Nýja-Sjáland

Yfirgnæfandi meirihluti með hertri vopnalöggjöf
Alls greiddu 119 nýsjálenskir þingmenn atkvæði með frumvarpinu, en einn greiddi atkvæði gegn.

Morðinginn í Christchurch kvartar undan illri meðferð í fangelsinu
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir eitt morð og á yfir höfði sér fleiri ákærur vegna árásarinnar í Christchurch.

Minntust fórnarlambanna í Christchurch
Jacinda Ardern var viðstödd athöfnina og hélt ræðu ásamt leiðtogum múslimasamfélagsins og einum sem lifði árásina af.

Morðinginn í Christchurch gaf austurrískum öfgamönnum fé
Ástralskur maður gaf leiðtoga öfgasamtaka andsnúnum innflytjendum í Austurríki jafnvirði um 200.000 króna.

Vilhjálmur prins heimsækir Nýja-Sjáland
Vilhjálmur prins mun heimsækja Nýja-Sjáland í næsta mánuði til þess að heiðra minningu þeirra fimmtíu sem létust í hryðjuverkaárás í borginni Christchurch.

Fyrirskipar sjálfstæða rannsókn á hryðjuverkaárásinni
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur fyrirskipað sjálfstæða og óháða rannsóknarnefnd til að rýna í hryðjuverkaárásina í borginni Christchurch föstudaginn 15. mars.

Moskan opnuð á ný
Al-Noor moskan í Cristchurch, vettvangur mannskæðasta hryðjuverks í sögu Nýja-Sjálands, var opnuð á ný í nótt

Ardern sýni hugrekki með byssubanni
Þetta er gert í kjölfar hryðjuverkaárásar á tvær moskur í borginni Christchurch þar sem fimmtíu voru myrt.

Banna sölu hálfsjálfvirkra vopna strax
Nýsjálendingar ætla að banna öll hálfsjálfvirk skotvopn og árásarriffla í kjölfar ódæðisins í Christchurch á dögunum.

Erdogan birti aftur myndband af árásinni í Christchurch
Erdogan notaði myndbandið á kosningasamkomu til að fordæma það sem hann sagði vera aukið hatur og fordóma gagnvart íslam.

Hyggst aldrei nefna árásarmanninn á nafn
Nýsjálenska forsætisráðherranum var tíðrætt um nauðsyn þess að hugsa og ræða fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar og aðstandendur þeirra.

Embætti ríkislögreglustjóra rannsakar ferðir hryðjuverkamanns um Ísland
Embætti ríkislögreglustjóra vinnur nú að því að kortleggja ferðir Brentons Tarrant, ástralska karlmannsins sem ber ábyrgð á mannskæðustu hryðjuverkum í sögu Nýja-Sjálands, um Ísland. Hann er talinn hafa komið hingað til lands árið 2017

Eyddu einni og hálfri milljón myndbanda af árásinni á Facebook
Forsvarsmenn fyrirtækja á Nýja-Sjálandi íhuga að hætta að auglýsa á samfélagsmiðlum.

Kynna nýja og herta vopnalöggjöf á næstu dögum
Ríkisstjórnin á Nýja Sjálandi hefur samþykkt fyrir sitt leiti nýja vopnalöggjöf í landinu eftir hryðjuverkið í Christchurch þar sem fimmtíu féllu fyrir hendi byssumanns sem vopnaður var hálfsjálfvirkum rifflum og haglabyssum.

Sagðist innblásinn af Anders Breivik
Ástralski hryðjuverkamaðurinn sem myrti fimmtíu manns í mosku á Nýja-Sjálandi á föstudag vildi hefna 11 ára gamllar stúlku sem lést í hryðjuverkaárás í Stokkhólmi árið 2017.

Fjölskylda hryðjuverkamannsins í áfalli yfir illvirkinu
Að minnsta kosti fimmtíu eru látnir eftir hryðjuverkaárásina í Christchurch.

Nýsjálenskum flugvelli lokað vegna grunsamlegs pakka
Dunedin alþjóðaflugvellinum á Suðurey Nýja-Sjálands var lokað í dag vegna grunsamlegs pakka sem fannst á flugvellinum. Lögregla var á staðnum og fjarlægði pakkann grunsamlega.

