Sýrland

Sýrland

Höfuðborg: Damaskus. Mannfjöldi: 25,6 milljónir (2025). Flatarmál: 185.180 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Síðustu her­mennirnir fara frá Írak, aftur

Bandarískir hermenn munu á morgun fara frá síðustu herstöðvum sínum í Írak, eftir rúmlega tveggja áratuga viðveru þar, með hléum. Íranir og bandamenn þeirra, sem njóta mikilla áhrifa í Írak þessa dagana, líta á brottflutninginn sem sigur.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Klerka­stjórnin missir tökin

Ráðamenn í Íran vöruðu í dag við því að þeir gætu gert árásir á bandarísk skotmörk í Mið-Austurlöndum og á olíuvinnsluinnviði í nágrannaríkjum sínum. Klerkastjórnin virðist þó vera að missa tökin á Hormússundi og þar af leiðandi missa vogarafl í mögulegum viðræðum við Bandaríkjamenn.

Erlent
Fréttamynd

Þegar ekki er mögu­legt að fara heim

Í umræðu um málefni flóttafólks er stundum talað um og það geti „farið aftur heim“ þegar ástandið í viðkomandi landi róast. Í sumum tilfellum getur fólk farið aftur heim. Það átti til dæmis við um flóttafólk frá Bosníu og Kósovó, sem flúðu stríðsátök í lok síðustu aldar, en gátu svo flest snúið aftur eftir alþjóðasamninga sem tryggðu öryggi þeirra við heimkomu. En í öðrum tilfellum er raunveruleikinn allt annar og upp getur komið sú staða að ekki er mögulegt fyrir viðkomandi að flytja aftur heim.

Skoðun
Fréttamynd

Þrjár „brúðir ISIS“ á­kærðar fyrir hryðju­verk og þræla­hald

Þrjár konur sem dvalið hafa um árabil í búðum fyrir fjölskyldur erlendra vígamanna Íslamska ríkisins lentu í Ástralíu í dag. Ein verður ákærð fyrir hryðjuverkastarfsemi og hinar tvær fyrir þrælahald. Konurnar eru hluti af stærri hópi kvenna frá Ástralíu sem ferðuðust á sínum tíma til Sýrlands til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og börn þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu

Fjórar konur og níu börn þeirra, sem dvalið hafa í búðum fyrir fjölskyldur erlendra meðlima Íslamska ríkisins í um sjö ár, eru á leið til Ástralíu. Til stendur að handtaka einhverjar kvennanna þegar þær koma aftur til landsins en þaðan ferðuðust þær á árum áður til að ganga til liðs við Íslamska ríkið og giftast vígamönnum hryðjuverkasamtakanna.

Erlent
Fréttamynd

Sementsrisi dæmdur fyrir að fjár­magna Ríki íslams

Franskur dómstóll dæmdi sementsframleiðandann Lafarge til þess að greiða sekt og stjórnendur þess í fangelsi fyrir að fjármagna hryðjuverkasamtök í Sýrlandi. Fyrirtækið greiddi samtökunum svokallað verndargjald til þess að halda starfsemi sinni í landinu stríðshrjáða gangandi.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Mót­mæla og biðla til utan­ríkis­ráð­herra

Samfélag Kúrda á Íslandi hefur boðað til mótmæla í dag og krefst tafarlausrar aðgerða vegna alvarlegrar stöðu Kúrda í Sýrlandi og Tyrklandi. Talsmaður hópsins segir kallar eftir því að utanríkisráðherra beiti sér fyrir vopnahléi.

Innlent
Fréttamynd

Miklar sviptingar í Sýr­landi

Stjórnarher Sýrlands og aðrar sveitir hliðhollar stjórnvöldum hafa í dag og um helgina rekið sýrlenska Kúrda (SDF) og bandamenn þeirra á brott frá stórum svæðum í austurhluta Sýrlands. Harðir bardagar eru sagðir eiga sér stað í borginni Raqqa og er herinn sagður hafa náð mikilvægum olíulindum í austurhluta landsins.

Erlent
Fréttamynd

Hverfi Kúrda í Aleppo í her­kví

Sýrlenskir stjórnarhermenn hafa komið sér fyrir í borginni Aleppó í norðurhluta landsins eftir margra daga átök við vígasveitir Kúrda. Tugir manna hafa fallið og særst í átökunum.

Erlent
Fréttamynd

Sýrlendingar sam­þykkja að taka við Kourani

Yfirvöld í Sýrlandi hafa samþykkt að taka við Mohamad Kourani, sem var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir rúmu ári, verði hann sendur þangað. Nú stendur það aðeins á náðunarnefnd að hann verði fluttur úr landi og settur í endurkomubann í áratugi.

Innlent
Fréttamynd

Biður Pútín um að af­henda Assad

Ahmed al-Sharaa, forseti Sýrlands, er í Moskvu þar sem hann mun í dag funda með Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þeir eru sagðir ætla að ræða samskipti ríkjanna, veru rússneskra hermanna í Sýrlandi og mögulega örlög fyrrverandi einræðisherra Sýrlands, Bashar al-Assad.

Erlent
Fréttamynd

Kourani sótti um náðun af heil­brigðis­á­stæðum

Sjálfstæð náðunarnefnd hefur umsókn frá Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Kourani, um náðun af heilbrigðisástæðum til meðferðar. Aðeins ár er liðið frá því að hann hlaut átta ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot.

Innlent
Fréttamynd

Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð

Síðasta sunnudag brutust út blóðug átök í borginni Sweida í suðurhluta Sýrlands á milli vopnaðra hópa Drúsa og Bedúína. Nýviðtekin ríkisstjórn Sýrlands, undir forystu Ahmads al-Sharaa, sendi herlið í borgina undir því yfirskini að stilla til friðar en við það stigmögnuðust átökin.

Erlent
Fréttamynd

Ættingjar að verða fyrir hrylli­legum ódæðum

Drúsar búsettir á Íslandi boðuðu síðdegis í dag til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í Reykjavík. Um er að ræða önnur mótmælin á þremur dögum en tilefnið eru blóðug átök í borginni Sweida í suðurhluta Sýrlands á milli Drúsa og Bedúína. 

Innlent
Fréttamynd

Drúsar mót­mæla við sendi­ráðið

Drúsar búsettir á Íslandi mótmæla nú fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig. Mótmælin hafa farið friðsamlega fram en mikil átök hafa geisað á heimaslóðum drúsa í Sýrlandi sem hafa kostað marga lífið.

Innlent