Icelandair

„Ég hef aldrei séð svona mikla samstöðu í hópnum“
Mikil samstaða er meðal flugfreyja-og þjóna í kjarabaráttu við Icelandair.

Icelandair geti lifað af núverandi ástand til næsta vors
Flugáætlun Icelandair frá því um áramót hefur aðeins verið um þrjú prósent af þeirri áætlun sem lá fyrir um fjölda farþega um áramótin. Venjulega fara flugvélar félagsins í 240 ferðir á viku en þær hafa aðeins verið sex á viku undanfarið.

Hlutafjárútboð Icelandair samþykkt samhljóða af hluthöfum
Hluthafar Icelandair samþykktu á hluthafafundi nú rétt í þessu að heimila stjórn félagsins að fara í hlutafjárútboð í lok júní.

Flugmenn samþykktu kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta
Félagsmenn Félags íslenskra atvinnuflugmanna samþykktu kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan fjögur í dag.

Samstaða um að hafna lokatilboði Icelandair
Flugfreyjur segjast undrandi á óbilgirni samninganefndar Icelandair

Hluthafafundur Icelandair hafinn
Hluthafafundur Icelandair hófst á Hilton Nordica-hótelinu núna upp úr klukkan 16.

Samstaða í hópnum og fundi slitið með dynjandi lófaklappi
Þriðji fundur flugfreyja þar sem samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands fer yfir stöðu mála og svarar spurningum félagsmanna stendur nú yfir á Hilton hóteli.

Segir flugliða Icelandair vinna 14 prósent minna en keppinautarnir
Framkvæmdastjóri mannauðs hjá Icelandair segir að flugfreyjur og flugþjónar hafi verið að fljúga 14 prósent færri flugtíma en hjá sambærilegum félögum í Evrópu. Í lokatilboði félagsins hafi falist bestu mögulegu kjör.

Ræða tilboð sitt en ekki Icelandair
Samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands hefur ekki í hyggju að kynna „lokatilboð“ Icelandair til félagsins fyrir félagsmönnum sínum. Á fundum flugfreyja í dag mun orkan fara í að ræða tilboð flugfreyja til flugfélagsins.

Flugfreyjur byrjaðar að funda og hluthafafundur yfirvofandi
Félagsmenn í Flugfreyjufélagi Íslands (FFÍ) mættu til fundar á Hilton Nordica-hótelinu við Suðurlandsbraut nú í morgun.

Icelandair missti af lestinni fyrir 18 árum
Árið 2002 fékk Icelandair gullið tækifæri til að lækka rekstrarkostnað og búa sig undir vaxandi samkeppni. Þetta ár kom Iceland Express til skjalanna. Með mun lægri kostnaði og sveigjanleika í rekstri gat Iceland Express boðið lægri fargjöld en Icelandair nokkru sinni.

Sakar Boga um hræðsluáróður og hroka
Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair gera sig sekan um að brjóta lög um stéttarfélög og vinnudeilur.

„Rangfærslur og vangaveltur“ sem eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir marga starfsmenn hafa óskað eftir upplýsingum um síðasta tilboð félagsins í viðræðum þess við Flugfreyjufélag Íslands.

Flugfreyjufélagið samþykkti sambærilegan flugtímafjölda hjá WOW: „Ekki hægt að bera samningana saman“
Flugfreyjufélag Íslands hafnaði lokatilboði Icelandair á samningafundi í gær. Forstjóri Icelandair sagði fréttum í gær að samningurinn hafi falið í sér krónutöluhækkarnir laun og um 12 prósenta hækkun á lægstu laun. Þrátt fyrir kröfu um aukið vinnuframlag frá flugfreyjum og þjónum innihaldi samningurinn starfskjör fyrir flugliða sem séu með því besta sem þekkist á Vesturlöndum. Formaður flugfreyjufélags Íslands segir það rangt.

