Launmorð á götum New York Umfangsmikil leit stendur yfir í New York í Bandaríkjunum að manni sem skaut mann til bana fyrir utan hótel á Manhattan. Brian Thompson, forstjóri UnitedHealthcare, eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna, var skotinn ítrekað þar sem hann var að halda fjárfestaráðstefnu. 4.12.2024 17:50
Tveir grunaðir um frelsissviptingu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um rán og frelsissviptingu í íbúð í Breiðholti. Tveir voru handteknir þegar lögregluþjóna bar að garði og settir í fangaklefa. 4.12.2024 17:31
Fjárhagsáætlun samþykkt eftir ellefu tíma umræður Borgarstjórn Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi í kvöld fjárhagsætlun borgarinnar fyrir næsta ár. Einar Þorsteinsson, borgarstjóri, mælti fyrir fjárhagsáætlun í fyrsta sinn en samkvæmt henni á bæta stöðu borgarsjóðs hraðar en áður stóð til. 3.12.2024 23:31
Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag bann við útflutningi nokkurra tegunda svokallaðra „sjaldgæfra málma“ til Bandaríkjanna. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn Joes Biden tilkynnti aðgerðir til að sporna gegn aðgengi Kínverja af mikilvægri tækni frá Bandaríkjunum. 3.12.2024 23:02
Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Lögmenn Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á það við dómara í New York að sakfelling Trumps í þöggunarmálinu svokallaða verði felld niður. Vísa þeir til þess að það að halda málinu áfram myndi fela í sér truflanir á forsetaembættinu sem færi gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. 3.12.2024 21:54
Herlögin loks felld úr gildi Ríkisstjórn Suður-Kóreu hefur fellt herlög sem sett voru á þar fyrr í kvöld úr gildi. Forsvarsmenn hers ríkisins hafa sömuleiðis slitið herlagastjórninni þar á bæ og hafa hermenn verið fluttir aftur til herstöðva sinna. 3.12.2024 20:51
Skæð fuglaflensa fannst í kalkúnum í Ölfusi Skæð fuglaflensa af gerðinni H5N5 var staðfest í alifuglum í Ölfusi í dag. Undirbúningur fyrir aflífun fuglanna er hafin og á að beita sóttvarnarráðstöfunum til að reyna að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. 3.12.2024 20:12
Afturkalla átta friðlýsingar Friðlýsingar átta svæða á Íslandi hafa verið afturkallaðar. Var það gert vegna úrskurðar Hæstaréttar Íslands frá því í mars um að friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum frá árinu 2019 hefði verið ólögmæt. 3.12.2024 20:01
Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Harðir bardagar eru sagðir eiga sér stað milli uppreisnar- og vígamanna annars vegar og stjórnarhers Bashars al-Assad, forseta Sýrlands, og annarra sveita honum hliðhollar hinsvegar norður af borginni Hama. Það er ein af stærstu borgum Sýrlands og höfuðborg Hama-héraðs og hafa uppreisnarmennirnir tekið nokkra bæi norður af borginni í dag. 3.12.2024 18:31
Stalker 2: Töluvert gallaður en æðislegur leikur S.T.A.L.K.E.R. 2: Heart of Chornobyl er æðislegur leikur. Hann er þó töluvert gallaður enn sem komið er, en í rauninni á maður ekki að búast við öðru af Stalker-leik. Andrúmsloft leiksins stendur upp úr 3.12.2024 08:45