Írak

Fjölskylda fórst í loftárás
Sex manna fjölskylda lét lífið þegar bandarískir hermenn skutu eldflaugum að miðborg Falluja í fyrrinótt. Fólkið hafði að sögn nágranna sinna nýlega snúið aftur heim eftir að hafa flúið borgina um nokkurra daga skeið vegna hættunnar sem þar ríkir.

Bretar inn á svæði Bandaríkjahers
Bretar hafa skilning á vanda Bandaríkjahers í Írak og líta vinsamlegum augum á beiðni þeirra um að breskir hermenn taki sér stöðu á herstjórnarsvæði Bandaríkjahers svo Bandaríkjamenn geti ráðist af meiri krafti gegn vígamönnum. Þetta sagði Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands.

Hersetuliðið í 5 ár til viðbótar
Engin leið er að kalla hersetuliðið í Írak heim innan fimm ára að mati virtustu sérfræðinga Bretlands í hermálum. Fyrst þá er nokkur von til þess að írakskar öryggissveitir geti tryggt lágmarksöryggi borgara landsins.

Yfir 100 látnir eða slasaðir
Yfir hundrað manns eru látnir eða slasaðir eftir sprengjuárásir skæruliða á höfuðstöðvar þjóðavarnarliðsins í Írak í morgun. Sex sprengjum var varpað á híbýli þjóðavarnarliðsins með fyrrgreindum afleiðingum.

Yfirmanni góðgerðasamtaka rænt
Mannræningjar rændu yfirmanni alþjóðlegu góðgerðasamtakanna Care International í Írak í dag. Margaret Hassan hefur búið í Írak í þrjá áratugi en ekki er vitað hvar hún er nú niðurkomin.

Fleiri breskir hermenn til Íraks?
Bandaríkjamenn hafa farið þess á leit við bresk stjórnvöld að þau sendi aukinn herafla til Íraks. Geoff Hoon, varnarmálaráðherra Bretlands, greindi frá því á breska þinginu í dag að beiðni þessa efnis hafi borist ráðuneytinu í síðustu viku en ákvörðun um hvort farið verði að óskum Bandaríkjamanna liggi ekki fyrir.

Herinn rukkaði særðan hermann
Tyson Johnson III lá enn þá á sjúkrahúsi þar sem hann var að jafna sig af sárum sem hann hlaut í Írak þegar honum barst bréf frá hernum þar sem hann var rukkaður um andvirði tæpra 200 þúsund króna. Upphæðin var sú sama og skráningarbónus sem hann fékk fyrir að skuldbinda sig til þriggja ára herþjónustu.

Tengjast bin Laden
Skæruliðahópur Abu Musabs al-Zarqawis í Írak, sem Bandaríkjamenn segja jafngilda útibúi al-Kaída í landinu, hefur í fyrsta sinn lýst yfir hollustu sinni við Ósama bin Laden.

Öflugar sprengingar í Bagdad
Átta manns féllu og minnst fjórir særðust þegar tvær öflugar sprengingar urðu í miðborg Bagdad í Írak fyrir stundu. Að sögn sjónarvotta er þykkur reykmökkur yfir svæðinu.

Glæpir gegn mannkyni staðfestir?
Fjöldagröf fannst í norðurhluta Íraks og er talið að þar sé að finna hundruð og jafnvel þúsundir líka. Sum þeirra eru af börnum sem halda á leikföngunum sínum. Líklegt er talið að þetta leiði til þess að Saddam Hússein verði sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni.

Fjöldagrafir finnast í Írak
Líkamsleifar að minnsta kosti eitt hundrað manna, þar á meðal barna, hafa fundist í fjöldagröfum nálægt þorpinu Hatra í Norður-Írak. Grafirnar eru taldar sanna ofsóknir gegn Kúrdum sem drepnir voru í þúsunda tali í valdatíð Saddams Husseins í lok níunda áratugarins.

Steingrímur krefst upplýsinga
Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri-grænna krafðist þess á fundi utanríkismálanefndar í gær að íslensk stjórnvöld skýrðu nefndinni frá því hvaða samtöl og eða bréfaskriftir áttu sér stað á milli íslenskra ráðuneyta og erlendra ríkisstjórna áður en ákvörðun var tekin um að Ísland yrði á lista yfir "hinar viljugu þjóðir" sem studdu innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak.

Styðja Þjóðverjar Íraksstríðið?
Breyting virðist hafa orðið á afstöðu þýskra stjórnvalda til stríðsreksturs í Írak, þó að Gerhard Schröder kanslari þvertaki fyrir það. Peter Struck, varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði í viðtalið við þarlent dagblaði í gær að til greina kæmi að Þjóðverjar sendu hersveitir til Íraks, yrði breyting á ástandinu þar.
Ekkert gsm-samband í Bagdad
Íraska farsímafyrirtækið Iraqna fór í verkfall í gær til að mótmæla mannránum hryðjuverkamanna.

Stríð og friður í Írak
Utanríkisráðherra segir barist í fimm byggðalögum í Írak en frið ríkja í hinum 795 byggðalögum landsins. Þingmönnum ber ekki saman um nákvæmni þessara talna né heldur hvaða mynd þær gefa af ástandinu í landinu.

