Evrópusambandið

Vill að Ísland banni komur ferðamanna frá löndum utan Schengen
Forseti framkvæmdastjórnar ESB hefur lagt til að ferðabann verði sett á vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Erdogan til fundar við leiðtoga ESB
Tyrklandsforseti mun ræða ástandið á landamærum Tyrklands og Grikklands við forseta leiðtogaráðs ESB og forseta framkvæmdastjórnar sambandsins í kvöld.

Stefna að kolefnishlutleysi Evrópu fyrir 2050
Umhverfisverndarsinnar lýsa vonbrigðum með loftslagslög sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti á fundi í dag og telja þau ekki ganga nógu langt. Markmið um kolefnishlutleysi fyrir árið 2050 verður fyrir sambandið sem heild, ekki einstök aðildarríki.

Ísland langdýrast í Evrópu
Verðlag hér á landi var árið 2018 66 prósent hærra en að meðaltali í öðrum löndum Evrópu, samkvæmt endurskoðuðum tölum frá Hagstofu Evrópu, Eurostat.

Ferðatakmarkanir koma ekki til greina þrátt fyrir fleiri smit í Evrópu
Fimmta dauðsfallið af völdum kórónuveirunnar var staðfest á Ítalíu. ESB segir ekki koma til greina að takmarka ferðafrelsi innan álfunnar vegna útbreiðslu veirunnar sem sakir standa.

Nýju, bláu vegabréf Breta verða framleidd í Póllandi
Störf um tvö hundruð starfsmanna bresks vegabréfaframleiðanda eru sögð vera í hættu eftir að framleiðandi frá meginlandi Evrópu bauð best í útboði um framleiðslu á nýjum vegabréfum.

Bandaríkjamenn vöknuðu við vondan draum í München
Öryggisráðstefnan í München varpaði miklu ljósi á sífellt versnandi samband Bandaríkjanna og Evrópu. Sprungur í sambandinu urðu að gjám og forsvarsmenn Evrópu og Bandaríkjanna virðast sjá heiminn í mismunandi ljósi.

Stefnir í deilur milli Bandaríkjanna og Evrópu
Von er á því að deilumál Bandaríkjanna og Evrópu verði bersýnileg á öryggisráðstefnu sem haldin verður í Þýskalandi um helgina.

Segir Evrópu ekki geta setið hjá í vígbúnaðarkapphlaupi
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hvatti ríki Evrópu til að verja meira fé til varnarmála.

Johnson segir Breta ekki þurfa að samræma sig evrópskum reglum
Viðræður á milli Bretlands og Evrópusambandsins um viðskiptasamband þeirra eiga að hefjast í næstu viku.

Farage ítrekaði hatur sitt á ESB í kveðjuræðu
Bretar hafa ellefu mánuði til að ná samkomulagi um framtíðar fyrirkomulag samskipta sinna við Evrópusambandið eftir að Bretland yfirgaf sambandið formlega klukkan ellefu í gærkvöld.

Bretar komnir út úr Evrópusambandinu
Margir Bretar fögnuðu í kvöld útgöngunni úr Evrópusambandinu á sama tíma og aðrir syrgðu.

Boris Johnson segir Brexit upphaf en ekki endi
Bretland gengur úr Evrópusambandinu í dag.

Bretar kvaddir á Evrópuþinginu
Úrganga Bretlands úr Evrópusambandinu hefur verið samþykkt af Evrópuþinginu.

Segir Bretland komið yfir „Brexit-marklínuna“
Lávarðadeild breska þingsins samþykkti í kvöld frumvarp sem ætlað er að lögleiða útgöngusamning Bretlands við Evrópusambandið. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Brexit svo gott sem í höfn.

Trump hótaði Evrópusambandsríkjum háum tollum á bíla
Bandaríkjaforseti hótar tollum til að þrýsta á Evrópusambandið um betri viðskiptasamning fyrir Bandaríkin.

