Birtist í Fréttablaðinu

Universal boðar mikla hörku í lagastuldarmáli
Útgáfurisinn Universal hafnar algerlega kröfu Jóhanns Helgasonar vegna lagsins You Raise Me Up og kveðst munu verjast af krafti láti hann verða af þeirri "hótun“ að fara með málið fyrir dómstóla. Rolf Løwland svaraði ekki fyrirspurnum.

Sætaskipti í hlerunarmáli Hreiðars Más
Hreiðar Már Sigurðsson sneri vörn í sókn í héraðsdómi. Forstjórinn fyrrverandi telur að brotið hafi verið á sér við framkvæmd hlerana. Dómari hafnaði ásökunum um að hafa afhent úrskurðarorð áður en úrskurður lá fyrir. Tímasetningar tölvupósta gætu skipt sköpum.

Sótmengunin hér er eins og í Rotterdam
Sótmengun af völdum umferðar í Reykjavík jafnast á við það sem gerist í stórborgum erlendis svo sem Rotterdam og Helsinki. Borgarbúar fastir í umferðarhnút berskjaldaðri fyrir sótmengun en gangandi vegfarendur

Vilja selja 40% ríkisins í TV 2
Árleg framlög sem danskir fjölmiðlar fá úr ríkissjóði til að veita almannaþjónustu hækka úr 35 milljónum danskra króna í 220 milljóni

Íslendingar eru flóttafólk
Vilborg Davíðsdóttir fagnar 25 ára höfundarafmæli í ár.

LBI vann ellefu dómsmál
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í síðustu viku öllum kröfum fyrrverandi eigenda hlutdeildarskírteina í peningamarkssjóðum Landsvaka í ellefu prófmálum sem höfðuð voru á hendur eignarhaldsfélaginu LBI.

Kom á óvart að fá nei en lét það ekki stoppa sig
Sara Björnsdóttir myndlistarkona opnar sýningu í London á morgun, þá fyrstu af þremur, þar sem vinir hennar, sem eru íslenskir og erlendir listamenn, fá tækifæri til þess að sýna verk sín í stórborginni.

Þolinmæði er lykilorðið okkar
Guðmundur Guðmundsson stýrir íslenska landsliðinu á ný í fyrsta sinn í kvöld gegn Noregi í Gullmótinu. Guðmundur hlakkar mikið til þess að henda efnilegum leikmönnum íslenska liðsins út í djúpu laugina.

Hljóðgervlar og nostalgía í hljóðspori
Helgi Sæmundur tónlistarmaður samdi hljóðsporið fyrir þættina um Stellu Blómkvist. Á morgun verður tónlistin gefin út af Lakeshore Records, útgáfufyrirtæki sem sérhæfir sig í hljóðsporum.

Íslensk setning í danska Eurovision-laginu
Jonas Rasmussen sem flytur lagið Higher Ground fyrir hönd Dana í Eurovision-keppninni í ár hendir inn setningunni Taka stökk til hærri jörð í laginu. Flosi, formaður FÁSES, segir að þetta sé að öllum líkindum í fyrsta skipti sem íslenska bregður fyrir í útlensku lagi.

Tiger mætir aftur á stærsta svið golfsins
Hið sögufræga Masters-mót í golfi hefst í dag á Augusta-vellinum. Augu flestra golfáhugamanna eru á Tiger Woods sem þykir einn af sigurstranglegustu kylfingunum.

Framleiðslustopp á Accord vegna dræmrar sölu
Þrátt fyrir að ný kynslóð Honda Accord hafi fengið góða dóma er sala í þessum flokki fólksbíla dræm.

Spielberg er enn að ögra sjálfum sér
Steven Spielberg er áhrifamesti kvikmyndaleikstjóri vorra tíma. Áhrif hans eru djúpstæð og varanleg. Hann sigraði heiminn með léttleikandi ævintýrum en í seinni tíð hefur hann verið á alvarlegri nótum þar til nú þegar hann stígur inn

Meta bréf Vodafone yfir markaðsvirði
Hagfræðideild Landsbankans metur gengi hlutabréfa í Vodafone á 77,8 krónur á hlut, sem er ríflega 10 prósentum yfir skráðu gengi bréfanna eftir lokun markaða í gær, samkvæmt nýlegu verðmati sem Fréttablaðið hefur undir höndum.

Nýr Nissan Leaf valinn grænasti bíll heims
Leaf, mest seldi rafbíll heims, er tákngervingur Nissan í grænni samgöngustefnu sem hefur það að markmiði að draga sem mest úr neikvæðum umhverfisáhrifum bíla.

