

Fanney Ingvarsdóttir og Teitur Páll Reynisson eru trúlofuð. Fanney greinir frá gleðitíðindunum á Instagram.
Róbert Wessman, stofnandi Alvotech, og eiginkona hans Ksenia Shakhmanovu eiga von á barni á nýju ári. Róbert tilkynnti gleðitíðindin á Instagram síðu sinni.
„Þetta var ótrúlegt, ég átti alls ekki von á þessu,“ segir Alda Karen Hjaltalín frumkvöðull og fyrirlesari í samtali við Vísi en hún fékk óvænt bónorð á annan í jólum.
Illugi Jökulsson, rithöfundur og útvarpsmaður, segist vera alltof þungur og ætlar sér að losa sig við 50 kíló næsta árið. Núverandi þyngd segir hann ógna heilsu sinni.
Grínistinn Sóli Hólm er formlega útskrifaður úr eftirliti vegna krabbameins sem hann greindist með fyrir rúmum fimm árum síðan. Í samtali við Vísi segist Sóli vera þakklátur og segir hann gott að byrja árið á svona jákvæðum nótum.
Árið 2022 heyrir nú sögunni til og er nýtt ár gengið í garð. Á þessum tímamótum virðist þakklæti vera ofarlega í hugum flestra. Þá voru glimmer og glamúr að sjálfsögðu allsráðandi um helgina.
Það var stemmning á Bessastöðum í dag en leikari, réttarmannfræðingur, kvensjúkdómalæknir og tónskáld voru meðal þeirra sem sæmd voru hinni íslensku fálkaorðu eins og hefðin býður upp á á nýársdag.
Ingvar Þór Björnsson, einn umsjónarmanna Morgunútvarpsins á Rás 2, og Sandra Björk Jónasdóttir þjóðfræðingur eiga von á barni.
Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson eru trúlofuð. Þau trúlofuðu sig um áramótin.
Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og eiginmaður hennar Jón Skaftason eiga von á barni.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands mun láta af embætti eftir átján mánuði. Þetta kom fram í nýárspredikun hennar í Dómkirkjunni í morgun.
Veitingastaðnum CooCoo's Nest á Granda í Reykjavík verður lokað í dag eftir að hafa framreitt mat fyrir gesti í áratug. Aðrir aðilar opna rekstur í húsnæðinu á nýju ári. Síðasti brönsinn á CooCoo's hefur verið borinn fram.
Handboltakappinn Guðjón Valur Sigurðsson er orðinn afi. Dóttir hans eignaðist hárprúða dóttur þann 21. desember síðastliðinn.
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds og söngkonan Sandrayati gengu í hjónaband á milli jóla og nýárs. Brúðkaupið fór fram 26. desember á Balí, en Sandrayati er alin upp á eyjunni fögru. Hjónin eiga einstaklega fallegt hús á Balí og eyða miklum tíma þar.
Nick Cannon, sjónvarpsmaðurinn sem virðist hafa einsett sér að eignast sem flest börn, eignaðist sitt tólta barn á dögunum. Hann hefur nú eignast fimm börn það sem af er ári.
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.
Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ, og Ísak Örn Kristinsson, viðskiptafræðingur og körfuboltadómari, trúlofuðu sig nýlega. Þau greina frá þessu í sameiginlegri færslu á Instagram.
Kristján Sigurjónsson er kannski ekki þjóðþekkt nafn en víst er að röddina þekkja flestallir landsmenn. Kristján hefur enda verið við hljóðnemann á Ríkisútvarpinu nánast á hverjum degi síðastliðin 39 ár en lætur nú af störfum vegna aldurs. Vísir ræddi við Kristján um útvarpsferilinn, vinnufélagana og eftirminnileg augnablik.
Samfélagsmiðlastjarnan og verkfræðingurinn Katrín Edda og eiginmaður hennar Markus Bande hafa nefnt nýfædda dóttur sína, Elísu Eyþóru Markusdóttur Wasserbäch.
Þorláksmessa og skötulykt leggur yfir landið að venju, mörgum til ama en ekki þeim sem biðu í röð eftir því að fá að bragða á ilmandi skötunni á Lauga-ás. Í síðasta sinn þar sem staðnum verður formlega lokað eftir daginn í dag.
Guðbjörg Gunnarsdóttir fékk í dag afhenta styttu frá Knattspyrnusambandi Íslands fyrir að spila 50 landsleiki fyrir Íslands hönd. Afhendingin kemur í kjölfar gagnrýni á sambandið fyrr í vetur.
Leikkonan Rumer Willis á von á sínu fyrsta barni með tónlistarmanninum Derek Richard Thomas. Rumer er elsta dóttir leikkonunnar Demi Moore og leikarans Bruce Willis og verður þetta þeirra fyrsta barnabarn.
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði brautskráði í gær 43 nemendur. Nemendur útskrifuðust af fjórum brautum skólans; félagsvísinda-, raunvísinda-, viðskipta og hagfræði- og opinni braut. Tíu þeirra luku einnig námi á íþróttaafrekssviði skólans og einn af listnámssviði. Hæstu einkunn hlaut Guðrún Edda Min Harðardóttir, með einkunnina 9,87 á stúdentsprófi.
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar stendur í ströngu á þinginu jafnt sem í einkalífinu.
Leikkonan María Thelma Smáradóttir og hnefaleikakappinn Steinar Thors eru trúlofuð. Parið var á jólarölti í Hafnarfirði sem tók ansi óvænta stefnu þegar Steinar skellti sér á skeljarnar.
Athafnahjónin Magnús Scheving og Hrefna Björk Sverrisdóttir hafa eignast son. Hrefna greinir frá gleðitíðindunum á Instagram.
Ungt par fékk að finna fyrir góðmennsku nágrannanna á laugardag þegar allt stefndi í að annað barn þeirra myndi fæðast í bíl þeirra, sem sat fastur á Álftanesi. Þau segja nágrannana hafa bjargað sér á ögurstundu.
Árið 2022 í viðskiptalífinu einkenndist af því að í fyrsta sinn frá því snemma árs 2020 komst lífið aftur í venjubundið horft eftir tveggja ára kórónuveirufaraldur.
Samfélagsmiðlastjarnan og verkfræðingurinn Katrín Edda og eiginmaður hennar Markus Bande eignuðust stúlku í gærkvöldi.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra tryggingafélagsins Varðar.