

Menningarmálaráðherra segir skipun hennar í stöðu þjóðminjavarðar án auglýsingar afar farsæla. Gagnrýni sem hafi komið fram í málinu hafi verið lærdómsrík og skili því að nú megi æðstu stjórnendur höfuðsafnanna ekki starfa lengur en í fimm ár.
Bankasýsla ríkisins hafnar því alfarið að hafa ekki haft fullnægjandi upplýsingar um heildareftirspurn í Íslandsbankaútboðinu í mars síðastliðnum, líkt og haldið er fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á 22,5 prósent hlut í Íslandsbanka í mars síðastliðnum.
Risafyrirtækið Heidelberg Material blés til íbúafundar í Þorlákshöfn þar sem það kynnti áform sín um umsvif í bæjarfélaginu en þau eru af risavöxnum skala.
„Tilfinning þjóðarinnar reyndist rétt, það er staðfest í þessari skýrslu,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Kristrún flutti ræðu í sérstakri umræðu á Alþingi fyrr í kvöld þar sem Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra var til andsvara.
Alls bárust fjórtán umsóknir um embætti ferðamálastjóra. Einn dró umsókn sína til baka en umsóknarfresturinn rann út 10. nóvember síðastliðinn.
Stjórnartíð VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur ekki farið vel með heilsu ríkissjóðs. Viðvarandi hallarekstur hins opinbera er nú staðreynd sem ríkisstjórnin telur sig ekki geta undið ofan af á kjörtímabilinu. Meðalið, sem á að efla þrekið alla vega næsta árið, er fólgið í ríflega 70 milljarða söluandvirði þess hluta sem ríkið á enn í Íslandsbanka.
Samanburður á drögum Ríkisendurskoðunar á Íslandsbankaskýrslunni svokölluðu sem send voru málsaðilum til umsagnar við þá skýrslu sem gerð var opinber í gær leiðir í ljós að töluverðar breytingar voru gerðar á skýrslunni eftir að umsögnum um hana var skilað.
Þingmennirnir Kristrún Frostadóttir Samfylkingu, Halldóra Mogensen Pírötum og Þorgerður K. Gunnarsdóttir Viðreisn sóttu hart að Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra á þinginu nú rétt í þessu.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist ekki sjá neinar alvarlegar ábendingar eða ásakanir um lögbrot í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Hann segir að vandlega verði farið yfir þær ábendingar sem finna má í skýrslunni.
Fulltrúar stjórnarandstöðu segja skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka áfellisdóm yfir stjórnvöldum. Kallað er eftir að rannsóknarnefnd Alþingis verði stofnuð. Fjármálaráðherra beri alla ábyrgð.
Það er ljóst á skýrslu Ríkisendurskoðunar um Íslandsbankasöluna, sem birt hefur verið á vef stofnunarinnar, að þessari ríkisstjórn eru ákaflega mislagðar hendur við að skipuleggja stór verkefni. Stærstu tíðindin eru auðvitað þau að þetta klúður stjórnvalda kemur að öllum líkindum í veg fyrir að meira verði selt í bankanum í bráð.
Fyrstu viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, við svartri skýrslu Ríkisendurskoðanda um Íslandsbankasöluna, eru þau að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hljóti að bera alla ábyrgð á málinu.
Ráðherranefnd um íslenska tungu hefur verið skipuð samkvæmt tillögu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Ráðherra greinir frá skipun nefndarinnar í ávarpi sínu á málþinginu Íslenskan er okkar allra sem haldið er í tilefni af viku íslenskrar tungu.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur verið birt á vef embættisins.
