Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Samúel Karl Ólason skrifar 16. desember 2025 11:11 Sergei Ríabkóv, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. EPA/ALEXANDER ZEMLIANICHENKO Rússar munu ekki slaka neitt á kröfum sínum varðandi Krímskaga, Donabas-svæðið eða önnur svæði sem Rússar hafa innlimað í Úkraínu. Slíkt kemur ekki til greina og myndi koma niður á fullveldi Rússlands.
Þetta er meðal þess sem Sergei Ríabkóv, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, sagði í viðtali við ABC News í Bandaríkjunum. Hann sagði að friður hefði aldrei verið eins nærri og nú en að Rússar myndu aldrei sætta sig við viðveru Atlantshafsbandalagsins, eða hermanna frá Vesturlöndum, í Úkraínu. Slíkt yrði liður í öryggistryggingum sem Úkraínumenn segja nauðsynlegar til að semja um frið. Sjá einnig: Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Viðræður um mögulegan frið hafa átt sér stað á undanförnum vikum. Viðræðurnar hófust í kjölfar þess að fregnir bárust af því að þeir Steve Witkoff, sérstakur erindreki Donalds Trump, og Jared Kushner, tengdasonur forsetans, auk rússneska auðjöfursins Kirill Dmitríev, sem er sérstakur erindreki Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefðu samið nýja friðaráætlun. Þá hefur því verið haldið fram að skjalið hafi að miklu leyti byggt á tillögum sem Dmitríev skrifaði skömmu eftir að Trump sneri aftur í Hvíta húsið í janúar. Þá kom í ljós að Witkoff hafði rætt það við Júrí Úsjakóv, aðstoðarmann Pútíns, hvernig rússneski forsetinn gæti haft mest áhrif á Trump og fengið hann á sitt band. Heimta svæði sem þeir stjórna ekki Rússar hafa innlimað fimm héruð Úkraínu inn í Rússneska ríkissambandið, samkvæmt breytingum sem gerðar voru á stjórnarskrá Rússlands á undanförnum árum. Um er að ræða Krímskaga, Kherson, Sapórisjía, Dónetsk og Lúhansk. Af þessum héruðum stjórna Rússar eingöngu Krímskaga og Lúhansk að fullu. Þeir stjórna stórum hluta Dónetsk en hafa átt í töluverðu basli með að ná héraðinu að fullu. Yfirráðasvæði Úkraínumanna þar er talið mjög víggirt. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í dag að bandarískir erindrekar hefðu heitið því að land þar sem Rússar hefðu búið um aldir yrði aftur hluti af Rússlandi. Hann var þar líklega að vísa til Donbas-svæðisins. Þegar kemur að Kherson og Spaórisjía stjórna Rússar ekki stórum hluta þeirra héraða. Í viðtalinu vísaði Ríabkóv til atkvæðagreiðslna sem hefðu verið haldnar í Dónetsk og Lúhansk árið 2022, undir hernámi Rússa, og að þau héruð tilheyrðu Rússlandi, samkvæmt niðurstöðum þeirra kosninga. Vísaði hann til sambærilegra atkvæðagreiðslna sem framkvæmdar voru á yfirráðasvæðum Rússa í Kherson og Sapórisjía. Hafi alltaf tilheyrt Rússlandi Aðspurður um hvernig hægt væri að halda sanngjarnar atkvæðagreiðslur undir hernámi, laug Ríabkóv því að svæðið hafi ekki verið hernumið af öðru ríki. Það tilheyrði Rússlandi. „Þetta er ekki annarra land. Þetta var ekki eitthvað sem við tókum á tunglinu eða annarsstaðar á okkar plánetu,“ sagði Ríabkóv. Hann sagði þessi héruð alltaf hafa tilheyrt Rússlandi. Ríabkóv vísaði til Euromaidan mótmælanna árið 2014, sem hann kallaði valdarán, þegar Viktor Janúkóvits, fyrrverandi forsætisráðherra, flúði til Rússlands frá Úkraínu. Þá hafi íbúar þessara héraða ákveðið að biðja Rússa um að koma þeim til bjargar. Viðtalið við Ríabkóv má sjá í spilaranum hér að neðan. Ekki benda á mig Í viðtalinu sagði aðstoðarráðherrann einnig að stríðið væri Atlantshafsbandalaginu að kenna. Útbreiðsla þess til austurs hefði leitt til innrásar Rússa í Úkraínu. Bandalagið væri í grunninn mjög árásargjarnt í garð Rússlands og Rússar litu á það sem andstæðing. Það myndi ekki breytast í fyrirsjáanlegri framtíð. Ráðamenn í Rússlandi og málpípur þeirra hafa ítrekað sakað NATO um að bera ábyrgð á stríðinu. Oft hafa þeir vísað til þess að Rússum eigi að hafa verið lofað að NATO myndi ekki hleypa ríkjum Austur-Evrópu inn í bandalagið, sem er ekki rétt eins og áður hefur verið farið yfir. Sjá einnig: Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þá má vísa til ummæla Pútins frá 2002, þegar hann var spurður út í mögulega aðild Úkraínu að NATO. Þá sagði hann það í raun ekki koma Rússlandi við. Það væri á