Talið að Ísland hafi verið einn af viðkomustöðum hryðjuverkamannsins
Brenton Tarrant, ástralski hryðjuverkamaðurinn sem ber ábyrgð mannskæðustu hryðjuverkum í sögu Nýja-Sjálands, segist hafa komið til Íslands í Evrópureisu sem hann fór í fyrir tveimur árum. Marie Fitzgerald, amma Tarrants, segir þessa Evrópuferð hafa breytt honum.

Fjöldi fórnarlamba flóttafólk sem taldi sig hafa fundið sinn griðastað
Nýsjálenska lögreglan hefur nú staðfest andlát 50 fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar í Christchurch í Nýja-Sjálandi. Lögreglustjórinn í Christchurch, Mike Bush, segir í samtali við BBC að enn sé unnið að því að úrskurða dánarorsök hvers fyrir sig.

Fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar í Nýja-Sjálandi fimmtíu talsins
Fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar í Nýja-Sjálandi eru nú orðin fimmtíu talsins.

Breska konungsfjölskyldan um hryðjuverkin í Nýja-Sjálandi: „Engin manneskja ætti að óttast að sækja helgistað“
Hertogahjónin af Camebridge og Sussex hafa vottað aðstandendum fórnarlamba hryðjuverkanna í Nýja-Sjálandi samúð sína .

Barst stefnuyfirlýsing hryðjuverkamannsins í tölvupósti
Nokkrum mínútum áður en hryðjuverkamaðurinn Brenton Tarrant lét til skarar skríða og myrti 49 manns í tveimur moskum í borginni Christchuch í Nýja-Sjálandi sendi hann tölvupóst til Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, með stefnuyfirlýsingu (e. manifesto) sinni.

Þingmaðurinn sem kenndi múslimum um hryðjuverkaárásina fékk egg í höfuðið
Fraser Anning, ástralski öldungadeildarþingmaðurinn umdeildi, sem í gær kenndi múslimum sjálfum og innflytjendastefnu Nýja-Sjálands um hryðjuverkin var á blaðamannafundi í dag grýttur eggi þegar hann hafði í frammi frekari áróður gegn múslimum.

Hryðjuverkamaðurinn leiddur fyrir dómara
Hægri öfgamaðurinn sem myrti að minnsta kosti 49 manns í tveimur moskum í borginni Christchurch í Nýja-Sjálandi var að morgni laugardags að staðartíma leiddur fyrir dómara þar sem honum var gerð grein fyrir ákærum á hendur honum.

Maður á áttræðisaldri fyrstur fórnarlamba til að vera nafngreindur
Hajji Daoud Nabi var formaður Afgana í Nýja-Sjálandi, en það eru samtök tileinkuð því að varðveita afganska menningu innan afganskra innflytjendasamfélaga og auðvelda innflytjendum að aðlagast samfélagi Nýja-Sjálands.

Forsætisráðherra Nýja-Sjálands: „Eitt er víst að byssulöggjöfin okkar mun taka breytingum“
Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, sagði á blaðamannafundi í Wellington í kvöld að það væri alveg á hreinu að byssulöggjöf landsins myndi taka breytingum eftir að versta fjöldamorð í sögu Nýja-Sjálands átti sér stað í dag.

Kennir múslimum um árásina í Nýja-Sjálandi: „Þó að múslimar hafi í dag verið fórnarlömb þá eru þeir venjulega gerendur“
Fraser Anning er sakaður um að ala á hatri í garð múslima í kjölfar árásarinnar í Nýja-Sjálandi.

Tilkynnir ummæli um hryðjuverkaárásina í Christchurch til lögreglu
Segir þau ýta undir og hvetja til ofbeldis í garð minnihlutahóps í íslenskum samfélagi.

Hatur á netinu undanfari versta fjöldamorðs í sögu Nýja-Sjálands
Talið er að árásarmaður hafi tilkynnt um ætlun sína á spjallborði rasista á netinu. Myndum af einu morðvopnanna var tíst á miðvikudag.

Öryggisgæsla við franska tilbeiðslustaði hert eftir blóðbaðið í Christchurch
Stærsta samfélag múslima er Vestur-Evrópu er í Frakklandi. Skotárásin í Christchurch beindist að tveimur moskum.