„Það eru mikil vonbrigði að ekki skuli hafa verið hægt að tryggja trúnað á þessari skýrslu í rétt rúman sólarhring,“ sagði Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Bankasýsla ríkisins gerir viðamiklar athugasemdir við skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, sem birt verður á morgun. Bankasýslan segir meðal annars að fyrirkomulag sölunnar hafi verið í fullu samræmi við lög og reglur og að starfsfólk stofnunarinnar búi yfir haldgóðri menntun og mikilli reynslu af umsýslu og sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Ríkisendurskoðun hefur lokið við skýrslu sína um söluna á Íslandsbanka og skilað til Alþingis. Skýrslan verður gerð opinber eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins um hana á morgun. Í skýrslunni er fjallað um „fjölþætta annmarka“ á undirbúningi og framkvæmd sölunnar.
Við viljum meira frelsi á leigubílamarkaði. Það sýnir nýleg könnun Maskínu. Hún sýnir líka að stórnotendur þjónustunnar eru þeir sem helst vilja sjá breytingar.
Heilbrigðisráðuneytið hefur úrskurðað að ákvörðun embættis landlæknis um að áminna lækni vegna tveggja mála sem tengjast vanrækslu í starfi skuli standa.
Guðmundur Þórðarson hefur verið ráðinn í stöðu samningamanns í fiskveiðisamningum á skrifstofu sjávarútvegs í matvælaráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Gestur Jónasson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fjárfestis, hefur ritað grein sem hann birtir á Vísi þar sem hann segist vona að aldrei muni það gerast aftur að einstaklingur þurfi að standa í svo langvinnum málarekstri. Orð hans má túlka sem harða gagnrýni á ákæru- og dómsvaldið.
Starfshópur hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skilað skýrslu sem varpar ljósi á stöðu friðlýstra svæða á Íslandi og áskoranir sem þeim fylgja. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar í dag í beinu streymi.
Orkustofnun hefur gengið frá ráðningum á þremur nýjum starfsmönnum. Tveir þeirra munu starfa sem lögfræðingar á sviði orku- og auðlindamála og einn starfi sérfræðings í beinni nýtingu jarðhita og hitaveitum.
Félag eldri borgara á Ísafirði (FEBÍ) harmar að ekki hafi verið haft samráð við félagið áður en áform um væntanlega stækkun hjúkrunarheimilis bæjarins var kynnt. Líkur eru á að púttvöllur félagsins þurfi að víkja fyrir nýrri viðbyggingu.
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, segir að farið hafi verið að lögum þegar hælisleitendum var vísað úr landi í fyrrinótt. Hann spyr hvort að önnur framkvæmd en sú að lögregla leiti uppi og vísi þeim frá landi með valdi synjað hefur verið um dvöl hér á landi en neita að fara. Forsætisráðherra minnir á að lög um útlendinga hafi verið samþykkt í breiðri sátt árið 2016.
Kristjáni Loftssyni, eiganda Hvals, er alveg nákvæmlega sama um hvað gagnrýnendur á hvalveiðar fyrirtækis hans segja um hann. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir að hvalveiðar Íslendinga séu frekar hluti af fortíð Íslendinga en framtíð. Hún getur ekki fullyrt að hvalveiðileyfi Hvals verði framlengt eftir næsta ár.
Afhendingu á skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka hefur verið frestað á ný. Til stóð að afhenda skýrsluna fyrir helgi en ekkert verður úr því.
Jóhannes Tómasson, blaðamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi, er látinn, sjötugur að aldri. Hann starfaði lengi sem blaðamaður á Morgunblaðinu en tók árið 2006 við starfi upplýsingafulltrúa samgönguráðuneytisins, síðar innanríkisráðuneytisins, og starfaði þar í tólf ár með níu ráðherrum.
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, stefnir að því að leggja fram frumvarp á vorþingi sem felur í sér ákvæði um að skemmtiferðaskip þurfi að tilkynna um áætlaða leið að næstu höfn hér á landi.
Hrafnhildur Arnkelsdóttir hefur verið skipuð í embætti hagstofustjóra. Alls bárust fjórtán umsóknir í embættið en þrír drógu umsókn sína til baka.