Skólastarf á nær öllum Suðurnesjum á morgun Að öllu óbreyttu verður skólastarf á morgun í leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum á morgun að undanskyldum Sandgerðisskóla og leikskólanum Sólborg í Suðurnesjabæ. 11.2.2024 18:35
Álag við þolmörk um kvöldmatarleyti og brýnt að raforkunotkun sé takmörkuð HS veitur biðla enn og aftur til íbúa Suðurnesja að fara sparlega með rafmagn um kvöldmatarleytið vegna ástandsins sem þar er en heitavatnslaust hefur verið síðan á fimmtudag. 11.2.2024 17:56
Jarðskjálfti fannst á Akureyri Jarðskjálfti að stærð 3,0 mældist sex kílómetrum suðaustan af Flatey á Skjálfanda á um 12km dýpi. 11.2.2024 17:15
Íbúar á Íslandi talsvert færri en áður var talið Nýtt mat Hagstofu Íslands á íbúafjölda hér á landi hefur leitt í ljós að íbúar eru talsvert færri en opinberar hagtölur hafa bent til. Þar af leiðandi hefur hagvöxtur á mann verið meiri á síðastliðnum árum en opinberar hagtölur benda til og verðmætasköpun á mann er orðin hin sama og fyrir faraldur þvert á niðurstöður opinberra hagtalna. 10.2.2024 23:03
Segist treysta sér til að lifa á laununum sem SA býður breiðfylkingunni Ríkissáttasemjari hyggst ekki boða breiðfylkingu stéttarfélaga og Samtök atvinnulífsins til fundar innan tveggja vikna nema hann finni fyrir vilja hjá þeim til að ræða málin. Breiðfylking stéttarfélaga sleit kjaraviðræðum við SA síðdegis í gær. Framkvæmdastjóri SA segir ekki hægt að gera það að skilyrði í kjarasamningum að Seðlabanki Íslands lækki hjá sér stýrivexti. 10.2.2024 22:00
Víðir kominn í veikindaleyfi Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna er kominn í veikindaleyfi. Þar til hann kemur aftur mun restin af Almannavarnateyminu skipta verkefnum hans á milli sín. 10.2.2024 19:58
„Þetta verður erfið vika“ Samskiptastjóri Almannavarna segir sviðsmyndina á Suðurnesjum svarta eins og staðan er núna. Heitavatnslaust er á öllum Suðurnesjum og hún segir ljóst að erfið vika blasi við. 10.2.2024 19:21
Suðurnesjabúar fá frítt í sund í Hveragerði Hveragerðisbær býður íbúum á Suðurnesjum frítt í sundlaugina í Laugaskarði í Hveragerði í dag og svo lengi sem heitavatnsleysi varir. 10.2.2024 18:29
Fólk slökkvi á rafmagnsofnum meðan önnur orkufrek raftæki eru notuð Vonast er til þess að rafmagn og heitt vatn verði komið aftur á öll Suðurnes eftir viku. Unnið er að því að byggja nýja heitavatnslögn eftir að hraun flæddi yfir hjáveitulögn í núliðnu eldgosi. 10.2.2024 18:16
Rafmagn komið aftur á í Kópavogi Rafmagn er nú komið aftur á í Kópavogi. Rafmagnslaust var í hluta bæjarins á sjötta tímanum vegna bilunar. 10.2.2024 17:36