Bjórsíða Coca-Cola á Íslandi aðgengileg unglingum á Facebook
Þar til í gær var Facebook-síða íslenska bjórframleiðandans Víking brugghúss aðgengileg unglingum undir áfengiskaupaaldri.

Þingmönnum boðið að rækta núvitundina
Tvö verkefni Núvitundarsetursins voru meðal þeirra 169 sem fengu úthlutaða styrki úr Lýðheilsusjóði.

Fjármálaáætlun háð miklum óvissuþáttum
Lítið má út af bregða til að hið opinbera standist ekki lög um opinber fjármál. Afgangur ríkissjóðs næstu fimm ár er í lágmarki. Fjármálaráðherra telur mestu ógnina felast í að ekki náist sátt á vinnumarkaði.

Ætla að fá myndavélar til að fæla eggjaþjófa frá
Baráttumenn fyrir verndun íslenska fálkastofnsins safna fyrir myndavélum til að vakta hreiður fálkanna. Bóndi í Aðaldal hefur þegar sett upp myndavél við eitt hreiður sem varð til þess að fálkapar kom upp ungum eftir margra ára bið.

Fyrsta einkasýningin á 60 ára myndlistarferli
Hilmar Hafstein Svavarsson opnar sína fyrstu einkasýningu á myndverkum í veitingastofum Hannesarholts í dag, 5. apríl, klukkan 16.

Hertók þinghúsið í skugga vantrausts
Hermenn, hliðhollir Mohamed Osman Jawari, forseta sómalíska þingsins, hertóku í gær sómalíska þinghúsið. Frá þessu greindi sómalíski fjölmiðillinn Shabelle í gær.

Fimmtíu ára skáli ekki nýbygging
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi álagningu skipulagsgjalds á ker- og steypuskála Rio Tinto Alkan í Straumsvík.

Fleiri tekjuháir nýta sér Airbnb
Tekjuháir ferðamenn nýta sér leiguvefinn Airbnb í síauknum mæli. Fyrir fáeinum árum gistu aðallega tekjulægri ferðamenn í Airbnb-íbúðum. Viðsnúningurinn hefur verið hraður, að sögn hagfræðings.

Óábyrg í ljósi spádóma
Stjórnarandstöðuþingmenn segja fjármálaáætlunina vonbrigði. Of lítið sé lagt í nauðsynlegar úrbætur í samgöngukerfinu og örorku- og ellilífeyrisþegar mæti afgangi. Varaformaður Viðreisnar segir stjórnina líta fram hjá stöðu hagkerfisins.

Kennslanefnd verst frétta
Kennslanefnd bíður enn eftir niðurstöðum lífsýnarannsóknar í Svíþjóð til að mögulegt verði bera kennsl á þær líkamsleifar sem fundust á hafsbotni um fimmtán til tuttugu sjómílur suður af Malarrifi í síðasta mánuði.

Fagráð á móti afnámi auglýsingabanns
Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna hjá Landlækni segir klárt að auglýsingum og markaðssetningu á áfengi fylgi aukin neysla. Misráðið væri að slaka á áfengislöggjöf hér á sama tíma og verið sé að herða hana í mörgum löndum.

Pútín býst við heilbrigðri skynsemi
Rússar sigri hrósandi eftir ummæli framkvæmdastjóra rannsóknarstofu breska hersins um eitrið sem Sergei Skrípal var byrlað. Fóru fram á neyðarfund Efnavopnastofnunarinnar. Bretar standa þó enn fast á sínu og bandamennirnir standa við bakið á þeim.

Aðalatriðið að halda áfram að pjakka
Ljóð og sögur Þórarins Eldjárns koma út í litlum bókum sem áætlað er að verði alls 128. Tvær nýjar ljóðabækur á leiðinni og þýðing á Hamlet fyrir Þjóðleikhúsið.

Hagnaður Júpíters tvöfaldaðist
Júpíter rekstrarfélag, sem er í eigu Kviku banka, hagnaðist um rúmar 59 milljónir króna á síðasta ári. Tvöfaldaðist hagnaðurinn á milli ára.

Þemað er umburðarlyndi
Barnakvikmyndahátíð hefst í Bíói Paradís á morgun með opnunarhátíð, sem forseti Íslands heiðrar ásamt fjölskyldu sinni. Frítt er á opnunina. Krakkar eru hvattir til að mæta í búningi.