Kína

Asískir ferðamenn virðist meðvitaðir þátttakendur í bókunarsvindli
Jóhannes Þór Skúlason segir bókunarsvindl sem tröllríða íslenskum ferðamannaiðnaði um þessar mundir flest vera frá asískum ferðamönnum. Ferðamennirnir fari í ferðir og láta svo eins og þeir hafi ekk veitt heimild fyrir greiðslunni sem er þá afturkölluð.

Af hverju langar Trump í Grænland?
Donald Trump, sem tekur aftur við embætti forseta Bandaríkjanna þann 20. janúar, hefur ítrekað talað fyrir því undanfarnar vikur að Bandaríkin „eignist“ Grænland. Landið gæti reynst stórveldinu Bandaríkjunum stór fengur í samkeppninni við Kína og Rússland en líklegt er að Trump sækist hvað mest eftir svokölluðum sjaldgæfum málmum.

Tugir látnir eftir stóran skjálfta í Tíbet
Að minnsta kosti fimmtíu og þrír eru látnir og sextíu og tveir slasaðir eftir að öflugur jarðskjálfti upp sem bandaríska jarðfræðistofnunin segir að hafi verið 7,1 stig reið yfir í Tíbet í nótt.

Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir
Þrír kínverskir ríkisborgar voru handteknir með tólf gullstangir og 800 þúsund Bandaríkjadali (um 113 milljónir íslenskra króna) í seðlum í Austur-Kongó.

„Dögun þriðju kjarnorkualdarinnar er í vændum“
Æðsti hernaðarleiðtogi Bretlands segir heiminn hafa breyst og að hann sé flóknari. Þá segir hann að þriðja kjarnorkuöldin sé að hefjast og að hún yrði mun flóknari en þær fyrri.

Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum
Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag bann við útflutningi nokkurra tegunda svokallaðra „sjaldgæfra málma“ til Bandaríkjanna. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn Joes Biden tilkynnti aðgerðir til að sporna gegn aðgengi Kínverja af mikilvægri tækni frá Bandaríkjunum.

Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum
Stjórnvöld í Svíþjóð hafa formlega óskað eftir samvinnu Kínverja við að komast til botns í því hvernig tveir neðansjávarstrengir skemmdust í Eystrasalti.

Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka
Skemmdarverk útsendara Rússa í Evrópu gæti að endingu leitt til virkjunar fimmtu greinar stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins um sameiginlegar varnir aðildarríkja. Þetta sagði yfirmaður einnar leyniþjónustu Þýskalands á ráðstefnu í gær en Rússar hafa á undanförnum mánuðum og jafnvel árum verið sakaðir um skemmdarverk, banatilræði og annarskonar árásir í Evrópu.

Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína
Þremur Bandaríkjamönnum sem hafa setið um árabil í kínverskum fangelsum hefur verið sleppt. Það var gert í skiptum fyrir ótilgreinda kínverska ríkisborgara í haldi Bandaríkjamanna.

Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada
Donald Trump, sem tekur við forsetaembættinu í Bandaríkjunum 20. janúar á næsta ári, hefur ítrekað hótanir sínar um að hækka tolla á innfluttar vörur frá Kína, Mexíkó og Kanada verulega á fyrstu dögum sínum í embætti.

Vona að Musk takmarki tolla Trumps
Ráðamenn í Kína eru sagðir binda vonir við að umfangsmiklar fjárfestingar Elons Musk þar í landi muni nýtast sem vogarafl í því að fá hann til að tala máli þeirra við Donald Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna. Trump ætlar að skipa nokkra menn í ríkisstjórn sína sem hafa verið harðorðir í garð Kína um árabil.

Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja
Njósnaherferð og tölvuárásir yfirvalda í Kína er versta árás á samskiptakerfi Bandaríkjanna í sögu ríkisins, samkvæmt bandarískum öldungadeildarþingmanni. Hann segir kínverska hakkara hafa komist inn í tölvukerfi á annan tug fjarskiptafyrirtækja í Bandaríkjunum.

Tugur lýðræðissinna í Hong Kong dæmdur í fangelsi
Tugur einstaklinga hefur verið dæmdur í allt að tíu ára fangelsi fyrir að taka þátt í forkjöri sem efnt var til í aðdraganda þingkosninga í Hong Kong árið 2000.

Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla
Teymi Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, hefur lagt línurnar að því að binda enda á 7.500 dala skattaívilnun fyrir fólk sem kaupir rafmagnsbíla í Bandaríkjunum. Er það sagt vera liður í umfangsmeiri breytingum á skattkerfi Bandaríkjanna.

Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu
Yfirvöld neytendamála hafa ávítt kínverska verslunarrisann Temu fyrir slæma viðskiptahætti. Yfirlögfræðingur Neytendastofu segir Temu gera margt til þess að gabba neytendur til að kaupa vörur.

Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína
Að minnsta kosti 35 eru látnir og 43 særðir eftir að maður ók bíl á hópa fólks í borginni Zhuhai í Kína í gærkvöldi. Lögregluþjónar handtóku 62 ára gamlan mann vegna árásarinnar.

Íslendingar þurfa ekki vegabréfsáritun til Kína næsta árið
Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa Íslendingum að koma til Kína án vegabréfsáritunar út næsta ár. Undanþágan tekur gildi í næstu viku.

Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar
Forsvarsmenn sjóhers Bandaríkjanna vinna að því að koma Patriot-loftvarnarkerfum fyrir á herskipum. Er það vegna ótta um að Kínverjar gætu notað ofurhljóðfráar eldflaugar til að sökkva herskipum á Kyrrahafi.

Fyrsti fundur Xi og Modi í meira en fimm ár
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur tekið móti leiðtogum BRICS-ríkjanna svokölluðu, auk annarra þjóðarleiðtoga og erindreka í Kazan í Rússlandi en þar fer sextándi leiðtogafundur BRICS-ríkjanna svokölluðu fram. Fundur leiðtoga Kína og Indlands á hliðarlínunum í Kazan hefur vakið mikla athygli.

Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar
Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar.

Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans
Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling hefur samið um hönnun rafeldsneytisverksmiðju í Kína. Þetta er einn stærsti samningur í sögu fyrirtækisins en með honum stefnir í að framleiðslumagn vistvæns eldsneytis á grunni íslenskrar tækni dugi til orkuskipta á öllum íslenska skipaflotanum.

Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“
Sigurður Guðmundsson, kylfingur úr Golfklúbbi Sandgerðis náði framúrskarandi árangri á Golf Masters mótinu í Makaó undir lok síðasta mánaðar. Þetta var í fyrsta sinn sem Íslendingur tekur sæti á mótinu og Sigurður gerði sér lítið fyrir og vann til silfurverðlauna.

Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fengið vilyrði fyrir því að leggja allt að 45 prósent refsitoll á kínverska rafbíla þrátt fyrir andstöðu stærsta bílaframleiðanda álfunnar. Tollarnir eru svar við ríkisaðstoð við kínverska rafbílaframleiðslu sem ESB er ósátt við.

Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju
Nýjasti kjarnorkuknúni kafbátur Kína sökk við bryggju í vor. Um er að ræða nýja gerð kafbáta og er þetta fyrsti báturinn af þeirri gerð. Hann sökk við skipasmíðastöð nærri Wuhan í Kína. Ráðamenn í Kína hafa lagt mikla áherslu á uppbyggingu kínverska kafbátaflotans og var reynt að hylma yfir atvikið.

Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár
Kínverjar framkvæmdu í morgun tilraun með langdræga skotflaug sem borið getur kjarnorkuvopn. Eldflaugin bar gervi-sprengiodd og var henni skotið í Kyrrahafi en þetta er í fyrsta sinn í nokkra áratugi sem Kínverjar gera tilraun sem þessa.

Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn
Öll þrjú flugmóðurskip Kína voru á dögunum saman á sjó og er það í fyrsta sinn sem Kínverjar ná þessum áfanga. Stutt er í tólf ára afmæli þess að Kínverjar tóku fyrsta flugmóðurskipið í notkun og er fyrsta skipið sem þróað er og byggt í Kína í sjóprófunum.

Situr undir gelti, urri og að vera kölluð api
Hrafnhildur Ming Þórunnardóttir lýsir því að hafa í sumar og haust endurtekið verið kölluð api. Gelt hafi verið á hana á hinum ýmsu stöðum. Hún segir hvert atvik ýta upp hennar eigin sjálfsáliti vitandi að hún myndi aldrei leggjast jafnlágt og þeir sem hegði sér með slíkum hætti.

Dæmdur fyrir stuttermabol á grundvelli þjóðaröryggis
Karlmaður frá Hong Kong varð fyrsti maðurinn til þess að vera sakfelldur á grundvelli nýrra og umdeildra þjóðaröryggislaga kínverska yfirráðasvæðisins í dag. Hann játaði sig sekan um að klæðast stuttermabol með slagorði lýðræðissinnaðra mótmælenda.

„Þeir hótuðu að handtaka konuna mína“
Son Jun-ho er einn þeirra sem hefur verið dæmur í lífstíðarbann frá kínverskum fótbolta. Hann hélt hins vegar blaðamannafund í gær og sagði frá sinni hlið á málinu.

Stjórnvöld í Kína banna ættleiðingar frá landinu
Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að banna ættleiðingar frá landinu, nema í þeim tilvikum þegar um er að ræða ættingja sem vilja ættleiða barn sér skylt.