Flugið og raunveruleikinn
Seðlabankastjóri var gestur Kastljóss í gærkvöldi og ræddi um efnahagshorfur. Þar báru að vonum málefni Icelandair á góma. Seðlabankastjóri telur að það myndi ekki hafa mikil áhrif til skamms tíma ef Icelandair færi í þrot. Ástæðan fyrir því að mati seðlabankastjóra er sú, að það muni hvort eð er koma svo fáir ferðamenn til Íslands á þessu ári.

Mikilvægt að samningar náist við flugfreyjur fyrir hlutafjárútboð
Afar mikilvægt er að Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands nái samningum fyrir fyrirhugað hlutafjárútboð félagsins að mati greinenda

Framhaldið óljóst eftir að viðræðum við flugfreyjur lauk í dag
Fundi samninganefnda Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands lauk á þriðja tímanum í dag án niðurstöðu. Icelandair segir að nú þurfi að kanna aðra möguleika.

Lokatilboðið ekkert lággjaldaflugfélagstilboð að sögn Boga
Forstjóri Icelandair Group segir að lokatilboð félagsins til FFÍ hefði fært flugfélagið nær keppinautum sínum á Norðurlöndum, eins og SAS og Finnair. Starfskjör flugliða væru áfram með þeim bestu á Vesturlöndum.

Ósáttar flugfreyjur láta ekki beygja sig í duftið
Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsir yfir miklum vonbrigðum með það sem félagið lýsir sem einarðri og óbilgjarnri afstöðu Icelandair í árangurslausu samningaviðræðum sem staðið hafa yfir milli aðila síðustu vikur. Samningaviðræðum var slitið í dag og nýr fundur ekki í sjónmáli.

Flugvirkjar gengu að samningnum við Icelandair
Er þarna um að ræða fyrsta kjarasamninginn af þremur sem Icelandair þarf að ljúka fyrir hluthafafund á föstudag.

Viðræðum slitið og Icelandair kannar aðra möguleika
Fundi samninganefnda Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands lauk á þriðja tímanum í dag, án niðurstöðu.

Icelandair segist ekki hafa átt í viðræðum við önnur stéttarfélög
Icelandair segist vera í kjarasamningaviðræðum sínum við Flugfreyjufélag Íslands af heilindum. Ekki hafi komið til tals að semja við annað stéttarfélög um störf flugfreyja og þjóna.

Flugfreyjur og Icelandair byrjuð að funda á ný
Fundur samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Icelandair hófst núna klukkan hálf níu í húsakynnum ríkissáttasemjara í Karphúsinu í Borgartúni.

Icelandair sagt íhuga að semja við nýtt stéttarfélag flugfreyja
Komið hefur til tals að setja á laggirnar nýtt stéttarfélag flugfreyja, hvers félagsmenn væru flugfreyjur sem ekki styðja stefnu samninganefndar Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ)

Samninganefndir boðaðar til fundar í fyrramálið
Boðað hefur verið til fundar milli samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands annars vegar og Icelandair hins vegar klukkan 8:30 í fyrramálið.

Fundi með flugfreyjum frestað áður en hann hófst
Fundi samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair sem til stóð að hæfist klukkan fimm hefur verið frestað.


Flugliðar og Icelandair funda aftur á morgun
Ríkissáttasemjari ákvað að boða til annars fundar klukkan fimm síðdegis á morgun sem þýðir, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, að einhver gangur hefur verið í viðræðunum í dag sem stóð í um ellefu klukkustundir.

„Á meðan við erum hér og á meðan við erum að vinna þá er von“
Samningaviðræður milli samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair standa enn yfir í húsakynnum ríkissáttasemjara en ríkissáttasemjari segir viðfangsefnið bæði erfitt og flókið

Boðað til fundar í kjaradeilu flugfreyja og Icelandair
Boðað hefur verið til formlegs fundar í kjaradeilu Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hjá ríkissáttasemjara klukkan 14 í dag.