

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tók kjördag snemma og mætti ásamt konu sinni, Þóru Margréti Baldvinsdóttur, á kjörstað í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ klukkan 10 í morgun.
Oddviti Dögunar í Suðurkjördæmi segir frambjóðendur hafa reynt að tala bara um málefnin sín og halda þeim á lofti.
Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar, segir daginn leggjast vel í sig.
Pólitískur órói í Katalóníu og þingkosningar á Íslandi verða til umræðu í Víglínunni hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni að loknum sjónvarpsfréttum Stöðvar 2 í hádeginu.
Logi segir kosningabaráttuna hafa verið snarpa og markast af því hvað tíminn hafi verið stuttur.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist engar væntingar hafa varðandi árangur í dag og það sé kjósenda að ráða því.
Formaður Vinstri grænna kveðst bjartsýn og segir að flokksmenn eigi von á því að Vinstri græn bæti við sig fylgi í þessum kosningum.
Landsmenn ganga til kosninga í dag og því verður Stöð 2 með aukafréttatíma sem hefst núna klukkan 12.
Formaður Viðreisnar mætti á kjörstað í Lækjarskóla í Hafnarfirði klukkan 10:30 í dag.
Sigurður Ingi mun verja mest öllum deginum í að keya um hið stóra Suðurkjördæmi
Helgi Hrafn Gunnarsson segir Pírata þurfa að hafa talsvert fyrir því að koma kjósendum sínum á kjörstað.
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir framtíðina í höndum kjósenda og að kosningarnar leggist vel í hann.
Kosningabaráttan hefur verið eftirminnileg fyrir margar sakir. Álitsgjafar Fréttablaðsins rýna í baráttuna bæði í gamni og af alvöru.
Í grein New York Times um íslensku kosningarnar kemur fram að Sigmundur Davíð hafi ítrekað hafnað beiðni blaðsins um viðtal.
Skýrar reglur gilda um hvernig skal greiða atkvæði og hvað tekur við þegar búið er að telja öll atkvæðin. Hvaða flokkar fá þingmenn og í hvaða kjördæmum.
Ég kaus fyrst í Alþingiskosningum árið 1971. Hannibal Valdimarsson hafði klofið sig út úr Alþýðubandalaginu og stofnað Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Mér féll vel eldmóður og kjarkur Hannibals og kaus hann með bros á vör.
Nú hef ég töluverða reynslu af svona stjórnmáladóti. Ég hef verið í næstum því öllum flokkum. Mér finnst ég því vera einstaklega vel til þess fallinn að birta yfirgripsmiklar leiðbeiningar til kjósenda á kjördag. Auk þess á ég afmæli í dag. Ég má því setja mig á háan hest og þykjast vita allt.
Í dag veljum við Íslendingar fulltrúa til að gegna löggjafarstörfum á Alþingi, stjórna ráðuneytum og sitja í ríkisstjórn landsins. Margir flokkar eru í boði og sitt sýnist hverjum um ágæti þeirra.
Það fylgir því ábyrgð að sækjast eftir völdum. Hluti af því er að boða ekki bólgin kosningaloforð nema fyrir liggi skýr og trúverðug áætlun um hvernig eigi að efna þau. Á þetta hefur nokkuð skort í þeirri furðulegu kosningabaráttu sem landsmenn hafa orðið vitni að undanfarnar vikur.
Vísir greinir frá öllu því markverðasta sem gerist, um leið og það gerist, alla kosningahelgina.
Pálmey Gísladóttir, formaður Dögunar, er búsett í Reykjavík en flokkur hennar býður einungis fram í Suðurkjördæmi þar sem hún er á framboðslista.
Kosningavaktin á Vísi hefst eldsnemma á kjördag en blaðamenn Vísis munu standa vaktina næstu tvo sólarhringa.
Fjórum sinnum í sögunni hafa minnihlutastjórnir verið myndaðar. Þær hafa aldrei setið heilt kjörtímabil.
Samtal um myndun ríkisstjórnar frá vinstri til miðju er komið á fullt milli nokkurra flokka. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Einn viðmælandi blaðsins gengur svo langt að fullyrða að vinstri stjórn verði svo gott sem innsigluð strax á kosninganótt.
Hér verða birtar tölur úr Reykjavík suður um leið og þær berast. Einnig verður hægt að fylgjast með hverjir eru inni og úti af þingi hverju sinni, hvaða jöfnunarþingmenn eru inni og næstu mönnum inn á gagnvirka kortinu hér fyrir neðan.
Hér verða birtar tölur úr Suðurkjördæmi um leið og þær berast. Einnig verður hægt að fylgjast með hverjir eru inni og úti af þingi hverju sinni, hvaða jöfnunarþingmenn eru inni og næstu mönnum inn á gagnvirka kortinu hér fyrir neðan.
Hér verða birtar tölur úr Norðvesturkjördæmi um leið og þær berast. Einnig verður hægt að fylgjast með hverjir eru inni og úti af þingi hverju sinni, hvaða jöfnunarþingmenn eru inni og næstu mönnum inn á gagnvirka kortinu hér fyrir neðan.
Hér verða birtar tölur úr Reykjavík norður um leið og þær berast. Einnig verður hægt að fylgjast með hverjir eru inni og úti af þingi hverju sinni, hvaða jöfnunarþingmenn eru inni og næstu mönnum inn á gagnvirka kortinu hér fyrir neðan.
Hér verða birtar tölur úr Norðausturkjördæmi um leið og þær berast. Einnig verður hægt að fylgjast með hverjir eru inni og úti af þingi hverju sinni á gagnvirka kortinu hér fyrir neðan.
Hér verða birtar tölur úr Suðvesturkjördæmi um leið og þær berast. Einnig verður hægt að fylgjast með hverjir eru inni og úti af þingi hverju sinni, hvaða jöfnunarþingmenn eru inni og næstu mönnum inn á gagnvirka kortinu hér fyrir neðan.