Ítalía

Ítalir stefna á að hraða bólusetningum til muna
Ítölsk stjórnvöld hyggjast vera búin að bólusetja minnst áttatíu prósent ítölsku þjóðarinnar við kórónuveirunni fyrir septemberlok á þessu ári. Stjórnvöld hafa mátt þola gagnrýni fyrir hægan gang bólusetninga í landinu, sem er eitt þeirra Evrópuríkja sem verst hefur orðið fyrir kórónuveirufaraldrinum.

Ítalir herða tökin aftur af ótta við nýja bylgju faraldursins
Verslunum, veitingastöðum og skólum verður lokað víðast hver á Ítalíu á mánudag vegna fjölgunar smitaðra undanfarna daga. Mario Draghi, forsætisráðherra, varar við því að ný bylgja kórónuveirufaraldursins sé í uppsiglingu.

Ætla að framleiða rússneska bóluefnið á Ítalíu
Rússar hafa gert samkomulag um að framleiða Spútnik V-bóluefni sitt við kórónuveirunni á Ítalíu, fyrsta samninginn þess efnis í Evrópu. Lyfjastofnun Evrópu hefur hvatt Evrópusambandsríki til að veit ekki leyfi fyrir rússneska bóluefninu í bili.

Ítalir stöðvuðu sendingu á bóluefni til Ástralíu
Stjórnvöld á Ítalíu komi í veg fyrir að 250.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni sem voru framleiddir þar í landi yrðu fluttir til Ástralíu. Ákvörðunin nýtur stuðnings framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og byggir á nýjum reglum sem leyfa ríkjum að stöðva útflutning á bóluefni ef framleiðendur þess hafa ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart sambandinu.

Heilu bæirnir á Sikiley þakktir ösku og gjalli úr Etnu
Mikil virkni hefur átt sér stað í Etnu, hæsta virka eldfjalli Evrópu, frá því í desember. Nokkur stórfengleg eldgos hafa orðið þar en sem betur fer hafa þau ekki ógnað byggð eða fólki.

Ungur leikmaður Atalanta lést úr krabbameini
Willy Ta Bi, 21 árs leikmaður Atalanta, lést í gær eftir baráttu við lifrarkrabbamein.

Sendiherra Ítalíu látinn eftir árás á bílalest í Austur-Kongó
Sendiherra Ítalíu í Austur-Kongó, Luca Attanasio, er látinn eftir að hópur manna réðst á bílalest á vegum Sameinuðu þjóðanna í Goma í austurhluta landsins.

Etna spúði kviku í kílómetra hæð
Eldfjallið Etna, stærsta virka eldfjall Evrópu, lét aftur á sér kræla í nótt þegar það spúði kviku hátti til himins. Mikil virkni hefur verið í eldfjallinu undanfarið en byggðir á Sikiley hafa ekki verið í hættu.

„Ekkert merkilegt“ en sjónrænt eldgos í Etnu
Etna, stærsta virka eldfjall Evrópu, byrjaði að gjósa með látum gær og sendir reyk og ösku hátt til himins. Sérfræðingar á Sikiley segjast þó hafa séð það verra og er eldgosið ekki sagt ógna nærliggjandi byggðum en þrjú þorp eru vöktuð.

Þurftu að koma vél Landhelgisgæslunnar í skjól þegar eldfjall fór að gjósa
Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, þurfti að hafa hraðann á síðdegis í dag þegar eldfjallið Etna byrjaði skyndilega að gjósa.

„Super Mario“ verður forsætisráðherra og Luigi áfram utanríkisráðherra
Mario Draghi hefur þekkst boð um að taka að sér embætti forsætisráðherra Ítalíu og mun formlega taka við embættinu síðar í dag.

Ungur fótboltamaður berst fyrir lífi sínu eftir að hafa fengið raflost
Ítalski knattspyrnumaðurinn Andrea Gresele er á gjörgæslu eftir að hafa orðið fyrir raflosti um helgina.

Draghi verði beðinn um að mynda nýja stjórn
Forseti Ítalíu mun í dag funda með fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu, Mario Draghi, þar sem búist er við að hann fari þess á leit við Draghi að hann myndi nýja ríkisstjórn í landinu.

Ronaldo til rannsóknar hjá ítölsku lögreglunni
Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, er til rannsóknar hjá ítölsku lögreglunni vegna meintra brota á sóttvarnareglum.

Forsætisráðherra Ítalíu búinn að segja af sér
Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, hefur sagt af sér embætti og er óljóst hvort að honum muni takast að setja saman nýja ríkisstjórn. Conte gekk á fund forsetans Sergio Mattarella í dag og tilkynnti um afsögn sína.