Grunaður njósnari fyrir Kína með tengsl við Ísland
Þýsk-ungverskur fyrrverandi embættismaður ESB er til rannsóknar vegna meintra njósna fyrir stjórnvöld í Beijing.

Johnson sendir skýr skilaboð til ráðherra sinna
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun á næstunni senda ráðherrum í ríkisstjórn hans skýr skilaboð um að þeir eigi að beina öllum sínum kröftum að undirbúningi fyrir hvað gerist eftir Bretland að ríkið yfirgefur ESB, ella verði þeir reknir.

Bresk stjórnvöld undirbúa Brexit-fögnuð
Klukku verður varpað á Downingstræti 10 sem telur niður til útgöngunnar og breskir fánar og ljós eiga að prýða stjórnarhverfið í London þegar Bretar ganga loks úr Evrópusambandinu í lok mánaðar.

Skrifar ástarbréf til Bretlands og segir það alltaf velkomið í ESB
Frans Timmermans, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segist vera sár yfir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu.

Brexitáætlun Boris samþykkt á þingi
Breskir þingmenn samþykktu í dag frumvarp Boris Johnson, forsætisráðherra, varðandi úrgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu með miklum meirihluta atkvæða.

Breskir auðjöfrar lauma sér inn um bakdyr ESB
Auðugir bakhjarlar Íhaldsflokksins í Bretlandi hafa frá þjóðaratkvæðagreiðslunni um Brexit árið 2016 sóst eftir ríkisborgararétti á Kýpur. Eyríkið er aðili að Evrópusambandinu og með því að öðlast ríkisborgararétt þar njóta þessi aðilar þeirra réttinda sem aðild býður upp á.

Segir Boris Johnson ljúga um Brexit
Simon Coveney, utanríkisráðherra Írlands, fellst ekki á að það verði ekki tollgæsla á milli Norður-Írlands og Bretlands þegar Brexit samningur Boris Johnson tekur gildi eins og Johnson hefur haldið fram.

Evrópuþingið lýsir yfir „neyðarástandi í loftslagsmálum“
Meirihluti þingmanna á Evrópuþinginu samþykkti í morgun yfirlýsingu þar sem "neyðarástandi í loftslagsmálum“ er lýst yfir.

Evrópuþingið gefur loks grænt ljós á framkvæmdastjórn von der Leyen
Evrópuþingið samþykkti í morgun nýja framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undir forsæti hinnar þýsku Ursulu von der Leyen.

Hvorugur stærstu flokkana eigi skilinn kosningasigur
Við erum í algjöru rugli,“ sagði Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands um stöðu ríkisins í aðdraganda þingkosninga sem munu fara fram 12. desember næstkomandi.

Lagarde hvetur til aukinna fjárfestinga
Nýr bankastjóri Seðlabanka Evrópu segir mikilvægt fyrir ríki evrusvæðisins að auka fjárfestingar svo þau verði sjálfbærari og viðskiptahalli minnki.

Sjávarútvegsráðherra segir aðrar þjóðir ekki segja Íslendingum fyrir verkum
Sjávarútvegsráðherra segir Evrópusambandið, Norðmenn og Færeyinga ekki segja Íslendingum fyrir verkum varðandi makrílveiðar, en sambandið og þessar þjóðir hafi haldið Íslendingum, Grænlendingum og Rússum utan við samninga um veiðiheimildir á makríl í mörg ár.

Færeyjar, Noregur og ESB vandi Íslendingum ekki kveðjurnar
Íslensk stjórnvöld eru sögð hafa ógnað sjálfbærni makrílstofnsins í Norðaustur-Atlantshafi með ákvörðun sinni um að auka makrílkvóta íslenskra skipa í sumar.

ESB skoðar kosti þess að taka upp eigin rafmynt
Málið hefur komist á skrið eftir að Facebook kynnti í júní síðastliðnum áætlanir um rafmyntina Libra.