Rússland
1 2 3 4 5 6 7 … 106 ›
Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Viðræðunum milli úkraínskra og rússneskra erindreka í Istanbúl í Tyrklandi er lokið, innan við tveimur tímum eftir að þær hófust. Rússar eru sagðir hafa lagt fram mjög umfangsmiklar kröfur sem Úkraínumenn gætu ekki sætt sig við. Erlent 16.5.2025 13:42
Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Fyrstu beinu friðarviðræðurnar í rúm þrjú ár á milli fulltrúa Rússlands og Úkraínu fara fram í Tyrklandi í dag. Takmarkaðar væntingar ríkja um árangur viðræðnanna, en hvorki Pútín Rússlandsforseti né Selenskí Úkraínuforseti taka beinan þátt í viðræðunum. Trump Bandaríkjaforseti segist vilja hitta Pútín eins fljótt og hægt er. Erlent 16.5.2025 08:42
„Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa ákveðið að senda erindreka á fund við rússneska sendinefnt í Istanbúl í Tyrklandi, þótt Vladimír Pútin, forseti Rússlands, hafi sent lágt setta erindreka. Það segist Selenskí hafa gert af virðingu við Donald Trump og Recep Tayyip Erdogan, forseta Bandaríkjanna og Tyrklands. Erlent 15.5.2025 15:43
Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Sendinefndir frá bæði Úkraínu og Rússlandi verða í Tyrklandi í dag en óljóst er hvort þær munu í raun hittast. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, neitaði að hitta Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í persónu og sendi þess í stað tiltölulega lágt setta erindreka. Erlent 15.5.2025 10:22
Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Vladimír Pútín Rússlandsforseti er ekki á leið til Tyrklands á fund Volodímír Selenskí en hinn síðarnefndi bauð honum til friðarviðræðna í eigin persónu í Instanbul á morgun. Erlent 14.5.2025 22:24
Sjónarspil í Istanbul Þegar erindrekar hlutaðeigandi deiluaðila koma saman í Istanbul á morgun, verður það í fyrsta skipti síðan í mars 2022 sem þeir ræða augliti til auglitis um möguleg endalok átakanna í Úkraínu. Samkoman sem slík gæti markað skref í rétta átt, þó ekki væri nema vegna þess að friði í heiminum hefur um nokkurt skeið stafað vaxandi hætta af því eldfima staðgöngustríði sem vestræn ríki og Rússlandi hafa háð á vígvöllum Úkraínu á síðustu ellefu árum. Skoðun 14.5.2025 19:03
Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir undirbúning fyrir mögulegar viðræður við Úkraínumenn í Istanbúl á fimmtudaginn yfirstandandi. Í samtali við blaðamenn vildi Peskóv ekki gefa upp hvort Pútín ætlaði sér að mæta á fundinn og ræða við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 13.5.2025 10:46
Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Rússnesk stjórnvöld eru ábyrg fyrir því að malasísk farþegaþota var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 með þeim afleiðingum að tæplega þrjú hundruð manns fórust. Alþjóðaflugmálastofnunin ákveður á næstu vikum hvers konar bætur þau þurfa að greiða. Erlent 13.5.2025 07:38
Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Í fleiri löndum heimsins ríkir jákvæð sýn gagnvart Kína en til Bandaríkjanna og algjört hrun hefur orðið á ímynd Bandaríkjanna á heimsvísu frá því í fyrra. Þá mælist ímynd Donalds Trump Bandaríkjaforseta neikvæð í 82% landa um allan heim, en ímynd bæði Pútíns Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína mælist betri á heimsvísu. Erlent 13.5.2025 06:30
Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Framtíð sögufrægs menningarfélags Íslands og Rússlands og sala á húsnæði félagsins er á dagskrá aðalfundar sem boðað hefur verið til í vikunni. Deilur um félagið hafa komið í veg fyrir að lyktir fáist um hvoru tveggja í þrjú ár en síðasta tilraun til aðalfundar leystist upp í stimpingum. Innlent 12.5.2025 14:33
Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Forsætisráðherra Póllands fullyrðir að útsendarar rússnesku leyniþjónustunnar hafi vísvitandi kveikt í stærstu verslunarmiðstöð landsins sem brann nærri til grunna í fyrra. Sökudólgarnir eru taldir hafa átt þátt í eldsvoða í nágrannaríkinu Litháen skömmu áður. Erlent 12.5.2025 10:38
Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur þegið boð Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta um að hefja beinar viðræður í Tyrklandi í vikunni. Hann segist munu bíða Pútíns þar á fimmtudaginn. Erlent 11.5.2025 18:32
„Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að vopnahléi í Úkraínu síðustu daga, að sögn utanríkisráðherra. Rússar segjast tilbúnir til viðræðna, en Úkraína og bandalagsþjóðir hennar hafa gert kröfu um skilyrðislaust vopnahlé fyrst. Erlent 11.5.2025 12:07
Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lagði til í gær að hefja beinar viðræður við Úkraínumenn í Tyrklandi í vikunni. Var það í kjölfar þess að leiðtogar Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Póllands kröfðust þess að Pútín samþykkti almenn þrjátíu daga vopnahlé, sem ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur lagt til. Erlent 11.5.2025 08:12
Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður yfir því hver erfiðlega honum hefur gengið að binda enda á átök sem hann hafði heitið að stöðva fljótt. Fyrir forsetakosningarnar í fyrra hafði forsetinn heitið því að stöðva átökin í Úkraínu og á Gasaströndinni mjög fljótt. Erlent 10.5.2025 15:25
Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir þátttöku dáta hans í stríðinu í Úkraínu og í Rússlandi vera réttláta. Norður-Kórea hafi nýtt fullveldi sitt til að koma bræðraþjóð til aðstoðar. Erlent 10.5.2025 09:43
Einhliða vopnahlé Rússa hafið Þriggja sólarhringa vopnahlé sem Vladímír Pútín Rússlandsforseti boðaði í Úkraínu hefur tekið gildi. Tilefni vopnahlésins er að áttatíu ár eru liðin frá lokum seinni hemisstyrjaldar. Erlent 7.5.2025 23:40
Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Líklegast er talið að vestræn ríki þurfi að bera milljarða króna kostnaðinn vegna skemmda sem urðu á steinhvelfingu utan um Tsjernobyl-kjarnorkuverið í Úkraínu við drónaárás Rússa í vetur. Erlent 7.5.2025 15:59
Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Pólskur ráðherra segir rússnesk stjórnvöld nú há fordæmalausa herferð til þess að hafa áhrif á forsetakosningar síðar í þessum mánuði. Afskiptin felist meðal annars í upplýsingahernaði og tölvuárásum á innviði landsins. Erlent 6.5.2025 11:40
Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Forsætisráðherra Rúmeníu sagði af sér í gær eftir lakan árangur frambjóðanda flokks hans í fyrri umferð forsetakosninga um helgina. Frambjóðandi öfgahægrisins fór með sigur af hólmi og þykir sigurstranglegur í seinni umferðinni. Erlent 6.5.2025 09:09
Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Ráðamenn í Rússlandi segjast hafa þurft að loka flugvöllum í Moskvu í nokkrar klukkustundir vegna drónaárása Úkraínumanna. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir 105 dróna hafa verið skotna niður í nótt, víðsvegar yfir Rússlandi. Erlent 6.5.2025 06:40
Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Vladímír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa ekki hafa þurft að nota kjarnorkuvopn í Úkraínu og vonast hann til þess að þeirra verði ekki þörf. Hann telur styrk rússneska hersins nægilega mikinn til að leiða átökin „rökrétt“ til lykta. Erlent 4.5.2025 11:04
Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Rúmenar ganga að kjörborðinu í dag í fyrri umferð kosninga til að velja sinn næsta forseta. Grannt er fylgst með kosningunum en sex mánuðir eru síðan hætt var við forsetakosningar vegna ásakana um að Rússar væru að beita sér í kosningunum. Erlent 4.5.2025 10:56
Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Útsendarar leyniþjónusta Rússlands hafa notað samfélagsmiðla til að fá unga Úkraínumenn til að gera sprengjuárásir í Úkraínu. Í einhverjum tilfellum hefur fólkið ekki vitað að það bæri sprengju og hefur þó óafvitandi verið gert að sjálfsmorðssprengjumönnum. Erlent 2.5.2025 16:09
Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Bandaríkin hafa tilkynnt um undirritun samnings við Úkraínu um nýtingu auðlinda þar í landi. Samningurinn mun veita Bandaríkjamönnum aðgang að sjaldgæfum jarðefnum sem finna má í Úkraínu. Erlent 30.4.2025 23:21
Segja 4.700 Kimdáta hafa fallið eða særst Leyniþjónusta Suður-Kóreu áætlar að um sex hundruð hermenn frá Norður-Kóreu hafi fallið í átökum við Úkraínumenn. Rúmlega fjögur þúsund eru sagðir hafa særst en heilt yfir er talið að Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hafi sent um fimmtán þúsund dáta til Rússlands. Erlent 30.4.2025 13:48
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Friðarviðleitni Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og erindreka hans virðist ekki ætla að bera árangur. Trump virðist þreyttur á að reyna að stilla til friðar og hefur hann sakað Úkraínumenn og Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, um að standa í vegi friðar með því að vilja ekki verða við umfangsmiklum kröfum Rússa og þá sérstaklega fyrir það að vilja ekki viðurkenna tilkall Rússa til Krímskaga. Erlent 30.4.2025 07:31
Lýsir yfir einhliða vopnahléi vegna sigurhátíðar í næstu viku Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagðist ætla að lýsa yfir einhliða vopnahléi í Úkraínu í þrjá sólarhringa í næstu viku þegar Rússar fagna því að áttatíu ár eru liðin frá sigri á nasistum í síðari heimsstyrjöldinni. Úkraínumenn gefa lítið fyrir yfirlýsingar forsetans. Erlent 28.4.2025 15:02
Rússar segjast hafa handsamað morðingja herforingjans Karlmaður sem rússnesk yfirvöld hafa í haldi vegna morðs á hátt settum herforingja fyrir helgi er sagður hafa játað sök og halda því fram að hann hafi fengið greitt frá Úkraínu. Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki tjáð sig um morðið. Erlent 28.4.2025 10:17
Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Donald Trump Bandaríkjaforseti segist telja að Volodómír Selenskí Úkraínuforseti geti fallist á að Rússar haldi Krímskaga eftir að friður kemst á í Úkraínu. Erlent 28.4.2025 06:48