Aftaka Bigleys á Netinu
Myndbandið sem sýnir aftöku breska gíslsins Kenneths Bigleys birtist á íslamskri vefsíðu í dag. Áður en hinn 62 ára gamli verkfræðingur er afhöfðaður talar hann til Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og ríkisstjórnar hans þar sem hann segist eiga stutt eftir ólifað. „Þú virðist ekki hafa gert neitt til að hjálpa mér ...

Sprenging við lögregluskóla
Sautján manns fórust í sjálfsmorðsprengingu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sprengingin varð þegar tilræðismaðurinn ók bíl sínum að lögregluskóla og olíuráðuneyti landsins. Þeir sem létust voru einkum vegfarendur, þar á meðal sjö konur.
Loforð um framlag ekki efnd
Minnst af því fé sem 37 lönd hétu að láta af hendi rakna til uppbyggingar í Írak hefur skilað sér. Ríkin hétu því á ráðstefnu í Madríd á Spáni í fyrra að láta nærri þúsund milljarða króna af hendi rakna í formi styrkja og lána. Nú hafa aðeins um sjötíu milljarðar króna skilað sér í sjóði Heimsbankans og Sameinuðu þjóðanna í Írak.

Fylgismenn Al-Sadrs afvopnast
Uppreisnarmenn úr röðum sjítaklerksins Moqtada al-Sadrs með aðsetur í Sadr-borg, einu hverfa Bagdad-borgar, hafa fallist á að afvopnast á mánudag gegn því að Bandaríkjamenn hætti að sprengja í hverfinu.

Bigley slapp frá ræningjunum
Breski gíslinn Kenneth Bigley, sem drepinn var í Írak í fyrradag, slapp frá mannræningjunum í um hálftíma skeið áður en hann var drepinn. Mannræningjarnir segja að einn úr þeirra hópi hafi hjálpað Bigley við að flýja en að hann hafi fundist á harða hlaupum á akri suðvestur af Bagdad. Í kjölfarið var hann drepinn.

Myndband með aftöku Bigleys
Aftaka breska gíslsins Kenneths Bigleys er til á upptöku að sögn manns sem Reuters-fréttastofan ræddi við í Írak í dag. Myndbandið hefur ekki enn verið gert opinbert en maðurinn segist hafa séð það og að hans sögn les Bigley upp yfirlýsingu áður en hann er drepinn.

Bræður Bigleys staðfesta tíðindin
Bræður Kenneth Bigleys, Bretans sem haldið hefur verið föngnum af mannræningjum í Írak síðustu vikur og sagt er að hafa verið líflátinn, hafa staðfest að bróðir þeirra sé ekki lengur á lífi. Þetta kom fram í sjónvarpsávarpi sem þeir fluttu fyrir stundu.

Tugir þáðu mútur Íraka
Nokkur ríki og fjöldi embættismanna högnuðust á því að láta Íraka komast upp með að selja meiri olíu en þeim var heimilt samkvæmt viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna. Féð notuðu Írakar meðal annars til að kaupa búnað til vopnaþróunar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu bandarísku vopnaeftirlitssveitanna í Írak.
Ekkert að finna í Írak
Írakar áttu engin gereyðingarvopn áður en Bandaríkin réðust inn í landið í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu vopnaeftirlitsveitar Bandaríkjamanna í Írak.

Of fáir hermenn og engin tengsl
Tveir af helstu ráðamönnum Bandaríkjanna sem komu að innrásinni í Írak hafa neyðst til að draga til baka orð sem þeir létu falla á opinberum vettvangi. Donald Rumsfeld sagðist engar sannanir hafa séð um tengsl Saddam Hussein og Osama bin Laden og Paul Bremer sagði það hafa komið í bakið á Bandaríkjunum að hafa sent of fámennt herlið til Íraks.

Íraskar konur uggandi um sinn hag
Margt hefur færst til betri vegar í Írak síðan einræðisstjórn Saddams var hrakin frá völdum. Konur í landinu óttast hins vegar að ótryggt öryggisástand og uppgangur heittrúarmanna muni leiða til versnandi stöðu þeirra.

Engin tengsl milli Laden og Saddam
Engin tengsl voru á milli Ósama bin Ladens og Saddams Hússeins. Þetta er mat Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Orð hans vöktu athygli í New York í gærkvöldi þegar hann sagðist aldrei hafa séð neinar sannfærandi sannanir fyrir því að nokkurs konar samband væri á milli bin Ladens og Saddams.

Óvíst hvort gereyðingavopn finnist
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna efast um að nokkur tengsl hafi verið á milli al-Kaída hryðjuverkasamtakanna og Saddams Hússeins og segir ekki víst að gereyðingarvopn muni finnast í Írak. Þá segir fyrrverandi landsstjóri Bandaríkjanna í Írak að allt of fáir hermenn hafi farið til landsins.

21 fallinn í morgun
Fjölmargar bílasprengjur sprungu í Bagdad í Írak í morgun og tuttugu og einn maður hið minnsta liggur í valnum. Öfgamenn beina spjótum sínum í auknum mæli að nýþjálfuðum írökskum öryggissveitum.

Um fjörutíu manns létust
Á fjórða tug manna, kvenna og barna lést í árásum og bardögum í Írak í gær. Í það minnsta 21 lét lífið og um hundrað manns særðust í tveimur sprengjuárásum í Bagdad í gær. Ellefu létust í loftárásum Bandaríkjamanna í Falluja að sögn lækna, þeirra á meðal konur og börn.