Tímamót

Ratleikur sem endaði með óvæntu brúðkaupi
Árni Oddur Þórðarson fyrrverandi forstjóri Marel og Kristrún Auður Viðarsdóttir fjárfestir giftu sig óvænt í Dómkirkjunni í gær. Árni Oddur og Kristrún hafa verið saman í um tvö ár. Hjónin höfðu ekki boðið til brúðkaups heldur var veislan óvænt. Greint var fyrst frá brúðkaupinu á vef mbl.is í gær.

Reif sig upp frá Mogganum eftir fjörutíu ár
Einar Falur Ingólfsson er listamaður. Hann tók stökkið eftir að hafa fjallað um list í 40 ár. En hann hafði verið að fikta við listsköpun lengi samhliða vinnu. Einar Falur er lærður ljósmyndari og kennir ljósmyndun, er bókmenntafræðingur en starfaði lengstum innan vébanda Morgunblaðsins.

„Enn hafa engir leyndir gallar látið á sér kræla“
Grínistinn Sólmundur Hólm og eiginkona hans, Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona, fögnuðu tveggja ára brúðkaupsafmæli sínu í gær. Hjónin voru gefin saman í Dómkirkjunni í Reykjavík þann 10. september 2022.

Hildur Sif og Páll Orri festu kaup á hönnunaríbúð í 101
Hildur Sif Hauksdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, og kærastinn hennar Páll Orri Pálsson hafa fest kaup á 94 fermetra íbúð við Ánanaust í Reykjavík. Eignin er á fyrstu hæð í sjö hæða nýlegu fjölbýlishúsi.

Egill og Íris Freyja nefna dótturina
Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, opinberuðu nafn dóttur þeirra í færslu á Instagram í gær. Stúlkan fékk nafnið Maya sól.

Sturla Atlas og Kolfinna flytja inn saman
Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri og Sigurbjartur Sturla Atlason, þekktur sem Sturla Atlas, tónlistarmaður og leikari, hafa fest kaup á íbúð við Mýrargötu í Reykjavík.

Eva Dögg greinir frá kyninu
Jógagyðjan og annar eigandi vellíðurnarfyrirtækisins Rvk Ritual Eva Dögg Rúnarsdóttir og Stefán Darri Þórsson handboltamaður eiga von á dreng. Parið greindi frá kyni barnins í myndskeiði á Instagram um helgina.

Gylfi Sig og Alexandra tilkynna kynið
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson og verslunareigandinn Alexandra Helga Ívarsdóttir eiga von á strák. Þau greindu fyrst frá óléttunni í maí og Alexandra greindi frá því að hún væri með „strákabumbu“ á Instragram.

„Vináttan sem þú hélst að væri harðari en grjót reyndist byggð á sandi“
Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi Vill, opnaði sig í vikunni um skilnaðinn sinn. Eitt það erfiðasta í ferlinu hafi verið að horfa á eftir nákomnum vini sem sleit vinskap þeirra í kjölfar skilnaðarins.

„Fullkomið frá upphafi til enda, svo ekki sé minna sagt“
„Dagurinn líður hjá á ljóshraða og mitt besta ráð er að sleppa takinu, treysta ferlinu og njóta,“ segir hin nýgifta Fanney Ingvarsdóttir. Hún giftist ástinni sinni Teiti Páli Reynissyni í Gamla Bíói í ágúst og var dagurinn draumi líkastur. Blaðamaður ræddi við Fanneyju um stóra daginn og brúðkaupsferðina sem sprengdi skalann á rómantíkinni.

Sigvaldi og Nótt nefndu drenginn
Sigvaldi Björn Guðjónsson, hornamaður íslenska landsliðsins í handbolta, og Nótt Jónsdóttir fyrrverandi knattspyrnukona eignuðust dreng 29. ágúst síðastliðinn.

„Gerir öll ferðalög skemmtilegri og lætur mig hlæja endalaust“
Tinna Brá Baldvinsdóttir athafnakona og Ari Eldjárn skemmtikraftur fögnuðu 43 ára afmæli Ara í New York í Bandaríkjunum í gær. Parið fór meðal annars í siglingu og spa á Governors-eyjunni þar sem þau nutu útsýnisins yfir Manhattan.

Bergur Einar og Helga Margrét orðin foreldrar
Bergur Einar Dagbjartsson, trommuleikari í hljómsveitinni Vök, og Helga Margrét Höskuldsdóttir, dagskrárgerðar- íþróttafréttakona á RÚV, eignuðust stúlku þann 26. ágúst síðastliðinn. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.

Anna Lára og Svavar eiga von á barni
Anna Lára Orlowska, fyrrum Ungfrú Íslands, og Svavar Sigmundsson handboltaþjálfari, eiga von á sínu fyrsta barni saman.

