„Skiljum ekki alltaf konur en skilningurinn hefur aukist“ Kristján Guðmundsson vitnaði í Arsene Wenger, setti stefnuna á Íslandsmeistaratitil og útskýrði hvernig námskeið í að tala við stelpur hefur hjálpað honum, í viðtali eftir frábæran árangur kvennaliðs Stjörnunnar í fótbolta undir hans stjórn. 4.10.2022 07:31
Sú besta var á leið úr landi og átti bara eftir að skrifa nafnið sitt Besti leikmaðurinn og efnilegasti leikmaður Bestu deildar kvenna í fótbolta í sumar mættu sem gestir í uppgjörsþátt Bestu markanna eftir lokaumferðina á laugardag. 3.10.2022 14:33
„Egill Magnússon er týndur og tröllum gefinn“ Sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni ræddu í síðasta þætti um vandræði FH-inga og sérstaklega framlag Egils Magnússonar sem skoraði ekki mark, úr sjö skotum, í 25-25 jafnteflinu við Fram í Olís-deildinni í handbolta. 3.10.2022 14:00
Draumar Jasmínar halda áfram að rætast Jasmín Erla Ingadóttir hefur átt frábæra síðustu daga og í dag var hún svo valin í íslenska landsliðið sem á fyrir höndum úrslitaleik um sæti á HM í fótbolta. 3.10.2022 12:50
Harma hegðun „nokkurra skemmdra epla“ Knattspyrnufélagið Víkingur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem framkoma nokkurra stuðningsmanna á bikarúrslitaleiknum um helgina er hörmuð. Félagið hefur óskað eftir myndum og upptökum og vill ná tali af mönnunum. 3.10.2022 12:20
Sara mætir hinum meisturunum og Barcelona er í Íslendingariðli Sara Björk Gunnarsdóttir fer á sinn gamla heimavöll í Lyon og þarf einnig að takast á við Arsenal, í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í vetur. Fjöldi íslenskra landsliðskvenna er í liðunum 16 sem spila í keppninni. 3.10.2022 11:28
Sigurður fyrstur Íslendinga til að vinna og fer á HM Sigurður Örn Ragnarsson úr Breiðabliki varð um helgina fyrstur Íslendinga til að vinna alþjóðlega keppni í Ironman þegar hann fagnaði sigri í Barcelona. 3.10.2022 11:02
Sjáðu sjálfsmark KR, dönsku skærin og vonbrigði ÍA: „Þú stendur ofan í þessu“ Fyrsta úrslitakeppnin í sögu efstu deildar karla í fótbolta fór af stað í gær með einum leik í efri hluta og tveimur í neðri hluta. Ellefu mörk voru skoruð og rauða spjaldið fór tvisvar á loft, eins og sjá má í myndböndum hér á Vísi. 3.10.2022 09:00
Stólpagrín gert að Hart stem steinlá Joe Hart, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Englands, þótti sýna mikla leikræna tilburði í leik með Celtic gegn Motherwell í skosku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. 3.10.2022 08:30
Haaland fékk fyndin skilaboð frá liðsfélaga á boltann „Þetta á eftir að kosta mikinn pening í kaupum á fótboltum,“ skrifaði Aymeric Laporte, leikmaður Manchester City, við mynd af þeim Erling Haaland og Phil Foden sem báðir fengu keppnisbolta til eignar eftir að hafa skorað þrennu í 6-3 sigrinum gegn Manchester United. 3.10.2022 08:01
„Síðan þurfti bara Dagur Sigurðsson að taka frekjukast í beinni og niðurlægja handboltann í heild sinni“ Handbolti