

Sauðfjársæðingastöð Suðurlands vinnur nú að því að fá leyfi til flytja íslenskt hrútasæði til landa Evrópusambandsins vegna mikils áhuga á íslensku sauðkindinni.
Helgi Reynisson sem er aðeins tíu ára og býr á bænum Hurðarbaki í Flóahreppi hefur prjónað sokka, vettlinga, húfu og lopapeysu á sig.
Jón Bjarnason sauðfjárbóndi í Hrunamannahreppi fer á milli bæja og rýir fé fyrir bændur og búalið á Suðurlandi.
Í nýrri Hrútaskrá sem var að koma út eru kynntir 44 hrútar sem notaðir verða til sæðinga í vetur á Sauðfjársæðingastöð Vesturlands og Suðurlands.
Framkvæmdastjóri hjá Ellingsen telur innflutningsfyrirtæki með sterka stöðu gegn tollstjóra í máli fyrir yfirskattanefnd. Tollstjóri segir tollamál ekki inni í EES og hann því ekki bundinn bindandi álitum ESB.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að bregðist stjórnvöld ekki strax við dómi Hæstaréttar um innflutning á fersku kjöti sé ríkið að skapa sér skaðabótaskyldu.
Framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda líst illa á frumvarp um að afurðastöðvar í kjötiðnaði verði undanskildar samkeppnislögum.
Um 36 þúsund plöntum verður plantað næstu fimm árin á Íslandi vegna kolefnisverkefnis ríkisstjórnarinnar.
Endanlega var gengið frá heilbrigðisvottorði snemma í september, fyrsta sendingin fór til Indlands nú í byrjun október og fleiri sendingar eru fyrirhugaðar á næstu vikum.
Hermennirnir sem voru við æfingar í Þjórsárdal um helgina skemmdu um eitt hundrað birkiplöntur.
Blákolóttur lambhrútur kom nýlega fram á litasýningu sauðfjár en liturinn þykir mjög sérstakur.
Fyrsta konan hefur tekið til starfa sem mjólkurbílstjóri en hennar hlutverk er að aka um á stórum mjólkurbíl og sækja mjólk til bænda.
Skoska heimastjórnin hefur staðfest að kúariða (BSE) hafi greinst á bóndabæ í austurhluta landsins.
Þingflokkur Viðreisnar auk tveggja þingmanna Pírata hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagðar eru til viðamiklar breytingar á búvörulögum. Er frumvarpinu ætlað að auka frelsi og sjálfræði framleiðenda.
Aukinn innflutningur á kjöti mun ekki kúvenda íslenskum kjötborðum að mati framkvæmdastjóra Krónunnar.
Landbúnaðarráðherra telur mögulegt að auka verðmætasköpun í íslenskum landbúnaði og þá geti vel farið saman stækkun sauðfjárbúa og auknir möguleikar smærri framleiðenda með nýsköpun og sérhæfingu.
Hrútasýningar standa nú yfir um allt land en þá er verið að dæma hrúta og gimbrar fyrir sauðfjárbændur.
Samstöðuvaka var haldin í dag við sláturhús Sláturfélags Suðurlands á Selfossi fyrir lömbin sem er slátrað þar í sláturtíðinni.
Sauðburði er nú loks lokið á bænum Möðruvöllum 3 í Hörgárdal þegar litill fallegur hrútur kom þar í heiminn í morgun.
Boðað hefur verið til samstöðuvöku fyrir utan sláturhúsið á Selfossi á föstudaginn 5. október á milli 14:00 og 16:00 en ætlunin er að fylgjast með því þegar lömb og kindur eru sendar til slátrunar.
Fátt virðist vera því til fyrirstöðu að fyrirtæki gefi börnum merktar vörur í grunnskólum borgarinnar – að því gefnu að vörurnar séu notaðar innan veggja skólans og standist siðferðismat skólastjórnenda.
Bændur í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu hafa undanfarna daga staðið í ströngu við að sækja það fé sem eftir er á heiðum í tæka tíð áður en vonskuveður skellur á.
Íslenskir stjórnmálamenn eru miklir áhugamenn um atvinnurekstur og hafa löngum talið sig best til þess fallna að stýra því hvernig kaupin gerast á eyrinni.
Nauðsynlegt er að varðveita og fjölga forystufé í landinu.
Um 3.500 fjár voru í Hrunaréttum í morgun í blíðskapar veðri og mikill mannfjöldi.
Þessa dagana eru að fæðast hreinræktaðir kálfar af Aberdeen Angus kyni frá Noregi á einangrunarstöðinni á Stóra Ármóti í Flóahreppi.
Talið er að tveir dýrbítar hafi ráðist á sex lömb í Eyjafjarðarsveit á dögunum. Lömbin fundust ýmist dauð eða svo illa leikin að lóga þurfti lömbunum. Málið hefur verið kært til lögreglu.
Lögmaður Félags atvinnurekenda hefur höfðað mál á hendur ríkinu fyrir hönd fimm innflutningsfyrirtækja vegna tolla af landbúnaðarvörum.
Bændur í Eyjafirði ætla að ganga til viðræðna við Orkusöluna eftir að þeir stóðu fyrir útboði á raforkukaupum. Formaður Bændasamtakanna segir eðlilegt að skoða hvort safna þurfi öllum bændum saman til að fá hagstæðara raforkuverð.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur sett á fót verkefnisstjórn sem á að móta matvælastefnu fyrir Ísland.