Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Samúel Karl Ólason skrifar 27. febrúar 2026 00:06 Warner Bros. Discovery mun nú að öllum líkindum enda í höndum Ellison-feðganna eftir mikla baráttu þeirra við Netflix. Getty/Mario Tama Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt.
Því er útlit fyrir að Paramount muni eignast allan rekstur WBD en áður ætlaði stjórn félagsins að skipta því upp. Selja átti Netflix kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðslu WBD, auk streymisveitunnar HBO Max. Sjónvarpsstöðvar WBD, eins og Discovery, CNN og TNT yrðu svo áfram reknar í sér félagi. Forsvarsmenn Paramount, sem er að mestu í eigu Larry Ellison, eins auðugasta manns heims, en David sonur hans er forstjóri félagsins, höfðu gert ítrekaðar tilraunir til að gera betur en Netflix og reyndu meðal annars svokallaða fjandsamlega yfirtöku en í einföldu máli sagt felur slíkt í sér að fara fram hjá stjórn WBD og kaupa hlutabréf í félaginu beint af hluthöfum. Þannig gæti Paramount náð meirihluta í WBD og skipað sitt fólk í nýja stjórn. Þetta ferli er þó töluvert flókið og sagði stjórn WBD hluthöfum að hafna tilboðinu. Það virkaði ekki. Þá gerði félagið nýtt tilboð í síðustu viku og hækkaði sitt fyrra boð töluvert. Samkomulagið sem stjórn WBD hafði gert við Netflix fól meðal annars í sér að ef önnur og betri tilboð myndu bjóðast hefði Netflix rétt á því að jafna þau. Nýjasta tilboð Paramount til hluthafa felur meðal annars í sér að greiða þá 2,8 milljarða dala sem það mun kosta að rifta samkomulaginu við Netflix. Fór áður til Washington Í tilkynningu frá Ted Sarandos og Greg Peters, forstjórum Netflix, segir að nýja tilboð Paramount sé of hátt og það myndi ekki lengur borga sig fyrir félagið að hækka sitt tilboð í þann hluta WBD sem Netflix vildi eignast. Þar segjast forsvarsmenn Netflix alltaf hafa stigið fram af ábyrgð við hluthafa Netflix og það að hækka tilboðið enn frekar væri ekki í þeirra þágu. Blaðakona Politico segir að Sarandos hafi varið rúmum klukkutíma með Pam Bondi dómsmálaráðherra og háttsettum embættismönnum sem koma að samkeppnismálum í Bandaríkjunum í dag. Þar mun hann hafa farið fram á tryggingar um að Netflix myndi fá sanngjarnt tækifæri til að fá samruna við WBD samþykktan af ríkisstjórn Donalds Trump, ef Netflix reyndi að kaupa félagið. Bondi og aðrir sögðu honum samkvæmt Politico að svo yrði. Töldu sig í betri stöðu gagnvart ríkisstjórn Trumps Forsvarsmenn Paramount Skydance hafa talið sig í bestri stöðu til að fá samrunann samþykktan en fyrirtækið var nýlega myndað úr samruna fyrirtækjanna Paramount og Skydance, eftir að Paramount greiddi Trump bætur vegna viðtals fréttaskýringarþáttarins 60 mínútna við Harris í aðdraganda kosninganna. Ellison-feðgarnir hafa átt í góðum samskiptum við Trump en þeir eru til að mynda meðal stærstu fjárfesta í starfsemi Tik Tok í Bandaríkjunum. Þá er markaðsstaða Paramount verri en staða bæði Netflix og WBD. David Ellison, forstjóri Paramount og sonur auðjöfursins Larry Ellison, fundaði nýverið með Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Nokkrum dögum síðar sagðist Trump ekki koma með nokkrum hætti að málinu. Hann hafði áður sagt að hann myndi taka virkan þátt í því að taka ákvörðun um það hvort yfirvöld Bandaríkjanna myndu samþykkja kaupin.
Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Netflix Streymisveitur Donald Trump Mest lesið Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Viðskipti erlent Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Viðskipti innlent Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Viðskipti innlent Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Viðskipti innlent Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Viðskipti innlent Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Trump hækkar tolla á öll lönd Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Einn stofnenda ASOS fannst látinn Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Hefja aftur viðræður við Paramount ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira