunn á ýmsum starfssvæðum fyrirtækisins. 14.4.2023 09:27
Stálu gríðarlegu magni af klinki Þjófar sem brutust inn í flutningabíl sem lagður var yfir nótt á bílastæði í borginni Fíladelfíu í Bandaríkjunum höfðu á brott með sér gríðarlegt magn af klinki sem var verið að geyma í bílnum. Alls var magnið af klinkinu í bílnum sjö hundruð og fimmtíu þúsund dollara virði en talið er að þjófarnir hafi náð að taka um hundrað þúsund dollara virði með sér. 14.4.2023 08:49