Benedikt og Sunneva Einars selja slotið
Benedikt Bjarnason, tölvunarfræðingur og sambýlismaður Sunnevu Einarsdóttir áhrifavalds og raunveruleikastjörnu, hefur sett íbúð sína við Naustavör í Kópavogi á sölu. Ásett verð er 104,9 milljónir.

Ástmaðurinn „rændi“ Camillu
Valgeir Gunnlaugsson, pítsabakari og eigandi pizza 107, kom unnustu sinni Camillu Rut Rúnarsdóttur, áhrifavaldi og athafnakonu, skemmtilega á óvart með óvæntri veislu og ferð til Akureyar í tilefni af þrítugsafmæli hennar í gær.

Aníta Briem sviptir hulunni af ástinni
Leikkona Aníta Briem birti fyrstu myndirnar af sambýlismanni sínum Hafþóri Waldorff í tilefni af þrítugsafmæli hans 30. ágúst síðasliðinn. Parið byrjaði að slá sér upp síðastliðið haust en hefur haldið sambandinu að mestu utan sviðsljóssins.

Baltasar og Sunneva eignuðust stúlku
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eignuðust stúlku þann 5. ágúst síðastliðinn. Fjölskyldan er í skýjunum með litlu viðbótina.

Ingó veðurguð og Alexandra eignuðust stúlku
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, þekktur sem Ingó veðurguð, og kærasta hans Alexandra Eir Davíðsdóttir eignuðust stúlku þann 31. ágúst síðastliðinn.

Stjörnulífið: „Reynum að koma heilir til baka“
Haustið er formlega gengið í garð og heiðraði höfuðborgarbúa með gulri veðurviðvörun um helgina. Stjörnur landsins létu veðrið ekki stoppa sig og skemmtu sér á tónleikum, í brúðkaupum eða í veiði.

Erpur genginn út
Erpur Eyvindarson, einn ástsælasti rappari þjóðarinnar, er kominn á fast.

Myndaveisla: Tímamótapartý í miðborginni
Húsfyllir og góð stemning var í opnunar- og 25 ára afmælisteiti skartgripaverslunarinnar Aurum síðastliðinn fimmtudag. Í tilefni tímamótanna var verslunin stækkuð og hulunni svipt af nýrri skartgripalínu sem ber heitið Alvör.

Flóni er einhleypur
Tónlistarmaðurinn og rapparinn Friðrik Róbertsson sem betur er þekktur sem Flóni er einhleypur. Hann og barnsmóðir hans Hrafnkatla Unnarsdóttir hafa haldið hvort í sína áttina eftir þriggja ára samband.

Tíu ár síðan gaus í Holuhrauni
Tíu ár eru í dag liðin frá því að eldgos hófst í Holuhrauni. Eldgosið stóð í tæplega hálft ár en frá þeim rann mesta hraun frá Skaftáreldum seint á átjándu öld. Flatarmálið þess er meira en Þingvallavatns.

„Heppnasti maður í heimi“
Þjóðleikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarson og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir stjórnandi hjá Expectus fögnuðu bronsbrúðkaupi sínu í gær. Þetta kemur fram í færslu hjá Magnúsi á samfélagsmiðlum.

Elísabet Gunnars á nýjum vettvangi
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fólki, allskonar fólki. Hvort sem það séu tískuskvísur á Norðurlöndunum eða sætir gamlir franskir kallar með hatt, þá veitir það mér mikinn innblástur,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir, tískudrottning og ein af fyrstu stafrænu áhrifavöldum landsins. Hún stofnaði nýverið hlaðvarpið Morgunbollinn með Elísabetu Gunnars.

„Besti mánudagur í manna minnum“
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Emil Pálsson og Sunna Rún Heiðarsdóttir læknir eru orðin hjón. Parið lét gefa sig saman í gær og fögnuðu tímamótunum með lítilli veislu í heimahúsi.

Ólafía Þórunn og Thomas orðin hjón
Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Thomasi Bojanowski gengu í hjónaband við fallega athöfn í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 17 ágúst síðastliðinn.

Ástfangin í eitt ár
Hildur Sif Hauksdóttir, áhrifavaldur og raunveruleikastjarna, og Páll Orri Pálsson lögfræðingur fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu í gær. Parið opinberaði samband sitt í febrúar á þessu ári og virðist ástin blómstra.

Ekki lengur kærustupar, núna orðin hjón
Um helgina fór eitt fallegasta brúðkaup sumarsins fram þegar Björgvin Axel og Sandra Lind giftu sig. Þau eru bæði með Downs og búa bæði í íbúðakjarnanum Stuðlaskarði í Hafnarfirði.