Forsætisráðherra Ítalíu segir af sér á morgun en vonast til að mynda nýja stjórn
Giuseppe Conte, forsætisráðherra Ítalíu, hyggst segja af sér embætti á morgun. Conte vonast þó til þess að fá umboð frá forseta landsins til að mynda nýja og sterkari ríkisstjórn eftir að hann tapaði meirihluta í öldungadeild þingsins.

Fimmtíu handteknir og hald lagt á rúmlega 300 milljónir evra
Fimmtíu hafa verið handteknir og rannsókn hafin á stjórnmálamanni í áhlaupi lögreglunnar á Ítalíu gegn ‘Ndrangheta-mafíunni. Saksóknarar segja áhlaupið varpa ljósi á viðleitni mafíunnar til að þvætta fé og kaupa pólitísk áhrif.

500 ára málverk fannst í skáp og enginn vissi að því hefði verið stolið
Lögregluþjónar hafa handtekið mann á Ítalíu eftir að 500 ára gamalt málverk fannst í eldhússkáp hans. Málverkinu hafði verið stolið af safni en starfsmenn þess vissu þó ekki af þjófnaðinum.

Stærstu mafíuréttarhöldin í áratugi hafin
Stærstu mafíuréttarhöld í áratugaraðir hófust á Ítalíu í morgun. 355 meintir mafíósar og spilltir embættismenn eru sakaðir um skipulagða glæpastarfsemi.

Útgöngubann yfir hátíðirnar á Ítalíu
Öll svæði Ítalíu hafa nú verið skilgreind sem hættusvæði og útgöngubann verður í gildi yfir hátíðirnar. Ítalir mega aðeins ferðast til og frá vinnu og til þess að leita sér heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins.

Paolo Rossi kvaddi okkur í gær
Árið 2020 heldur áfram að taka. Ítalska knattspyrnugoðsögnin Paolo Rossi lést í gær 64 ára að aldri.

Búið að sparka þjálfara Birkis og Hólmberts hjá Brescia
Brescia, lið Birkis Bjarnasonar og Hólmberts Arons Friðjónssonar í ítölsku B-deildinni, hefur ákveðið að reka þjálfara sinn, Diego López. Entist hann aðeins tvö mánuði í starfi.

Ótrúlegt sjónarspil fyrir utan heimavöll Napoli til minningar um Maradona
Diego Maradona er í guðatölu hjá stuðningsmönnum Napoli sem minntust hans með því að kveikja á blysum fyrir leik liðsins í gær. Þetta var fyrsti leikur Napoli eftir að Maradona lést.

Vill samkomulag um að skíðasvæði í Evrópu verði lokuð fram yfir áramót
Þýsk stjórnvöld leitast nú eftir samkomulagi við önnur aðildarríki ESB um að halda skíðasvæðum lokuðum fram í byrjun janúar. Skuli það gert til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Maradona grátinn á götum Napólí og Búenos Aíres | Myndbönd
Diegos Maradona var minnst á götum Napólí og Búenos Aíres í gær. Hann var í guðatölu á báðum stöðum.

Hlaupari sektaður þrátt fyrir dauðsfall vinar
Ónefndur hlaupari á yfir höfði sér 65 þúsund króna sekt fyrir að hafa brotið sóttvarnareglur eftir að hann tilkynnti að vinur hans hefði fallið til bana í ítölsku Ölpunum.

Aldrei fleiri smit á einum degi og hertar aðgerðir á Ítalíu
Ítölsk stjórnvöld hafa sett fleiri héruð á lista yfir áhættusvæði eftir að met var slegið yfir fjölda smitaðra í dag. Ströngustu sóttvarnareglum landsins hefur nú verið komið á í Toscana- og Campania-héruðum.

Eitt prósent Ítala með Covid-19
Heilbrigðisstarfsmenn á Ítalíu eiga erfitt með að standast það álag sem er á þeim um þessar mundir vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar.

Útgöngubann að nóttu tekur gildi á Ítalíu á morgun
Fólki alls staðar á Ítalíu verður meinað að yfirgefa heimili sín milli klukkan 22 á kvöldin og til klukkan fimm á morgnana næstu vikurnar.

Sameinast um þróun fjölnota 2ja-hreyfla rafmagnsflugvélar
Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam og breski hreyflaframleiðandinn Rolls Royce hafa tekið höndum saman um að þróa tveggja hreyfla rafmagnsflugvél. Þau stefna að því að verða fyrst til að koma rafmagnsflugvél af þessari stærð á markað.