milli NATO og Úkraínu. Sagði sjálfur að engin innrás yrði gerð, skömmu fyrir innrásina Árið 1994 skrifuðu ráðamenn í Rússlandi, Úkraínu, Bandaríkjunum og í Bretlandi undir Búdapest-samkomulagið. Þá létu Úkraínumenn af hendi kjarnorkuvopn og sprengjuflugvélar frá Sovétríkjunum og sendu til Rússlands. Í staðinn hétu ráðamenn í Rússlandi því að virða fullveldi Úkraínu og landamæri ríkisins og hétu þeir því einnig að beita aldrei valdi gegn Úkraínu, hvorki hernaðarlegu né efnahagslegu. Bandaríkjamenn og Bretar hétu því að tryggja að samkomulaginu yrði framfylgt. Þegar Ríabkóv var bent á það og hans eigin orð frá upphafi 2022 um að engin innrás yrði gerð í Úkraínu, nokkrum dögum áður en innrásin hófst, og spurður af hverju Úkraínumenn ættu að geta treyst einhverju sem Rússar segja sagði hann að ekki hefði verið hægt að framfylgja samkomulaginu þar sem ríkisstjórn Úkraínu þjónaði ekki öllum íbúum ríkisins. Vísaði hann aftur í atkvæðagreiðslurnar undir hernámi um innlimun Rússlands á héruðunum fimm og sagði að íbúar þar hefðu ekki viðurkennt breytingarnar sem orðið hefðu á Úkraínu árið 2014. Þá sagði hann að Rússar hefðu á sama tíma ekki tilefni til að treysta neinu frá Úkraínumönnum og Vesturlöndum. Hann sagði réttast að horfa til framtíðar.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Vladimír Pútín Bandaríkin Donald Trump NATO Tengdar fréttir Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Útsendarar einnar af leyniþjónustum Úkraínu, sem kallast Öryggisþjónusta Úkraínu (SBU), grönduðu rússneskum kafbáti við bryggju í Novorossiysk við Svartahaf í Rússlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem vitað er til þess að kafbáti sé grandað með neðansjávardróna. 15. desember 2025 16:15 Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir Úkraínumenn reiðubúna til að falla frá fyrirætlunum sínum um að ganga í Atlantshafsbandalagið, gegn pottþéttum öryggistryggingum. 15. desember 2025 06:27 Witkoff fundar með Selenskí Steve Witkoff, sérstakur erindreki og samningamaður Bandaríkjastjórnar í friðarviðræðum Úkraínu og Rússlands, fundar í Berlín um helgina með Volodomír Selenskí Úkraínuforseta og nokkrum Evrópuleiðtogum. Ríkisstjórn Donalds Trump vill að samkomulag náist um frið fyrir jól, en helsti ásteytingarsteinninn virðist vera möguleg eftirgjöf hernumdra svæða í austurhluta Úkraínu til Rússlands. 13. desember 2025 09:16 Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, birti í dag myndband sem hann tók á götum borgarinnar Kúpíansk. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og forsvarsmenn rússneska hersins héldu því fram í síðasta mánuði að borgin hefði verið hernumin að fullu en nú berast fregnir af því að Úkraínumenn séu að reka Rússa úr borginni. 12. desember 2025 13:53 Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Sjá meira
Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Útsendarar einnar af leyniþjónustum Úkraínu, sem kallast Öryggisþjónusta Úkraínu (SBU), grönduðu rússneskum kafbáti við bryggju í Novorossiysk við Svartahaf í Rússlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem vitað er til þess að kafbáti sé grandað með neðansjávardróna. 15. desember 2025 16:15
Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir Úkraínumenn reiðubúna til að falla frá fyrirætlunum sínum um að ganga í Atlantshafsbandalagið, gegn pottþéttum öryggistryggingum. 15. desember 2025 06:27
Witkoff fundar með Selenskí Steve Witkoff, sérstakur erindreki og samningamaður Bandaríkjastjórnar í friðarviðræðum Úkraínu og Rússlands, fundar í Berlín um helgina með Volodomír Selenskí Úkraínuforseta og nokkrum Evrópuleiðtogum. Ríkisstjórn Donalds Trump vill að samkomulag náist um frið fyrir jól, en helsti ásteytingarsteinninn virðist vera möguleg eftirgjöf hernumdra svæða í austurhluta Úkraínu til Rússlands. 13. desember 2025 09:16
Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, birti í dag myndband sem hann tók á götum borgarinnar Kúpíansk. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og forsvarsmenn rússneska hersins héldu því fram í síðasta mánuði að borgin hefði verið hernumin að fullu en nú berast fregnir af því að Úkraínumenn séu að reka Rússa úr borginni. 12. desember 2025 13:53